Sólstöðuhugvekja Siðmenntar: Baráttan um frelsið

Birt

21. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sólstöðuhugvekja Siðmenntar: Baráttan um frelsið

Í tilefni af sumarsólstöðum þann 21. júní býður Siðmennt, félag siðrænna húmanista, upp á hátíðardagskrá. Dagurinn hefur verið nefndur alþjóðadagur húmanista, enda fagna lífsskoðunar- og trúarfélög þessum lengsta degi ársins víða um heim. þessu sinni hverfist útvarpsþáttur Siðmenntar um frelsið.

Í þættinum fáum við hugvekjur frá tveimur höfundum, þeim Emblu Guðrúnar Ágústsdóttur og Baldvin Flóka Bjarnasyni. Einnig heyrum við frumsamin ljóð sem sigruðu í fyrstu ljóðakeppni Siðmenntar, en höfundar þeirra eru Auður Magndís, Guðrún Bjarnadóttir og Ægir Þór Jähnke.

Dagskrárgerð er í höndum Bjarna Snæbjörnssonar.

Tónlist:

Ég er frjáls í flutningi Jóns Kr. Ólafssonar og Facon.

Freedom í flutningi Sigríðar Guðnadóttur og Jet Black Joe.

Söngur um lífið í flutningi Páls Óskars Hjálmtýssonar og Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Undir hugvekju Emblu heyrist lagið Epilogue eftir Ólaf Arnalds.

,