Nai Barghouti og hljómsveit

Birt

1. maí 2026

Aðgengilegt til

31. maí 2026

Nai Barghouti og hljómsveit

Nai Barghouti og hljómsveit á tónleikum í Hörpu

Hljóðritun frá tónleikum palestínsku tónlistarkonunnar Nai Barghouti og fjölþjóðlegri hljómsveit hennar sem fram fóru í Eldborg, Hörpu, 17. apríl sl.

Nai hefur vakið athygli víða um heim fyrir einstæða tónlistarhæfileika og tjáningarríkan tónlistarflutning.

Á efnisskránni eru arabískar tónlistarperlur, afrísk-amerískur jazz, evrópsk klassík og seiðandi tónlist Nai sjálfrar, þar sem áhrifavaldarnir eru arabísku söngdívurnar Oum Kulthoum frá Egyptalandi og hin dáða líbanska tónlistarkona Fayrouz.

Hljómsveitina á tónleikunum skipa Tony Roe á píanó, Khalil Khoury á þjóðlega strengjahljóðfærið quanun, Mark Haanstra á bassa og Ruven Ruppik á slagverk. Sjálf syngur Nai og leikur á flautu.

Umsjón: Pétur Eggertsson.

,