
Mugison og Sinfó á Airwaves
Örn Elías Guðmundsson, eða Mugison - er einn af okkar ástsælustu tónlistarmönnum og hefur samið og gefið út margar af þekktustu perlum síðari ára. Á Ariwaves hátíðinni í fyrra steig hann í fyrsta sinn á svið með Sinfóníuhljómsveit Íslands og fór með hjómsveitinni í gegnum tónlistarferilinn sem litast af tilfinningum, dýpt, óvæntum beygjum og einstökum hljóðheimi.
Stjórnandi: Bjarni Frímann Bjarnason.
Hljóðritun frá tónleikum í Eldborg, Hörpu, nóvember 2025.
Um upptöku sá Georg Magnússon, hljóðmeistari útvarpsins.