Jæja Guðjón

Svipmynd af myndlistarmanninum Guðjóni Ketilssyni.

Myndlistarmaðurinn Guðjón Ketlisson, sem fæddur er árið 1956, á baki langan feril í listinni. Guðjón vinnur oft skúlptúra í list sinni en teikningin er alltaf nálæg, áhersla á handverk og rík tilfinning fyrir efninu og næm snerting listamannsins vekja athygli. Efniviðurinn er oftar en ekki fundinn en Guðjón kemur auga á möguleika hversdagsins og vinnur úr honum myndlist sem setur skynjun okkar og reynslu í nýtt samhengi. Guðni Tómasson fer í heimsókn til Guðjóns á vinnustofu hans í miðborginni og gengur með honum um Norðurmýrina til ræða hvernig sköpunarferilð er og hvað veitir Guðjóni innblástur í listinni.

Umsjón: Guðni Tómasson.

Þættir

,