Gullastokkur Egils Skallagrímssonar

Birt

25. apríl 2013

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Gullastokkur Egils Skallagrímssonar

Í þættinum "Gullastokkur Egils Skallagrímssonar" er fjallað um leiki barna fyrr á öldum. Oft fræðast um þá af sögum og endurminningum. Egill litli Skallagrímsson fékk skeljar í gullastokkinn sinn launum fyrir kvæði þegar hann var fjögurra ára. Guðmundur Arason góði þóttist alltaf vera biskup þegar hann var í leik með félögum sínum. Þegar Katrín mikla var 7 ára gömul var henni sagt hún væri of gömul fyrir leikföng og þau voru tekin af henni. Og Kristín Dahlstedt þóttist vera prinsessa í kjól sem bróðir hennar fléttaði handa henni úr blómum. Þessar frásagnir og ýmsar fleiri verða fluttar í þættinum, og leikin verða gömul barnalög. Lesarar eru Vigdís Gunnarsdóttir og Valur Freyr Einarsson, en umsjónarmaður Una Margrét Jónsdóttir.

Þátturinn var frumfluttur á sumardaginn fyrsta árið 2013.

,