
Tæplega fimmtíu ára tónlistarferill Bubba Morthens krufinn til mergjar í tali og tónum í tilefni af sjötugsafmælisárinu. Boðið upp á fágætar tónleikaupptökur, viðtöl og umfjallanir um tónlist og texta Bubba sem sumar hverjar hafa ekki heyrst í áraraðir á öldum ljósvakans.
Umsjón: Ásgeir Eyþórsson
Í sjötta þætti eru árin 1989 og 1990 til umfjöllunar og þar koma m.a. við sögu Bubba-plöturnar Nóttin langa og Sögur af landi. Hér má m.a. heyra valdar klippur úr útvarpsþáttunum Árið er, Bubbi segir sögur, Geymt en ekki gleymt, Plata vikunnar, Rokkland og Segðu mér.
Viðmælendur í sjötta þætti eru Bubbi Morthens og Silja Aðalsteinsdóttir.
Viðtöl: Freyr Eyjólfsson, Ólafur Páll Gunnarsson og Sigurlaug Margrét Jónasdóttir.
Lagalisti:
Bubbi - Sumarið í Reykjavík
Bubbi - Vegir liggja til allra átta
Bubbi - Þú varst svo sæt
Bubbi - Sagan endurtekur sig
Bubbi - Háflóð
Bubbi - Mér stendur ekki
Bubbi - Þau vita það
Bubbi - Stríðsmenn morgundagsins
Bubbi - Friðargarðurinn
Bubbi - Tíu fingur ferðast
Mannakorn & Bubbi - Haltu mér fast
Bubbi - Fjólublátt flauel
Bubbi - Stúlkan sem starir á hafið
Bubbi - Blóðbönd
Bubbi - Syneta
Bubbi - Síðasti örninn
Bubbi - Sonnetta
Bubbi - Að eilífu ung
Bubbi - Sú sem aldrei sefur
Bubbi - Kaupmaðurinn á horninu