
Pétur Grétarsson og Vera Illugadóttir hafa ofan af fyrir hlustendum nokkra sumarmorgna

07:30

08:30


Gestur úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir
Ívar Örn Hansen betur þekktur sem Helvítis kokkurinn er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í dag. Ívar var ungur þegar hann fékk áhuga á matargerð. Hann var varaður við af læknum að hann myndi fá hjartaáfall ef hann tæki sig ekki á og það reyndist rétt. Fyrir nokkrum árum tók hann ákvörðun um að láta á það reyna að vinna fyrir sjálfan sig og er í dag einkakokkur fyrir ríka ferðamenn meðal annars. Hann framleiðir líka sultur undir nafninu Helvítis. Við kynnumst Ívari betur í þætti dagsins.

Morgunleikfimi með Halldóru Björnsdóttur.


Veðurstofa Íslands.

Umsjón: Kristján Kristjánsson.


Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Dánarfregnir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Þularkynnt tónlist

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Illugi Jökulsson gramsar í safnakosti Ríkisútvarpsins.
Svava Jakobsdóttir sá um þáttinn Við sem heima sitjum árið 1961 og í einum þátta hennar ræddi hún um völvur í Íslendingasögunum og tók síðan skemmtilegt viðtal við kornunga stúlku að nafni Amy Engilbert, en sú síðarnefnda var þá að fara til Frakklands til náms í ýmsum dulrænum fræðum, spásögnum og fleiru þess háttar.

Umsjónarfólk segir frá tímabili í ævi sinni og leikur tónlist sem endurspeglar tímann eða atburði sem sagt er frá.


Í þættinum "Gullastokkur Egils Skallagrímssonar" er fjallað um leiki barna fyrr á öldum. Oft má fræðast um þá af sögum og endurminningum. Egill litli Skallagrímsson fékk skeljar í gullastokkinn sinn að launum fyrir kvæði þegar hann var fjögurra ára. Guðmundur Arason góði þóttist alltaf vera biskup þegar hann var í leik með félögum sínum. Þegar Katrín mikla var 7 ára gömul var henni sagt að hún væri of gömul fyrir leikföng og þau voru tekin af henni. Og Kristín Dahlstedt þóttist vera prinsessa í kjól sem bróðir hennar fléttaði handa henni úr blómum. Þessar frásagnir og ýmsar fleiri verða fluttar í þættinum, og leikin verða gömul barnalög. Lesarar eru Vigdís Gunnarsdóttir og Valur Freyr Einarsson, en umsjónarmaður Una Margrét Jónsdóttir.
Þátturinn var frumfluttur á sumardaginn fyrsta árið 2013.

Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Þátturinn var fyrst á dagskrá 28. júní 2014.
Umsjón: Sigurbjörg Þrastardóttir
Sigurbjörg Þrastardóttir leikur tónlist að eigin vali.
Textabrot sem sitja í minninu eru leiðarstefið í þessum þætti. Eftirminnilegar línur eru af ýmsum toga og alls ekki alltaf úr viðlögunum. Tónlistin nær frá Lou Reed til Sigur Rósar og Sykurmolanna, að ógleymdum Billy Joel og nýrri músík amerískri.
1. Devendra Banhart - The Beatles
2. The Moldy Peaches - Anyone else but you
3. Leslie Gore - It's my party
4. Billy Joel - Piano Man
5. Ragnhildur Gísladóttir - Draumaprinsinn
6. Elliott Smith - Waltz #2
7. Johnny Mandel - Suicide is painless
8. Emiliana Torrini - Fisherman's Woman
9. Jimmy Dean - Feel for the Forest 10. Sykurmolarnir - Regína
11. Lou Reed - Walk on the wild side
12. Sigur Rós - Íllgresi

Útvarpsfréttir.

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar.


Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Nokkur vel valin lög

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.

Hjóðritun frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar í Birmingham á Proms, sumartónlistarhátíð Breska útvarpsins, 26. júlí sl.
Á efnisskrá:
- Sinfóníetta eftir Francis Poulenc.
- Konsert fyrir tvö píanó eftir Francis Poulenc.
- Harmonium eftir John Adams.
Einleikarar: Lucas og Arthur Jussen.
Kórar: Kór Sinfóníuhljómsveitarinnar í Birmingham og Fílharmóníukórinn í Sydney.
Stjórnandi: Kazuki Yamada.
Umsjón: Pétur Eggertsson.

Umsjónarfólk segir frá tímabili í ævi sinni og leikur tónlist sem endurspeglar tímann eða atburði sem sagt er frá.

Skáldsaga eftir norska höfundinn Tarjei Vesaas.
Heimir Pálsson þýddi, en lesari er Ingrid Jónsdóttir.
Sagan er samin um 1930. Hún segir frá fólki á býlinu Framnesi. Þar býr Ambos, rekur stóran hestabúgarð og ekur með ferðamenn um héraðið. Svörtu hestarnir hans eru honum kærari en flest annað. Ambros var ekkjumaður og á uppkomin börn, en hefur fyrir skömmu kvænst í annað sinn, ungri konu, Lísu. Þau eiga tvö ung börn, en Lísa er annarar gerðar en Ambros og samlagast ekki lífinu á bænum, yfir hjónabandinu hvílir skuggi sem markar allt fólkið á Framnesi.
Tarjei Vesaas var einn af helstu höfundum Norðmanna á tuttugustu öld. Hann fékk bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir Klakahöllina, sem einnig hefur komið út í íslenskri þýðingu.
Sagan er 18 lestrar.


frá Veðurstofu Íslands

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar.

Útvarpsfréttir.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

07:30

08:30


Létt spjall og lögin við vinnuna.



Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Útvarpsfréttir.

Margrét Erla Maack fylgir fólki á góðum sumardögum, leikur lauflétta tóna og heldur gleðinni gangandi.



Útvarpsfréttir.

Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.


Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.


Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir Rásar 2 í EBU bjóða upp á.
Í fyrsta Konsert ársins heyrum við í Hipsumhaps og GDRN á Aldrei fór ég suður 2024 og svo í hljómsveitinni Flott á Iceland Airwaves 2024.