Tónlistarhátíðin Myrkir músíkdagar er ein elsta tónlistarhátíð landsins, stofnuð árið 1980 af Tónskáldafélagi Íslands, sem vettvangur fyrir íslensk tónskáld til að fá verk sín flutt.
Áhersla er á vandaða samtímatónlist með áherslu á nýja, íslenska tónlist og flytjendur í bland við erlend verk og erlenda flytjendur.
Hljóðrtun frá tónleikum kammerkórsins Cantoque Ensemble sem fram fóru í Hallgrímskirkju á Myrkum músíkdögum, 1. febrúar sl.
Á efnisskrá eru kórverk eftir Hildigunni Rúnarsdóttur:
*Herra, mig heiman þú (1994).
*Þrír þættir úr Requiem: Dies irae (2025 - frumflutningur), Pie Jesu (2023), In paradisum (2022).
*Vorlauf (2002).
*Árþula (2019).
*Magnificat (2013).
*Syngur sumarregn (1994).
*Ó Jesú, séu orðin þín (1992).
*Psalmus 116 (2022).
Einsöngvari: Hallveig Rúnarsdóttir.
Stjórnandi: Steinar Logi Helgason.
Umsjón: Rakel Edda Guðmundsdóttir.
Í þættinum hljómar einnig brot úr tónskáldaspjalli sem boðið var upp á fyrir tónleikana þar sem Elísabet Indra Ragnarsdóttir ræddi við Hildigunni um tónskáldaferilinn og tilurð verkanna sem flutt voru.
Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 16 mín.