07:03
Morgunútvarpið
Hálandaleikarnir,Norður-Víkingur og eru möguleikar á undanþágum í ESB?

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Hálandaleikar fara fram í Reykholti á laugardaginn. Margir af sterkustu mönnum landsins koma þar saman en það verður einnig leyft sveitungum að spreita sig í svökölluðum axlatöku. Hjalti Úrsus kom til okkar og sagði okkur frá þessu.

Æfingin Norður-Víkingur hefur verið reglulega á Íslandi síðan 1982 og fer fram í næstu viku. Æfingin er á vegum Íslands og Bandaríkjanna en fjöldi annarra NATO-ríkja tekur þátt í henni. Jónas G. Allansson, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu Utanríkisráðuneytisins, kom til okkar og fór yfir æfinguna.

Flest bendir til að ekki yrði unnt að ná fram í aðildarviðræðum nauðsynlegum undanþágum til að tryggja áframhaldandi íslensk yfirráð yfir sjávarútveginum. Þetta segir Albert Jónsson, sérfræðingur í alþjóðamálum og fyrrverandi sendiherra Íslands í Rússlandi, í pistli á vefsíðu sinni. Í kjölfarið velti hann fyrir sér af hverju Íslendingar eigi að sækjast eftir aðil að ESB, ef það færi svo að sambandið myndi fallast á skilyrði Íslands fyrir aðild. Albert kom til okkar.

Leikararnir Jökull Smári Jakobsson og Nikulás Hansen Daðason komu til okkar og fóru yfir fréttir vikunnar. Þeir eru á bakvið Innblástur, sem er glæný barnasýning í Tjarnarbíói sem fjallar um leikgleðina, sköpunarkraftinn og að kannski séu sumar reglur til að brjóta þær.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,