12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 7. júlí 2026

Útvarpsfréttir.

Tíu ratsjár-eftirlitsvélar fyrir aðildarríki Atlantshafsbandalagsins verða smíðaðar af SAAB. Margra milljarða dollara samningar um hergögn voru kynntir í Tyrklandi í dag.

Magnús Þór Jónsson, Megas, tónlistarmaður, rithöfundur og myndlistarmaður er látinn. Textar hans og tónlist mörkuðu djúp spor í tónlistarsöguna.

Áfrýjunardómstóll í Frakklandi hefur staðfest dóm yfir Marine Le Pen, fyrrverandi forsetaframbjóðanda. Hún fær þó að bjóða sig fram til forseta, en óvíst er hvort hún geri það.

Teymisstýra Bjarkarhlíðar segir mikla eftirspurn eftir vændi hér á landi viðhalda mansali. Dómsmálaráðherra hyggst herða viðurlög við vændiskaupum.

Lagalegar heimildir skorti til þess að Byggðastofnun gæti orðið við beiðni Fjallalambs um afskrift láns. Stofnunin segir Fjallalamb lykilstoð á Kópaskeri og er reiðubúin til að styðja fyrirtækið áfram.

Hrun hafstraumkerfis Atlantshafsins, AMOC, gæti verið óhjákvæmilegt. Miðað við núverandi losun gróðurhúsalofttegunda eru tíu prósent líkur á að kerfið hrynji.

Firnasterkir Belgar slógu Bandaríkjamenn út af HM karla í fótbolta í gær, þrátt fyrir að Bandaríkjamenn tefldu fram leikmanni sem margir telja að hefði átt að sæta leikbanni.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,