
Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Séra María Guðrúnardóttir Ágústsdóttir flytur morgunbæn og orð dagsins.
Eyðibýlið er viðtals og tónlistarþáttur þar sem viðmælandi er settur í þá stöðu að verða að dvelja í eina viku í einangrun á eyðibýli. Þar hefur hann allt til alls nema fjölmiðla og fjarskiptatæki. Til að stytta honum stundir fær hann að velja nokkur lög til að hlusta á, eina bók til að lesa og svo eitt þarfaþing sem hann má hafa með sér. Í þættinum gerir viðmælandinn grein fyrir vali sínu og svo því helsta sem hann myndi taka sér fyrir hendur í þessar einnar viku einveru.
Þórir Guðmundsson, sviðsstjóri Alþjóðasviðs Rauða kross Íslands. Umsjón: Héðinn Halldórsson.
Una Margrét Jónsdóttir fjallar um ljóðbækur ýmissa höfunda og lögin við ljóðin.
Fjallað um "Þulur" Theodoru Thoroddsen sem komu út 1916. Þetta var ekki ljóðabók í hefðbundnum skilningi því hún bar öll einkenni barnabókar, þunnt hefti með myndskreytingum eftir Guðmund Thorsteinsson, öðru nafni Mugg. Samt vöktu þulurnar ekki síður hrifningu fullorðinna en barna og vinsældir þeirra hafa haldist fram á þennan dag. Margir kannast við lagið "Tunglið, tunglið, taktu mig" eftir Stefán S. Stefánsson, en í þættinum verður einnig flutt tónlist eftir Karl O. Runólfsson, Skúla Halldórsson, Unni Birnu Björnsdóttur og fleiri tónsmiði.
Lesari er Leifur Hauksson, en auk þess eru fluttar gamlar hljóðritanir þar sem þulur Theodoru eru lesnar af henni sjálfri og Lárusi Pálssyni leikara. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 29. ágúst 2019
Í þættinum er leikin kórtónlist með Karlakór Reykjavíkur og Árnesingakórnum, kvartettútsetningar fyrir Einsöngvarakvartettinn og einsöngslög með Kristni Hallssyni, Rannveigu Fríðu Bragadóttur og Sigurði Bragasyni.
Leikin eru tvö brot úr viðtali við Jónas Bjarnason, sem segir frá harðindum og hremmingu frá æskuárum sínum um og eftir 1880. Björn Bergman ræddi við Jónas þegar hann var 94 ára.
Umsjón hefur Jónatan Garðarsson.
(Áður á dagskrá 1998)

Veðurstofa Íslands.
Saga Kristínar Björnsdóttur sem starfaði í áratugi fyrir Sameinuðu þjóðirnar í New York er í senn sveipuð ævintýraljóma og dulúð. Hver var Kristín, eða Stína sterka eins og hún var stundum nefnd?
Guðrún Hálfdánardóttir kynnti sér lífshlaup þessa lítt þekkta kvenskörungs sem iðulega var í hringiðu heimsmálanna.
Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.
Lífshlaup Kristínar var ævintýralegt en um leið allt annað en auðvelt. Hún fór ung að heiman og á millistríðsárunum var hún flutt út í heim þar sem hún lærði tungumál, starfaði sem fyrirsæta og gætti barna. En allt breyttist þegar seinni heimstyrjöldin braust út. Viðmælendur í þættinum eru: Bryndís Sigurðardóttir, Gissur Vilhjálmsson, Guðfinna Halla Þorvaldsdóttir, Guðrún Erlendsdóttir og Ragnhildur Hjaltadóttir.
Tónlist í þættinum: The Lonesome Road - Pipeline,
Nocturne in E flat major op.9, no. 2 – Steven Houg,
September song – Bill Evans,
Venice – Bill Evans,
Corse île d'amour – Tino Rossi,
In a sentimental mood - Duke Ellington & John Coltrane,
Goodbye Pork Pie Hat – Charles Mingus,
Blue in Green – Miles Davis.
Kirkjudagur Reykholtskirkju á Reykholtshátíð 2025.
Sr. María G. Ágústsdóttir, sóknarprestur, prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Önnu Eiríksdóttur og sr. Heiðrúnu Helgu Bjarnadóttur.
Organisti er Dóra Erna Ásbjörnsdóttir. Kirkjukór Reykholtskirkju leiðir sálmasöng og einsöng annast Dagný Sigurðardóttir. Tónlistarflutningur er í höndum tónlistarfólks Reykholtshátíðar: Joaquin Páll Palomares og Pétur Björnsson á fiðlur, Þórunn Ósk Marinósdóttir á víólu, og Sigurður Bjarki Gunnarsson á selló.
TÓNLIST:
Forspil: W.A.Mozart - Andante úr Divertimento í D-dúr, KV 136
Fyrir predikun:
Sálmur 747. Þér lýðir lofið Drottin. J. Berthier / Taizé.
Sálmur 223. Þig lofar, faðir, líf og önd. Sigurbjörn Einarsson / N. Decius.
Einsöngur: Maríukvæði. Halldór Laxness / Atli Heimir Sveinsson.
Tónlist Arvo Pärt - Da Pacem Domine.
Eftir predikun:
Sálmur 308. Heyr himnasmiður. Kolbeinn Tumason / Þorkell Sigurbjörnsson.
Sálmur 587. Vér lofum þig, Kristur. S. Ellingsen – Sigurbjörn Einarsson / H. Gullichsen.
Sálmur 236. Þín minning, Jesú. Helgi Hálfdánarson / Barth, Gesius.
Sálmur 518. Ísland ögrum skorið. Eggert Ólafsson / Sigvaldi Kaldalóns.
Eftirspil: W.A.Mozart, Allegro úr Divertimento í D-dúr, KV 136.
Útvarpsfréttir.
Stúlka sem lést eftir að hafa farið í sjóinn við Reynisfjöru í gær var níu ára, frá Þýskalandi. Þyrla Landhelgisgæslunnar fann hana í sjónum um tveimur klukkustundum eftir að tilkynning barst.
Hamas-samtökin hafna því að þau séu tilbúin að leggja niður vopn. Starfsmenn Rauða hálfmánans í Palestínu segja að höfuðstöðvar samtakanna á Gaza hafi verið eyðilagðar í árásum Ísraelshers í nótt.
Hitabylgjur í Evrópu hafa leitt til þess að íbúar nota loftkælingu mun meira en áður. Þetta hefur hækkað orkuverð og skapað álag á dreifikerfi.
Mikil stemning var á Þjóðhátíð í nótt og veður mun skárra en á föstudag. Hátíðarhöld gengu heilt yfir vel á landinu en nokkuð var um minni háttar líkamsárásir í gær.
Ísland er í tíunda sæti á lista yfir þau vegabréf sem veita greiðastan aðgang að öðrum löndum heims.
Heiðlóa verpti í Surtsey í ár í fyrsta sinn síðan 2009. Fjöldi fuglategunda sem verpir í eynni er með mesta móti í ár.
Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar.
Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir
Af hverju er verið að setja lög um íþróttaiðkun trans fólks og hvað er bakslag? Aðför að réttindum trans fólks er til umfjöllunar í þættinum í dag.
Þátturinn Í boði náttúrunnar hefur nú göngu sína annað sumarið í röð, en í fyrra byrjuðu þau hjónakorn, Guðbjörg Gissurardóttir og Jón Árnason að rækta sitt eigið lífræna grænmeti. Þau höfðu þá enga reynslu, né hugmynd um hvernig þau ættu að koma slíku verki í framkvæmd. En til að afla sér þekkingar fóru þau á stúfana og hittu sérfræðinga og vana leikmenn á því sviði og fengu ráðleggingar og hugmyndir sem skiluðu þeim ágætis uppskeru í lok sumars. Nú þegar þau hafa tekið sín fyrstu skref í matjurtaræktinni halda þau ótrauð áfram, full metnaðar og ætla að afla sér enn frekari reynslu og þekkingar á matjurtaræktinni og frekari sjálfbærni.
Í Boði náttúrunnar fjallar um ferðalag þeirra hjóna og verður hlustendum vonandi hvatning til að rækta sitt eigið grænmeti eða innblástur til enn frekari afreka í garðinum. (Áður á dagskrá 2010)
Í þessum þætti munu Jón og Guðbjörg bragða á móasopa hjá Áslaugu Snorradóttur ljósmyndara á veitingastaðnum Marengs í Listasafni Íslands, en eins og nafnið móasopi gefur til kynna er það stútfullt af næringarríkum jurtum sem allir geta tínt útí næsta móa. Því næst verða hjónin Guðmundur Vernharðsson og Sigríður Helga Sigurðardóttir sem eiga og reka Gróðrastöðina Mörk heimsótt og bjóða þau þáttastjórnendum m.a. inn í sinn eigin matjurtagarð. Að lokum verður rætt við Vilmund Hansen garðyrkjumann sem opnaði facebook síðuna Ræktaðu garðinn þinn og veitir matjurta ræktendum í vanda ókeypis ráð alla daga ársins. Hann segir okkur m.a. hver eru algengustu vandamálin sem rækendur eru að glíma við þetta sumarið.
Guðrún Gunnars söngkona bauð til tónleika í Salnum í apríl 2025, ásamt 6 manna hljómsveit undir stjórn Ásgeirs Ásgeirssonar gítarleikara. Hópurinn flutti lög eftir skandinavísk söngvaskáld,mörg hver lög sem sjaldan heyrast hér á landi á öldum ljósvakans eða í lifandi flutningi, en önnur eru þekktari og hafa verið þýdd yfir á íslensku af Aðalsteini Ásberg rithöfundi og ljóðskáldi.
Textarnir eru allir eftir Aðalstein Ásberg en hann fagnaði einmitt sjötugsafmæli í júlí og var sæmdur heiðursmerki STEFS á miðjum tónleikunum.
Lögin eru sum hver af sólóplötum Guðrúnar en þjóðlaga og vísnatónlist hefur alltaf staðið hjarta söngkonunnar nærri eins og heyra má á þeim 6 sólóplötum sem komið hafa út með henni. Á tónleikum voru frumfluttir nokkrir nýjir textar eftir Aðalstein, sérstaklega samdir fyrir tilefnið.
Þessi tónlist er hugljúf og hlustendum er boðið, með Guðrúnu og hljómsveitinni, í vísna og þjóðlagaferðalag um um skandinavíu með Cornelis Vreesjwijk, norsku Bremnessystkinunum,Kari,Ola og Lars,hinni dönsku Piu Raug og hinni finnsku Erna Tauro, svo einhverjir séu nefndir.
Hljómsveitina skipa:
Ásgeir Ásgeirsson gítar og hljómsveitarstjórn
Gunnar Gunnarsson píanó og harmónikka
Þorgrímur Jónsson bassi
Hannes Friðbjarnarson slagverk
Stefán Örn Gunnlaugsson hljómborð,gítar og raddir
Gísli Magna raddir
Efnisskrá:
1)Veróníka(Cornelis Vreejswijk-Aðalsteinn Ásberg)
2)Hjá Fjólu (Kari Bremnes-Aðalsteinn Ásberg)
3)Gæti ég skrifað(Lars Bremnes-Aðalsteinn Ásberg)
4)Bæjarbragur(Ola Bremnes-Aðalsteinn Ásberg)
5)Ótækt lag(Lars Bremnes-Aðalsteinn Ásberg)
6)Haustvísa(Erna Tauro-Aðalsteinn Ásberg)
7)Í maí(Kari Bremnes-Aðalsteinn Ásberg)
8)Rigningardagur í nóvember(Pia Raug-Aðalsteinn Ásberg)
9)Tvær Tungur(Finn Kalvik-Aðalsteinn Ásberg)
10)Bjarg og Bára(Kari,Lars og Ola Bremnes-Aðalsteinn Ásberg)
11)Deirdres Samba(Cornelis Vreeswijk-Aðalsteinn Ásberg)
12)Grágæsin(Ola Bremnes-Aðalsteinn Ásberg)
13)Hamingjudagur Svantes(Benny Andersen-Aðalsteinn Ásberg)
14)Ég syng fyrir lífið(Höf ókunnur(flytjandi Sofia Karlson)-Aðalsteinn Ásberg)
15)Lífsbókin(Bergþóra Árnadóttir)
Ritstjórn Landans fór af stað með upptökutæki í hönd og forvitnaðist um alls konar sögur, staði, menn og málefni, eins og þeim einum er lagið.
Dagskrárgerð: Gísli Einarsson, Þórdís Claessen, Hafsteinn Vilhelmsson, Elsa María Guðlaugs Drífudóttir og Amanda Guðrún Bjarnadóttir. Framleiðsla: Gígja Hólmgeirsdóttir
Elsa María fræðist um endurbætur á Laxabakka við Sog og Amanda forvitnast um hvernig gosdrykkurinn Mix varð til og rifjar upp iðnað og framleiðslu á Akureyri um 1960.
Viðmælendur: Hannes Lárusson og Baldvin Valdimarsson.
Umsjón: Elsa María Guðlaugs Drífudóttir og Amanda Guðrún Bjarnadóttir

Veðurfregnir kl. 18:50.
Umsjón: Svanhildur Jakobsdóttir.
Lagalistinn:
Soffía og Anna Sigga, Hljómsveit Árna Ísleifs - Sumar er í sveit.
Ragnar Bjarnason, KK sextettinn - Vor við flóann.
Vilhjálmur Vilhjálmsson - Dans gleðinnar.
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, Anna Pálína Árnadóttir - Lífinu ég þakka.
Einar Júlíusson - Ágústnótt í Eyjum.
Samkórinn Björk - Hið unga vor.
Þórir Baldursson Tónlistarm. - Hvít segl.
Fjórtán Fóstbræður, Hljómsveit Svavars Gests - Sjómannavalsa syrpa.
Geirmundur Valtýsson - Heiðarnar huga minn seiða.
Qvick, Erik, Ásgeir Ásgeirsson Tónlistarm., Bjarni Sveinbjörnsson, Agnar Már Magnússon - Conversations.
Fitzgerald, Ella - Oh lady, be good (live).
Soffía og Anna Sigga, Hljómsveit Árna Ísleifs - Sumar er í sveit.
Ragnar Bjarnason, KK sextettinn - Vor við flóann.
Vilhjálmur Vilhjálmsson - Dans gleðinnar.
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, Anna Pálína Árnadóttir - Lífinu ég þakka.
Einar Júlíusson - Ágústnótt í Eyjum.
Samkórinn Björk - Hið unga vor.
Þórir Baldursson Tónlistarm. - Hvít segl.
Fjórtán Fóstbræður, Hljómsveit Svavars Gests - Sjómannavalsa syrpa.
Geirmundur Valtýsson - Heiðarnar huga minn seiða.
Brouwer, Jan P., Meader, Paul, Nolan, Robin, Robin Nolan Trio - Body and soul.
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Við fjöllum um áhrif loftslagsbreytinga í þættinum í dag og förum víða, förum í kælifrí á norðlægar slóðir og förum til Ástralíu og Suðurskautslandsins. Við byrjum í kuldanum á Suðurskautslandinu en leiðangursmenn þar komust í heimsfréttirnar í vor þegar maður sem þar er í rúmlega árslöngum leiðangri var sakaður um gróft ofbeldi og líflátshótanir gegn félögum sínum í leiðangrinum. Hann var sagður hafa ráðist á félaga sinn og líka sakaður um kynferðisofbeldi. Og það sem flækti svo þessa stöðu var að það þurfti að leysa úr þessu á staðnum. Það er mjög kostnaðarsamt og erfitt í framkvæmd að flytja einhvern þaðan og því urðu leiðangursmenn að greiða úr þessu sjálfir. Þeir eru enn í rannsóknarstöðinni sem heitir Sanae IV og verða fram í desember.
Í lok þáttarins förum við svo í kælifrí, sem kallast coolcation upp á ensku, og er ein af tískubylgjunum í ferðamennskunni. Í hitabylgjum síðustu sumur í Suður-Evrópu hefur það færst í aukana að íbúar þar velji sér milt eða jafnvel kalt loftslag á norðlægum slóðum til að fara í frí.
Þátturinn Í boði náttúrunnar hefur nú göngu sína annað sumarið í röð, en í fyrra byrjuðu þau hjónakorn, Guðbjörg Gissurardóttir og Jón Árnason að rækta sitt eigið lífræna grænmeti. Þau höfðu þá enga reynslu, né hugmynd um hvernig þau ættu að koma slíku verki í framkvæmd. En til að afla sér þekkingar fóru þau á stúfana og hittu sérfræðinga og vana leikmenn á því sviði og fengu ráðleggingar og hugmyndir sem skiluðu þeim ágætis uppskeru í lok sumars. Nú þegar þau hafa tekið sín fyrstu skref í matjurtaræktinni halda þau ótrauð áfram, full metnaðar og ætla að afla sér enn frekari reynslu og þekkingar á matjurtaræktinni og frekari sjálfbærni.
Í Boði náttúrunnar fjallar um ferðalag þeirra hjóna og verður hlustendum vonandi hvatning til að rækta sitt eigið grænmeti eða innblástur til enn frekari afreka í garðinum. (Áður á dagskrá 2010)
Í þessum þætti munu Jón og Guðbjörg bragða á móasopa hjá Áslaugu Snorradóttur ljósmyndara á veitingastaðnum Marengs í Listasafni Íslands, en eins og nafnið móasopi gefur til kynna er það stútfullt af næringarríkum jurtum sem allir geta tínt útí næsta móa. Því næst verða hjónin Guðmundur Vernharðsson og Sigríður Helga Sigurðardóttir sem eiga og reka Gróðrastöðina Mörk heimsótt og bjóða þau þáttastjórnendum m.a. inn í sinn eigin matjurtagarð. Að lokum verður rætt við Vilmund Hansen garðyrkjumann sem opnaði facebook síðuna Ræktaðu garðinn þinn og veitir matjurta ræktendum í vanda ókeypis ráð alla daga ársins. Hann segir okkur m.a. hver eru algengustu vandamálin sem rækendur eru að glíma við þetta sumarið.
Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.
Íslenskur skiptinemi í Hollandi eignaðist eltihrelli þegar hún flutti í stóra blokk í Hollandi. Jafnóðum og hún tókst á við það sagði hún frá reynslu sinni í formi „storytime” á TikTok og fékk ótrúleg viðbrögð. Hvað er þessi sögustund og hvaða áhrif hefur þetta frásagnarform á sögumanninn?
Umsjón: Snæþór Bjarki Jónsson.

Veðurfregnir kl. 22:05.
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlist frá útsendingarlogg 2024-07-22
Ridout, Timothy, Dupree, Frank - Liebesleid (arr. for viola and piano by Timothy Ridout).
Voces 8 - A pile of dust (Arr. Rimmer).
Sinfóníuhljómsveit Íslands - The Theory of Everything Suite : I. A Model of the Universe.
Sinfóníuhljómsveit Íslands - The Theory of Everything Suite : II. Domestic Pressures.
Sinfóníuhljómsveit Íslands - The Theory of Everything Suite : III. The Origins of Time.
Sinfóníuhljómsveit Íslands - The Theory of Everything Suite : IV. Forces of Attraction.
Sinfóníuhljómsveit Íslands - The Theory of Everything Suite : V. Cambridge 1963.
Melinkov, Alexander, Mahler Chamber Orchestra - Piano Concerto no.2, op.102 in F major : Allegro.
Melinkov, Alexander, Mahler Chamber Orchestra - Piano Concerto no.2, op.102 in F major : Andante.
Melinkov, Alexander, Mahler Chamber Orchestra, Faust, Isabelle - Piano Concerto no.2, op.102 in F major : Allegro.
Sinfóníuhljómsveit Íslands - 16 Vals nr. 2 úr Jazzsvítu nr. 2 úr Eyes Wide Shut.
Andsnes, Leif Ove, Davidsen, Lise - Elegiske digte Op.59 : IV. Til én.
Andsnes, Leif Ove, Davidsen, Lise - 12 Melodier Op.33 : II. Våren.
Andsnes, Leif Ove, Davidsen, Lise - 6 Lieder Op.48 : VI. Ein Traum.
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Um þessar mundir er ein öld liðin frá fæðingu Thors Vllhjálmssonar rithöfundar. Af því tilefni les umsjónarmaður nokkra valda kafla úr skáldverkum Thors sem lýsa orðsnilld hans og innsæi. Í þessum þætti hafa orðið fyrir valinu tvær stuttar frásagnir úr bókinni Maðurinn er alltaf einn, upphafskaflinn úr hinni áhrifamiklu sögu Fljótt fljótt sagði fuglinn, tvær stuttar frásagnir úr Tvílýsi og tvö brot úr verðlaunasögunni Grámosinn glóir.

Útvarpsfréttir.
Umsjón: Atli Már Steinarsson.
Við hugsum sjaldnast um lungun – nema þegar þau bregðast. En samt eru þau okkur bókstaflega lífsnauðsynleg, öndunartakturinn sem heldur okkur gangandi alla ævi. Í þessum þætti ætlum við að beina sjónum að þessari líffæravél sem við öndum í gegnum, frá fyrstu andardrætti til síðasta útöndunar. Ég fékk Ólaf Baldursson til mín, lungnalækni sem hefur fylgst með þróun læknisfræðinnar á þessu sviði og veit hversu miklar breytingar hafa orðið – og hvað framtíðin gæti boðið upp á. Við ræðum byggingu lungnanna, hlutverk þeirra, hvernig við höfum farið með þau í gegnum tíðina og hvað við getum gert til að vernda þau betur.
Meira um Ólaf Baldursson: Ólafur er lyflæknir og lungnalæknir, sem hefur langa reynslu af stjórnunarstörfum, kennslu- og vísindastarfi auk lyfjaþróunar. Grunnvísindaverkefni sem hann hefur tekið þátt í hafa tvisvar leitt til þróunar lyfja. Hann hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra lækninga á Landspítala frá árinu 2009 en hefur verið í leyfi frá henni í þrjú ár. Á þeim tíma hefur hann starfað sem forstöðumaður lungna- og ofnæmislækninga á Karolinska háskólasjúkrahúsinu í Stokkhólmi og við verkefni á vegum heilbrigðisráðuneytisins hér heima, m.a. varðandi framtíðarhorfur mannafla í læknisþjónustu.
Umsjón: Atli Már Steinarsson
Umsjón: Salka Sól Eyfeld.
Lagalisti:
THE VELVET UNDERGROUND & NICO - Sunday Morning.
Helgi Björns og reiðmenn vindanna - Reiðmenn vindanna.
Grímur Helgi Gíslason - Kata knús.
Sigrún Hjálmtýsdóttir - Ég býð þér upp í dans.
Vilhjálmur Vilhjálmsson - Í faðmi þér.
Ragnar Bjarnason - Ég býð þér upp í dans.
Gunnar Þórðarson Tónlistarmaður, Lummurnar - Kenndu mér að kyssa rétt.
BJARTMAR GUÐLAUGSSON - Hippinn.
THE BEATLES - Hold Me Tight [Stereo].
Fleetwood Mac - Hold me.
MUGISON - Gúanó stelpan.
Motion boys - Hold me closer.
Weather report - Birdland (mp3).
Haukur Morthens, Hljómsveit Hauks Morthens - Í faðmi dalsins.
Jorge, Seu - Burguesinha.
HJÁLMAR - Leiðin okkar allra.
PAUL McCARTNEY - Jenny Wren.
Kings of Convenience - I'd rather dance with you (radio mix).
THE DOORS - Touch Me.
Nick Cave - Into My Arms.
VILHJÁLMUR VILHJÁLMSSON - Lítill Drengur.
200.000 NAGLBÍTAR - Brjótum Það Sem Brotnar.
SÍÐAN SKEIN SÓL - Vertu Þú Sjálfur.
MARY HOPKIN - Those Were The Days.
Freyr Eyjólfsson mætir með kaffibollann sinn og grúskar í allskonar tónlist frá ýmsum tímum.
Við vöknum á sunnudegi, það er verslunarmannahelgi; við förum út og föðmum tré, hleypum apanum úr búrinu og gleðihormónin flæða af stað.
VALDIMAR & MAGNÚS EIRÍKSSON - Apinn í búrinu (Hljómskálinn).
JET BLACK JOE - I, You, We.
John Lennon - #9 Dream.
DÚKKULÍSURNAR - Sumarlag.
TOM WAITS - Ol' 55.
TOM WAITS - Frank's Wild Years.
LES NEGRESSES VERTES - Voila L'ete.
Radiohead - No Surprises.
RICKY NELSON - Lonesome Town.
DAVID BOWIE - Lady Stardust.
Supergrass - Coffee in the pot.
TRÚBROT - To Be Grateful.
GUS GUS - Polyesterday.
Kevin Morby - Beautiful Strangers
NÝ DÖNSK - Fram á nótt.
SUGARCUBES - Motorcycle Mama.
Útvarpsfréttir.
Stúlka sem lést eftir að hafa farið í sjóinn við Reynisfjöru í gær var níu ára, frá Þýskalandi. Þyrla Landhelgisgæslunnar fann hana í sjónum um tveimur klukkustundum eftir að tilkynning barst.
Hamas-samtökin hafna því að þau séu tilbúin að leggja niður vopn. Starfsmenn Rauða hálfmánans í Palestínu segja að höfuðstöðvar samtakanna á Gaza hafi verið eyðilagðar í árásum Ísraelshers í nótt.
Hitabylgjur í Evrópu hafa leitt til þess að íbúar nota loftkælingu mun meira en áður. Þetta hefur hækkað orkuverð og skapað álag á dreifikerfi.
Mikil stemning var á Þjóðhátíð í nótt og veður mun skárra en á föstudag. Hátíðarhöld gengu heilt yfir vel á landinu en nokkuð var um minni háttar líkamsárásir í gær.
Ísland er í tíunda sæti á lista yfir þau vegabréf sem veita greiðastan aðgang að öðrum löndum heims.
Heiðlóa verpti í Surtsey í ár í fyrsta sinn síðan 2009. Fjöldi fuglategunda sem verpir í eynni er með mesta móti í ár.
Friðrik Ómar Hjörleifsson er húsvörður í Félagsheimilinu á Rás 2 alla sunnudaga í sumar að loknum hádegisfréttum.
"Við loftum út úr Félagsheimilinu í sumar, hellum upp á kaffi, tökum spjallið og spilum dúndur tónlist. Landsmenn eru vanalega duglegir að láta í sér heyra hvort sem það eru bændur úti á túni eða eða fólk á ferðinni vítt og breitt um landið. Félagsheimilið er öllum opið frá kl. 12:40 til fjegur" eins og Friðrik Ómar segir.
Fastir liðir verða á sínum stað: Gestur þáttarins, lagaþrennan, tímaflakkið og skemmtilegasta tónlistin í bænum!
Félagsheimilið var að þessu sinni sent út í beinni frá Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Auðunn Blöndal og Steindi Jr. mættu í skemmtilegt spjall en þeir tilkynntu á dögunum að þetta yrði þeirra síðasta framkoma á hátíðinni í bili. Lagaþrennan var á sínum stað þar sem hlustendur völdu besta Eyjalagið.
Tónlist:
Skítamórall - Þú veist hvað ég meina mær.
STUÐMENN - Popplag Í G Dúr.
STJÓRNIN - Ég Lifi Í Voninni.
Start - Seinna meir.
PLÁHNETAN ÁSAMT EMILIÖNU TORRINI - Sæla.
Sniglabandið - Á nálum.
SKÍTAMÓRALL - Myndir.
Mannakorn - Reyndu aftur.
Lúdó sextett, Stefán Jónsson - Halló Akureyri = Kansas City.
Elly Vilhjálms - Ég veit þú kemur.
FJALLABRÆÐUR, SVERRIR BERGMANN & LÚÐRASVEIT VESTMANNAEYJA - Þar sem hjartað slær (Þjóðhátíðarlagið 2012).
HREIMUR, MAGNI, BERGSVEINN OG GRETTISKÓRINN, HREIMUR, MAGNI, BERGSVEINN OG GRETTISKÓRINN - Lífið er yndislegt.
SÁLIN HANS JÓNS MÍNS - Brostið Hjarta.
SÚ ELLEN - Kona.
EINAR ÁGÚST & TELMA - Tell me!.
ALBATROSS - Ég ætla að skemmta mér.
Guðmundur Ingi Þorvaldsson - Nýársball í Logalandi.
Ólafur Þórarinsson - Undir bláhimni.
Andrea Gylfadóttir, Sniglabandið - Silungurinn.
Stuðlabandið - Við eldana.
Í SVÖRTUM FÖTUM - Nakinn.

Viktoría Blöndal veltir fyrir sér upphafi og endalokum tónlistarhátíðarinnar Uxa sem haldin var á Kirkjubæjarklaustri fyrir 30 árum.
2.þáttur
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson
Rokkland er 30 ára í ár og af því tilefni erum við að endurflytja nokkra vel valda gamla þætti á Rokklands-tímanum í sumar.
Rokkland dagsins er endurflutt frá 8. júní 2008 og þetta er Bítlaþáttur. Í helstu hluverkum eru Paul Mccartney, Liverpool, Hljómar frá Keflavík, og 100 Íslendingar sem smelltu sér í bítla-pílagrímsferð til Bítla-borgarinnar undir dyggri fararstjórn Jakobs Frímanns Magnússonar Stuðmanns, þáverandi miðborgarstjóra Reykjavíkur og formanns FTT sem stóð fyrir ferðinni.
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum er stærsta tónlistarhátíð landsins. En það eru kannski ekki allir sem líta á hana sem slíka. Í þessum þáttum er fjallað um áhrif hátíðarinnar á íslenska tónlist og um þessa vinsælu hátíð sem tónlistarhátíð.
Viðtölin voru tekin upp árið 2024 þegar hátíðin varð 150 ára.
Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.
Viðtöl við tónlistarfólk sem kom fram á sunnudagskvöldinu á Þjóðhátíð 2024 auk þess að ræða við heimafólk og aðra um hátíðina.
Fram koma m.a.
- Sverrir Bergmann
- Marínó Geir Lilliendahl
- Ragga Gísla
- Magnús Kjartan Eyjólfsson
- Klara Elias
- Jóhanna Guðrún
- Halldór Gunnar Pálsson
- Birgir Nielsen
- Guðjón Erik Óskarsson

Fréttastofa RÚV.
Heiða Eiríks og Ingi Þór stjórna Næturvaktinni til skiptis. Þau spjalla við landann og spilar tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.
Við héldum áfram sama takti og kvöldið áður. Stuð. stemmnig og kósíheit.
Tónlist þáttarins:
PÁLMI GUNNARSSON - Hvers vegna varst'ekki kyrr?.
Jakob Frímann Magnússon - Bein leið.
Raggi Bjarna - Flottur Jakki.
DAÐI FREYR & GAGNAMAGNIÐ - Hvað með það?.
GEIRMUNDUR VALTÝSSON OG EYJÓLFUR KRISTJÁNSSON - Þjóðhátið í Eyjum.
Álftagerðisbræður - Undir dalanna sól.
MÖTLEY CRUE - Dr. Feelgood.
THE BRAXTONS - The Boss.
SLÉTTUÚLFARNIR - Sönn Ást.
CHRIS REA - The Road To Hell.
EMMSJÉ GAUTI - Þúsund hjörtu.
RAMMSTEIN - Angst.
PÁLL ÓSKAR & UNUN - Ástin dugir.
EARTH WIND & FIRE - September.
BG og Ingibjörg, BG og Ingibjörg - Sólskinsdagur.
EUROPE - The Final Countdown.
Gylfi Ægisson - Minning um mann.
Fjallabræður - Það vex eitt blóm fyrir vestan.
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON - Sönn Ást.
Domino, Fats - Be my guest.
ELTON JOHN - Tiny Dancer.