06:50
Morgunútvarpið
Brennisteinsfjöll skjálfa, tónlistarbransinn, mannfjöldaspá, Alþjóðadómstóllinn og Olympíuleikar matreiðslumeistara.
Morgunútvarpið

Um helgina gekk yfir skjálftahrina með nokkrum skjálftum um og yfir þremur að stærð suðaust­ur af höfuðborg­ar­svæðinu, norðvest­ur af Bláfjöll­um, í svokölluðum Húsfellsbruna. Ármann Höskuldsson, prófessor í eldfjallafræði fór í saumana á því hvað má lesa í skjálftana og hvað við vitum um kerfið þar undir.

Íslenskt tónlistarfólk skapar, gefur út og nemur lönd. Þessari miklu grósku fylgir líka fjölgun starfa í tónlistarbransanum og þar er það fólkið bak við tjöldin sem lætur hlutina gerast. Anna Jóna Dungal tónlistarbransaráðgjafi og eigandi OK AGENCY fór yfir þetta með okkur en hún undirbýr nú námskeið um efnið.

Sigurður Árnason sérfræðingur hjá Byggðastofnun fór yfir mannfjöldaspá stofnunarinnar en Íslendingum fjölgar hratt.

Kári Hólmar Ragnarsson lektor við Lagadeild HÍ kom til okkar og ræddi niðurstöðu Alþjóðadómstólsins í Haag í máli Suður- Afríku gegn Ísrael fyrir brot á alþjóðalögum um þjóðarmorð.

Evu Björk Benediktsdóttur íþróttafréttamaður ræddi helstu tíðindi úr íþróttaheiminum.

Þórir Erlingsson forseti klúbbs matreiðslumeistara kíkti til okkar í spjall og sagði okkur frá Olympíuleikum í matreiðslu .

Tónlist:

Mannakorn - Ef þú ert mér hjá.

Zach Bryan og Kacey Musgraves - I remember everything.

Stevie Wonder - Pastime paradise.

Axel Flóvent - When the sun goes down.

David Bowie - Let's dance.

Bubbi Morthens - Ennþá er tími.

Richard Hawley - Seek it.

Elton John - Crocodile rock.

Daði Freyr - Thank you.

Er aðgengilegt til 28. janúar 2025.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,