
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Varnar- og öryggismál Íslands voru til umfjöllunar þegar Kristinn Árni Lár Hróbjartsson, forstöðumaður Vörðu hugveitu, kom á Morgunvaktina. Tvíhliða varnaræfingin Norður-Víkingur, uppbygging varnarinnviða hér á landi og umræða um varnar- og öryggismál í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðsluna á laugardag voru rædd.
Björn Malmquist fréttamaður var á sínum stað. Hann ræddi við Kjetil B. Alstadheim, pólitískan ritstjóra á Aftenposten, um þjóðaratkvæðagreiðsluna. Að ýmsu leyti er umræðan um hana kunnugleg frá því sem var í Noregi, en talsverður munur er t.d. varðandi EES-samninginn. Björn ræddi líka við Hjört Smárason, sem var ferðamálastjóri á Grænlandi, og lýsti því sem Bandaríkjamenn aðhafast nú á Grænlandi. Það veldur mörgum heimamönnum áhyggjum.
Í síðasta hluta þáttarins var talað um húsnæðismarkaðinn. Jónas Atli Gunnarsson, yfirhagfræðingur hjá HMS, Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, sagði áfram merki um kólnun, en hún væri nokkuð hægfara og ekkert hrun.
Tónlist:
Ragnheiður Gröndal - Ég þakka.
Los Bomboneros y sus bombasticos, Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir - Hjarta mitt.
David Bowie - Life on Mars.

07:30

08:30

Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.

Morgunleikfimi með Halldóru Björnsdóttur.


Veðurstofa Íslands.

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Leikin eru allskonar lög þar sem sungið er um rigninuna og það sem henni fylgir. Grafík flytur lagið Húsið og ég, Bjarni Guðmundsson flytur lag sem hann samdi við ljóðið Velkomin rigning eftir Guðmund Inga Kristjánsson, Ari Jónsson syngur lag sem heitir Rigning, Haukur Hauksson syngur lagið Í roki og regni, Langi Seli og Skuggarnir flytja lagið Rigning og rok,. Selma Björnsdóttir syngur lag sem heitir Taktu mig með, Mannakorn flytja Regnblús, KK syngur Rigning og súld, Mánar flytja lagið Haustregn og Jón Jónsson slær botninn með laginu Rignir endalaust. Umsjón: Jónatan Garðarsson.


Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Dánarfregnir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Þularkynnt tónlist

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Umsjónarfólk segir frá tímabili í ævi sinni og leikur tónlist sem endurspeglar tímann eða atburði sem sagt er frá.
Umsjón með Hljóðrás ævi minnar hefur Pétur Þorsteinsson.

Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Liebesleid eftir Fritz Kreisler, í útsetningu fyrir víólu og píanó eftir Timothy Ridout. Timothy Ridout leikur á víólu og Frank Dupree á píanó.
Þrjú lög eftir Toru Takemitsu:
Shima e, við texta eftir Mitsuru Isawa.
Chiisana sora, við texta eftir Toru Takemitsu.
Shinda otoko no nokoshita mono ha, við texta eftir Shuntaro Tanikawa.
Flytjendur eru Dominique Visse kontratenór og François Couturier píanóleikari.
Útg. 2007
Rammislagur, eftir Atla Heimi Sveinsson við ljóð eftir Stephan G. Stephansson. Ágúst Ólafsson syngur og Anna Guðný Guðmundsdóttir leikur á píanó. Hljóðritað í salnum í Kópavogi í júní 2018.
Noktrúrna nr. 4 í A-dúr, H. 36 eftir John Field. Alice Sara Ott leikur á píanó. Hljóðritað 2024, útgefið 2025.
A pile of dust eftir eftir Jóhann Jóhannsson. Air Lyndhurst-strengjasveitin leikur. Stjórnandi er Athony Weeden.
Þrjú sönglög eftir Gabriel Fauré:
Pavane op. 50
En sourdine op. 58 no. 2
Le voyageur op. 18 no. 2
Flytjendur eru Brian Asawa kontratenór og hljómsveitin Academy of St. Martini n the Fields. Stjórnandi er Neville Marriner.
Útgefið 1998.
M'appari tutt'amor, aría úr óperunni Martha eftir Friedrich von Flotow. Textann samdi Friedrich Wilhelm Riese. Þýðandi er Achille de Lauzières. Jussi Björling tenór syngur, og Nils Grevillius stjórnar ónafngreindri hljómsveit sem leikur með. Hljóðritað 1939.
Flower, úr Two poems of Balmont K013 eftir Ígor Stravínskíj. Ljóðið orti Alexandra Heath. Barbara Hannigan sópran stjórnar og syngur með Skólahljómsveitum Juilliard-tónlistarháskólans og Konunglega tónlistarháskólans í Lundúnum.

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Það er nánast alveg sama hvar leitað er í vestrænni bókmenntasögu, alltaf er von á því að mæta Ódysseifi í einhverri mynd, gríska kappanum, konungi Íþöku, sem hraktist um miðjarðarhafið í 10 ár á leið sinni heim eftir jafnlangt stríð við Trójumenn. Persónur, guðir og goðsagnir úr þessum elstu bókmenntatextum vesturlanda hafa vakið undrun og innblástur um aldir en líklega enginn eins og Ódysseifur, sem er ekki aðeins að finna í Ódysseifskviðu þar sem hann er söguhetjan og Illíonskviðu þar sem hann leikur líka stórt hlutverk heldur er hann goðsögn sem dúkkar upp reglulega í bókmenntasögunni, stundum í yfirfærðri merkingu og sagan um heimferð hans hefur orðið einskonar skapalón fyrir hetju- og heimferðasögur. Ódysseifur hefur orðið tákn flökkuhetjunnar sem leitar heimilis síns og hann hefur verið túlkaður á ótal vegu í takt við tíðarandann hverju sinni. Ódysseifur er menningartákn nánast eins og það sem í dag kallast jarm eða meme, hugmynd eða tákn sem berst milli manna og þvert á menningarheima. Alltaf á leiðinni heim. En virðist aldrei takast það. Hver er þessi flókni maður, bragðarefurinn, hinn ráðagóði Ódysseifur. Af hverju er hann í sífelldri aðlögun og endurnýjun?
Viðmælendur: Hjalti Snær Ægisson og Gottskálk Jensson.

Útvarpsfréttir.

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.


Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Hljóðritun frá tónleikum Danska strengjakvartettsins sem fram fóru í Rudolfinum tónleikahúsinu í Prag, 10. júní sl.
Á efnisskrá:
- Le Bois eftir Bryce Dessner.
-Strengjakvartett í F-dúr eftir Maurice Ravel.
-Norræn þjóðlagasyrpa í útsetningum kvartettsins.
Umsjón: Arndís Björk Ásgeirsdóttir.

Umsjónarfólk segir frá tímabili í ævi sinni og leikur tónlist sem endurspeglar tímann eða atburði sem sagt er frá.
Umsjón með Hljóðrás ævi minnar hefur Pétur Þorsteinsson.


Að loknum 4. lestri Völsunga sögu ræðir Ragnheiður Gyða Jónsdóttir við Kristján Bersa Ólafsson um norræna trú og hugsanlegan uppruna hennar og inn í þáttinn er brugðið sjónvarpsupptöku þar sem Jón Helgason segir sögu af sér og Óðni (13,30 mín.)
Frumflutt 25.03.1993


frá Veðurstofu Íslands

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Útvarpsfréttir.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

07:30

08:30

Létt spjall og lögin við vinnuna.



Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Útvarpsfréttir.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.



Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.


Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Léttir tónar óma úr eldhúsinu.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.


Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.
Los Bomboneros y sus bombasticos eru mætt með stórsveitarplötu þar sem 20 hljóðfæraleikarar endurgera tónsmíðar Tómasar R. Einarssonar, eins reyndasta latín-djasstónlistarmanns Íslands. Tómas gaf hljómsveitinni frjálsar hendur til að velja og útsetja úr fjörutíu ára safni sínu, kynslóð sem er 30–40 árum yngri fékk að gera lögin "á sínum forsendum." Sigrún Kristbjörg, Daníel Helgason og Tómas sjálfur ræða hvernig verkefnið varð til, hvað skilur að tónskáld og útsetjara, og hvernig gömul hugarfóstur Tómasar sprungu út á nýjan hátt fyrir framan fullt hús í Salnum.

Tónlist að hætti hússins.