Útvarpsfréttir.
Séra Ágúst Sigurðsson frá Möðruvöllum ræðir í þessum þáttum við konur sem bjuggju á prestssetrum víðs vegar um landið á síðustu öld. Í viðtölum við konurnar sem flestar eru ekkjur presta, kemur fram mynd af íslenska dreifbýlinu um miðja 20. Öldina. Hægt er að nálgast þættina á hlaðvarpi Ríkisútvarpsins.
Rætt er við við Rósu B Blöndals, skáldkonu og prestsekkju um árin á Stað í Steingrímsfirði.
Umsjón: Ágúst Sigurðsson frá Möðruvöllum.
Aðstoð við dagskrárgerð Ævar Kjartansson.
Stef þáttarins er Sælir eru þeir eftir Inga T. Lárusson, leikið af Kristínu Axelsdóttur í Grímstungu á Hólsfjöllum.
Sigurður Ægisson fjallar um fugla.
(Áður á dagskrá 1991)
Fugl vikunnar er Stokkönd.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Fólk og menning í strandbyggðum á Íslandi.
Umsjón: Pétur Halldórsson.
Rætt er við Odd Skúlason, sjómann á Þórshöfn. Oddur byrjaði á sjó sextán ára gamall og hefur stundað sjómennsku síðan. Hann er í lausamennsku og tekur þau pláss sem bjóðast. Áður fyrr var hann á vertíðum meðan sú menning var við lýði. Rætt er um líf sjómannsins og breytingar þennan aldarfjórðung sem Oddur hefur stundað sjóinn. Einnig er rætt um ástand mála á Þórshöfn. Þar er hugur í fólki og byggðin hefur staðið sterk síðustu árin. Einnig er rætt stuttlega við Agnar Vilhjálmsson, aldinn sjómann á Þórshöfn, sem einnig stundaði sjóinn alla sína starfsævi, byrjaði snemma, fór á vertíð síðla vetrar en reri frá Þórshöfn á sumrin og fram eftir hausti.
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Hver var fyrsta íslenska minningargreinin? Af hverju skrifa Íslendingar svona persónulega um látið fólk? Eiga greinarnar að vera í 2. eða 3. persónu? Hver skrifar? Um hvern? Má tala um sjálfsvíg? Hvaða áhrif hafa samfélagsmiðlar? Eru minningargreinar Moggans í lífshættu? Verða minningargreinar - einn daginn - minningar einar?
Umsjón: Anna Marsibil Clausen.
„Elsku strákurinn minn, loksins get ég sett mig í sporin þín. Sársaukinn við að missa þig er óbærilegur, alveg eins og sársaukinn þinn síðustu mánuðina. Eini munurinn: hugurinn minn er frískur og ég veit þetta verður ekki alltaf svona. Annars myndi ég líka velja hvíldina.“
Svona hefst minningargrein Evu Skarpaas um son hennar, Gabríel Jaylon Skarpaas Culver. Í þætti dagsins heyrum við sögu Gabríels og söguna af því hvernig Eva skrifaði minningargreinina hans.
Guðsþjónusta.
Séra Sigríður Kristín Helgadóttir þjónar fyrir altari.
Séra Elína Hrund Kristjánsdóttir predikar.
Kór Odda- og Þykkvabæjarkirkju og Kirkjukórar Breiðabólstaðarprestakalls syngja.
Stjórnandi: Guðjón Halldór Óskarsson.
Lilja Guðnadóttir les upphafs- og lokabæn.
Ritningarlestrar: Séra Sigríður Kristín Helgadóttir.
Fyrir predikun:
Forspil: Prelúdía í e moll eftir Johann Sebastian Bach.
Sálmur 219: Ljúkið upp mig langar innar. Lag: Joachim Neander. Texti: Jón Ragnarsson þýddi.
Sálmur 290: Miskunnarbæn. Lag frá Úkraínu. Texti: Matteus 9.27.
Sálmur 270: Dýrð þér, dýrð þér. Lag: Pablo Sosa. Texti: Kristján Valur Ingólfsson þýddi.
Með bæninni kemur ljósið. Lag: Írskt þjóðlag. Texti: Páll Óskar Hjálmtýsson og Brynhildur Björnsdóttir.
Sálmur 474: Lofsyngið Drottni. Lag: Georg Friedrich Händel. Texti: Valdemar V. Snævarr.
Sálmur 752: Þótt vindar blási veröld í. Lag: Björn Jakobsson. Texti: Sigurjón Guðjónsson.
Eftir predikun:
Ave María. Lag: Hans Nyberg.
Sálmur 287: Þinn vilji Guðs. Lag: Patrick Matsikenyiri. Texti: Kristján Valur Ingólfsson.
Faðir vor. Lag: Jón Ásgeirsson.
Drottinn blessi þig. Texti: Fjórða Mósebók.
Sálmur 716: Draumanna höfgi dvín. Lag: Ron Klusmeier. Texti: Eygló Eyjólfsdóttir.
Eftirspil: Grand Jeu úr Hymne en La Mineur eftir Josse Francois Joseph Benaut.
Íslenskt lag eða tónverk.
Útvarpsfréttir.
Þátturinn er í umsjón hjónanna Guðbjargar Gissurardóttur og Jóns Árnasonar, en þau hafa sett sér það markmið að koma sér upp lífrænum matjurtagarði í sælureit sínum í Kjós. Þau hafa enga reynslu, né hugmynd um hvernig þau eiga að koma slíku verki í framkvæmd. En til að afla sér þekkingar fara þau á stúfana og hitta sérfræðinga og vana leikmenn á sviði matjurtaræktunar til að fá ráðleggingar og hugmyndir sem munu vonandi skila þeim og hlustendum góðri uppskeru í lok sumars. Einnig munu þau hafa uppi á fólki sem er að gera óvenjulega hluti á þessu sviði, auk þess að taka fyrir matreiðslu grænmetis, nýtingu villijurta o.m.fl. Í Boði náttúrunnar fjallar um ferðalag þeirra hjóna og verður hlustendum vonandi innblástur og hvatning til að rækta sitt eigið grænmeti, hvort sem það er úti í garði, uppi í sumarbústað, á svölunum eða úti í glugga. (Áður á dagskrá 2009)
Í þessum þætti hitta þáttastjórnendur Auði I. Ottesen garðyrkjufræðing á kvöldgöngu útí Viðey þar sem hún talar yfir hópi fólks um sögu matjurtarræktunar á íslandi og á eyjunni sjálfri. Hún fær einnig aðstoð hópsins við að setja niður kartöflur í gamla garðinum hanns Skúla fógeta. Í þættinum verður einnig farið yfir þau atriði sem hafa þarf í huga varðandi matjurtarækt í sumarhúsalandinu og verða hjónin og matgæðingarnir Valentína Björnsdóttir og Karl Eiríksson heimsótt í sumarbústaðinn þeirra í Grímsnesi. Síðasti áfangastaðurinn er Skammidalur, elsti nytjagarður Reykjavíkurborgar. En þar voru tekin tali nokkrir gamalgrónir ræktendur og eigendur smáhýsa í dalnum.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Úrval úr Lestarþáttum vikunnar.
Útvarpsfréttir.
Hljóðritanir frá tónleikum á Listahátíð 2024.
Hljóðritun frá tónleikum pólsk-úkraínsku þjóðlagasveitarinnar DAGADANA sem fram fóru í Norðurljósum, Hörpu 2. júní s.l.
DAGADANA kafar ofan í pólska og úkraínska menningu og vefur slavneska þjóðlagatónlist saman við allar mögulegar tónlistarstefnur.
Sérstakir gestir á tónleikunum eru Háskólakórinn undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar og Chris Foster sem leikur á langspil.
Kvöldfréttir útvarps
Birgir Þór Helgason vélstjóri var boðaður á leynilegan fund haustið 1986. Fund sem markaði upphaf háskafarar um heimsins höf. Birgir hefur reynt ýmislegt um ævina og í þessum þætti heyrum við meðal annars af smygli og sjóskaða.
Viðmælendur í þættinum eru Birgir Þór Helgason, Brynjólfur Karlsson og Jónas Hall.
Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.
Framleiðandi: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.
Veðurstofa Íslands.
Stiklað á stóru í sögu kvenna frá 1874 fram á 21. öld. Sögulegir viðburðir eru rifjaðir upp, gluggað í ýmsar heimildir, ævisögur og viðtöl og ljósi varpað á veröld kvenna fyrr og nú. Tónlist í þættinum er flutt af konum. Brot úr sögu íslenskra kvenna.
Umsjón: Anna Melsteð og Gerður Róbertsdóttir.
(Áður á dagskrá 2005)
Í þættinum er stiklað á stóru í sögu kvenna frá 1874 til dagsins í dag. Sögulegir viðburðir eru rifjaðir upp, gluggað í ýmsar heimildir, ævisögur og viðtöl og ljósi varpað á veröld kvenna fyrr og nú. Tónlist í þættinum er flutt af konum.
Í þáttunum eru rifjaðir upp nokkrir atburðir fyrri tíðar hér á landi og settir fram eins og um nútíma fréttir sé að ræða.
Fréttalesarar eru Sigvaldi Júlíusson, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir og Hermann Sveinbjörnsson.
Umsjónarmaður: Jón Gauti Jónsson.
Í þættinum er rifjaðir upp nokkrir atburðir 12. aldar í anda hefðbundins fréttatíma.
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Árni Kristjánsson leikur á píanó, Lento úr Prelúdíum op. 28 nr. 4 í e-moll eftir Frédréric Chopin
Ástríður Alda Sigurðardóttir leikur á píanó, Ballöðu nr. 2 op. 38 í F-dúr eftir Frédéric Chopin.
Jórunn Viðar leikur á píanó, Svipmyndir fyrir píanó eftir Pál Ísólfsson. Hljóðritun frá 1966. Verkið er í ellefu þáttum:
1 Intrada
2 Invention
3 Lítill vals
4 Menúett
5 Einu sinni var
6 Romaze
7 Sálmaforleikur
8 Mazurka
9 Impromptu
10 Sálmaforleikur
11 Ballata
Emerson kvartettinn ásamt Barböru Hannigan flytja þætti úr Strengjakvartett nr. 2 í Fís moll op. 10 eftir Arnold Schönberg. Þættirnir eru:
I Mässig
III Litanei (Langsam)
Spilmenn Ríkínís syngja Vorvísu, þjóðlag sungið við þrjú erindi úr kvæði eftir Hóras. Benedikt Gröndal þýddi.
Tónlist frá útsendingarlogg 2024-06-10
Árni Kristjánsson - Prelúdíur op.28 : nr. 4 í e-moll: Lento.
Ástríður Alda Sigurðardóttir - Ballaða nr. 2 op. 38 í F-dúr.
Jórunn Viðar - Svipmyndir fyrir píanó : 1. Intrada.
Jórunn Viðar - Svipmyndir fyrir píanó : 2. Invention.
Jórunn Viðar - Svipmyndir fyrir píanó : 3. Lítill vals.
Jórunn Viðar - Svipmyndir fyrir píanó : 4. Menúett.
Jórunn Viðar - Svipmyndir fyrir píanó : 5. Einu sinni var.
Jórunn Viðar - Svipmyndir fyrir píanó : 6. Romanze.
Jórunn Viðar - Svipmyndir fyrir píanó : 7. Sálmforleikur.
Jórunn Viðar - Svipmyndir fyrir píanó : 8. Mazurka.
Jórunn Viðar - Svipmyndir fyrir píanó : 9. Impromptu.
Jórunn Viðar - Svipmyndir fyrir píanó : 10. Sálmforleikur.
Jórunn Viðar - Svipmyndir fyrir píanó : 11. Ballata.
Emerson String Quartet - String quartet no.2 in F sharp Minor, op.10 : I. Mässig.
Hannigan, Barbara, Emerson String Quartet - String quartet no.2 in F sharp Minor, op.10 : III. Litanei (Langsam).
Spilmenn Ríkínís - Vorvísa.
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Framhald af fyrri þætti. Nadezhda Durova fæddist í Rússland laust fyrir 1800. Hún þráði ekkert meira en stunda útreiðar og hernað en móðir hennar var ákveðin í að þvinga hana í hefðbundið mynstur ungra stúlkna með tilheyrandi ófrelsi og kúgun. En þótt það væri freistandi að láta undan urðu kröfur móður hennar að lokum til þess að Nadezhda greip til örþrifaráða eins og hún segir frá í sjálfsævisögu sinni.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Jón eigrar um akra tónlistarinnar, léttstígur og viljugur með skemmtilega fróðleiksmola í farteskinu.
Íslensk tónlist spilar yfirleitt stórt hlutverk. Þægilegur og laufléttur morgunþáttur í umsjón frumherja Rásar 2.
Umsjón: Jón Ólafsson
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Í þessum þáttum mun Viktoría Blöndal fara yfir dansgólf sveitaballana í kringum aldamótin. Sviti, djamm, glimmer, grátur, stemning, tónlistin sem þið hélduð að þið væruð búin að gleyma. Viktoría mun leiða hlustendur um víðan völl, um allt land og í misdjúpa dali tímans með hjálp viðmælenda sinna.
Tíska þessa tíma var mögnuð en á sama tíma algjör hörmung. Það er þetta með tímann og endurvinnsluna og hringrásinni, allt kemur í andlitið á okkur aftur. Andrúmsloft þessa tíma var rafmagnað því einhvern vegin var alheimurinn á hvolfi en böllinn voru hverja helgi og maður lét sig ekki vanta með kaptein í kók og woody´s í flösku.
Útvarpsfréttir.
Friðrik Ómar Hjörleifsson hefur tekið við lyklavöldunum og má búast við að hann herði reglurnar innanhúss til muna. „Ég mun auðvitað sakna Sigga míns en tek glaður við húsvarðarstarfinu því ég sakna jafnvel enn meira að vera í sambandi við fólkið í landinu, spila hressandi tónlist og sleppa öllum leiðindum. Ég vil samt enga hlustendur sem eru í átaki eða megrun. Hér eru bara brauðtertur og uppáhellingur upp um alla veggi.” segir Friðrik Ómar.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum. Í þáttunum er eitt ár í íslenskri dægurlagtónlistarasögu tekið fyrir í einu frá árinu 1980 til 2020. Umsjónarmenn: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
Ásgeir Trausti brýtur blað í íslenskri tónlistarsögu, Raggi Bjarna týnir tímanum með Lay Low, Lára Rúnars sendir frá sér sína fjórðu sólóplötu og Obja Rasta lofar gjafir jarðar. Steed Lord hefur nóg fyrir stafni vestanhafs, Gréta og Jónsi fara í Eurovision, Biggi Hilmars fær heimþrá, Retrobot ber sigur úr býtum í Músíktilraunum og Valdimar bíður eftir skömminni. Hjaltalín greiðir úr flækju, Jónas Sigurðsson leitar til æskuslóðanna, Pétur Ben fer nýjar leiðir við fjármögnun, Sometime býr til stuttmynd, plötu og þrívíddarskúlptúr en það er norðanátt hjá Magnúsi og Jóhanni.
Í þáttunum, Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum, eru helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu.
Meðal viðmælenda í fyrsta hluta umfjöllunar um íslenska tónlistarárið 2012 eru Guðmundur Kristinn Jónsson, Ásgeir Trausti Einarsson, María Rut Reynisdóttir, Bjartmar Guðlaugsson, Lára Rúnarsdóttir, Teitur Magnússon, Arnljótur Sigurðsson, Gylfi Sigurðsson, Einar Egilsson, Eðvarð Egilsson, Birgir Hilmarsson, Steinþór Helgi Arnsteinsson, Högni Egilsson, Guðmundur Óskar Guðmundsson, Jónas Sigurðsson, Pétur Þór Benediktsson, Ingi Rafn Sigurðsson, Valdimar Guðmundsson, Ásgeir Aðalsteinsson, Ingó Geirdal,, Magnús Þór Sigmundsson og Jóhann Helgason.
Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
Lagalisti:
Ásgeir Trausti - Sumargestur
Ásgeir Trausti - Leyndarmál
Ásgeir Trausti - Dýrð í dauðaþögn
Ásgeir Trausti - Nýfallið regn
Ragnar Bjarnason & Jón Jónsson - Froðan
Ragnar Bjarnason & Lay Low - Þannig týnist tíminn
Páll Rósinkrans - Þannig týnist tíminn
Lára Rúnars - Beast
Lára Rúnars - My Heart Don´t Speak
Ojba Rasta - Jolly Good
Ojba Rasta - Baldursbrá
Ojba Rasta - Gjafir jarðar
Steed Lord - Hear Me Now
Skúli mennski - Þessir kossar
Fjallabræður & Sverrir Bergmann - Þar sem hjartað slær
Legend - Sister
Svavar Knútur & Markéta Irglová - Baby Would You Marry Me
Retrobot - Lost
Retrobot - Generation
Retrobot - Electric Wizard
Biggi Hilmars - Now Is The Time
Biggi Hilmars - War Hero
Biggi Hilmars - Home
Hjaltalín - Lucifer/He felt like a Woman
Hjaltalín - Letter To
Hjaltalín - Myself
Hjaltalín - Crack in a Stone
Jónas Sigurðsson & Lúðrasveit Þorlákshafnar - Þyrnigerðið
Jónas Sigurðsson & Lúðrasveit Þorlákshafnar - Fortíðarþrá
Jónas Sigurðsson & Lúðrasveit Þorlákshafnar - Hafið er svart
Pétur Ben - Cold War Baby
Pétur Ben - God’s Lonely Man
Pétur Ben - Yellow Flower
Blár Opal - Stattu upp
Greta Salóme & Jónsi - Mundu eftir mér
Gréta Salóme & Jónsi - Never Forget
Sometime - You & I
Sometime - Mind Repair
Sometime - Decide
Valdimar - Sýn
Valdimar - Beðið eftir skömminni
Valdimar - Yfir borgina
Erla Stefánsdóttir og Póló - Lóan er kominn
Magnús & Jóhann - Þar sem ástin býr
Magnús & Jóhann - Sumir dagar
Magnús & Jóhann - Norðanátt
Útvarpsfréttir.
Kvöldfréttir útvarps
Umsjón: Atli Már Steinarsson.
Umsjón: Andrea Jónsdóttir.
Útvarpsfréttir.
Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.
Platan Litli dauði / Stóri hvellur er öll unnin á Akureyri þar sem Birgir býr nú og starfar sem listamaður og sálfræðingur. Hún er öll unnin í samstarfi við Þorgils Gíslason eða Togga Nolem sem gerði garðinn frægan með Skyttunum og Kött Grá Pjé. Hljóðheimur Bigga og Togga er stökkbreytt nýrómantík níunda áratugarins þar sem þeir sækja innblástur í sveitirnar Bauhaus, Bara-flokkinn, Blondie og Grafík.