Pétur Grétarsson og Vera Illugadóttir hafa ofan af fyrir hlustendum nokkra sumarmorgna
Pétur Grétarsson og Vera Illugadóttir hafa ofan af fyrir hlustendum nokkra sumarmorgna
Jag ger dig min morgon - Fred Åkerström
Ölkærastan - Prins Póló
Ökuljóð - Rússneskt þjóðlag við texta Freysteins Sigurðssonar - Sigfús Pétursson og Karlakórinn Heimir
Í Álftagerði - Björgvin Þ Valdimarsson/Reynir Hjartarson - Álftagerðisbræður
Öræfi - Kjartan Valdemarsson - Stórsveit Reykjavíkur 2024
La salle et la terrasse - Charles Aznavour
Kristín Jónsdóttir í París. Eldar, Tour de France kvenna o.fl
You make me feel so young - Myrow/Gordon - Frank Sinatra og Charles Aznavour
Ljóð dagsins - Lárus Pálsson les Heimþrá eftir Jóhann Sigurjónsson
Heimaslóð - Ási í Bæ
Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður hefur verið á ferðinni fyrir Morgungluggann í sumar. Í dag ætlar hann aðeins að velta fyrir sér Evrópumótinu í frjálsíþróttum sem hefst í Birmingham á Englandi á mánudag, en þar mun Ísland eiga átta keppendur.
Þorkell ræðir við Sigurbjörn Árna Arngrímsson.
Vesti la giubba = farðu í búninginn!
Hinsegin þjóðbúningar. Anna Karen Unnsteins þjóðfræðingur.
https://www.facebook.com/events/992977480169235
Flökkusaga ferðalangs - Megas - Magga Stína
Við saman - Gunnar Þórðarson/Þorsteinn Eggertsson - Hljómar

07:30

08:30
Ár er liðið frá innrás Rússa í Úkraínu. Hvernig tölum við um Rússland og hinn slavneska heim í kjölfar þessara voveiflegu atburða? Eigum við að slaufa rússneskri menningu eða þvert á móti faðma hana að okkur fastar en nokkru sinni fyrr í von um að ná áttum í heimi sem stendur á krossgötum? Kaldastríðsbarn og lúsugur Rússlandsfari kafar ofan í þessar hábölvuðu spurningar með hjálp sérfróðra.
Umsjón: Gunnar Þorri Pétursson.
Í fimmta þætti RÚS fjallar Gunnar Þorri Pétursson um bók Guðrúnar Finnbogadóttur, Til heljar og heim - þrjú ár í Rússlandi, frá árinu 1994. Lessri ásamt umsjónarmanni er Guðrún Gísladóttir. Guðni Tómasson veitti aðstoð við dagskrárgerð og samsetningu.
Rús - þættir um þjóð og menningu á krossgötum
Ár er liðið frá innrás Rússa í Úkraínu. Hvernig tölum við um Rússland og hinn slavneska heim í kjölfar þessara voveiflegu atburða? Eigum við að slaufa rússneskri menningu eða þvert á móti faðma hana að okkur fastar en nokkru sinni fyrr í von um að ná áttum í heimi sem stendur á krossgötum? Kaldastríðsbarn og lúsugur Rússlandsfari kafar ofan í þessar hábölvuðu spurningar með hjálp sérfróðra.
Umsjón: Gunnar Þorri Pétursson.

Veðurstofa Íslands.
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Í dag reimuðum við á okkur grófbotna gönguskó. Gönguleiðin þvert yfir Ódáðahraun frá Herðubreiðalindum í austri til Svartárkots í Bárðardal í vestri hefur verið nefnd Öskjuvegur. Þetta er alvöru öræfaganga um stærstu samfelldu hraunbreiðu landsins, og leiðin alsett sönnum hálendisperlum. Ferðafélag Akureyrar hefur byggt þessa gönguleið upp og reist þar skála og við ræddum við tvo þaulvana leiðsögumenn, þau Kristínu Irene Valdimarsdóttur sem er nýkomin með hóp úr göngu og Ingvar Teitsson sem leiðsagði á Öskjuveginum um áratuga skeið, þau eiga það sameiginlegt að hafa kynnst svæðinu ung, orðið hugfangin og eru það enn.
Fugl dagsins var auðvitað á dagskrá, auk ljúfra tóna héðan og þaðan.
Tónlist:
Elska þig - Mannakorn og Ellen Kristjánsdóttir / Höf.: Magnús Eiríksson.
A love that will never grow old - Emmylou Harris / Lag: Gustavo Santaolalla, texti: Bernie Taupin.
Starman - David Bowie / Höf.: David Bowie.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Þularkynnt tónlist
Útvarpsfréttir.
Hluta áhafnar Bandero, skips Paul Watson samtakanna, hefur verið vísað úr landi. Skipverjar freista þess að fá endurkomubanni hnekkt.
Misjafnt er hvort hreyfingar sem beita sér í umræðunni um ESB ætla að birta upplýsingar um fjárreiður sínar. Lítið sem ekkert eftirlit er með starfsemi þeirra og fjármögnun.
Fjórtán ára drengur skaut sjö til bana og tuttugu og þrjú særðust í skotárás í framhaldsskóla í Taílandi í morgun. Stjórnvöld heita að efla öryggisgæslu í skólum.
Faðir fatlaðs manns segir það skerðingu á réttindum fatlaðs fólks að Mannréttindastofnun hafi tekið við hlutverki réttindagæslu.
Umhverfis- og orkustofnun hefur veitt Orkubúi Vestfjarða virkjanaleyfi fyrir Kvíslatunguvirkjun. Gert er ráð fyrir að hún verði tekin í gagnið eftir tvö ár.
Sádí-Arabía, Pakistan og Tyrkland skrifuðu í dag undir varnarsamning. Átök Írans og Bandaríkjanna hafa ýtt undir öryggisógnir í Mið-Austurlöndum.
Formaður hverfisráðs Grímseyjar óttast áhrif fyrirhugaðra skerðinga á þjónustu ferjunnar Sæfara næsta vetur.
Annar keppnisdagur Íslandsmótsins í golfi hefst í dag. Elsa Maren Steinarsdóttir leiðir nokkuð óvænt í kvennaflokki.
Illugi Jökulsson gramsar í safnakosti Ríkisútvarpsins.
Steingrímur Matthíasson (1876-1948) var mikilsvirkur læknir á sínum tíma og skrifaði margt um læknisfræði, lýðheilsu og fleira. Í útvarpsþætti frá 1947 fjallar hann um "skrumlyf" sem sumir læknar ávísa þó þeir viti að ekki komi að neinu gagni. Hann fjallar og um skottulækningar af miklum tilþrifum. "Satt og logið, sitt er hvað," nefndist þátturinn.

Veraldarvefur tónlistarinnar. Lagasyrpur héðan og þaðan úr víðri veröld.
Orient club, Faudel - Anti.
Soto, Paco - Bulería de la Esperanza (feat. Israel Fernández & Niño de Los Reyes).
Listafólk frá Venezúela - Coquibacoa.
Alal, Nayim - Dios mío!
Franco & L'Orchestre TP OK Jazz - Kinsiona.
Sangare, Oumou - N'guatu = The straw that grows in the Savannah fields.
Khongorzul, Baterdene - The river Herlen.
Soumano, Hadja - Sosso.
Rimitti, Cheikha - Ouah ya ould bladi.
Gèssèssè, Tlahoun, Police Orchestra - Sema.
Armstrong, Siobhán, Hope, Daniel - Codladh an Oigfhir (Transcr. for Violin and Harp).
Colombiafrica - Zarandia champeta.
Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Þáttur frá 24. september 2017: Í sögum af landi að þessu sinni er fjallað um reynslu. Rætt er við fólk sem hefur margskonar reynslu. Slæma og góða. Hvort sem það er starfsreynsla, reynsla af óhöppum eða mikilli gæfu. Reynslusögur í Sögum af landi, víðsvegar af landinu
Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Nokkrir nemendur í sjötta bekk Menntaskólans í Reykjavík eru samankomnir í einbýlishúsi í fínu hverfi í Vesturbæ Reykjavíkur fyrir 54 árum. Þeir eru að fara að hlusta á nýja plötu sem enginn þeirra hefur heyrt en hefur vakið mikið umtal og hneykslun og jafnvel reiði. Enginn piltanna er sérstaklega róttækur en þeir eru með opinn huga þegar platan er sett á fóninn og 40 mínútum síðar eru þeir heillaðir af frumlegustu tónsmíðum, ljóðum og flutningi sem þeir hafa heyrt á íslenskri plötu. Þessi plata er engu lík.
Umsjónarmaður Vínils vikunnar er Bogi Ágústsson og Mark Eldred er upptökustjóri. Vínillinn er Megas, fyrsta plata Megasar frá 1972. Umsjónarmaðurinn var í hópi piltanna sem voru að hlusta og hefur síðan verið í hópi aðdáenda.
Magnús Þór Jónsson, Megas, var borinn til grafar í síðustu viku. Hann var einn þekktasti listamaður þjóðarinnar en hann vakti fyrst almenna athygli þegar fyrsta plata hans kom út. Því fór fjarri að allir væru jafn heillaðir og menntaskóladrengirnir; í plötudómi var skrifað: „Um músíkina á plötunni er eiginlega ekkert að segja, því þar fyrirfinnst varla nokkur músik“ og enn fremur að Megas væri „ekki söngvari fyrir fimm aura“. Ljóðin sem Megas söng voru ekki minnsta hneykslunarefnið, fjallað er um margar helstu hetjur Íslandssögunnar á óhefðbundinn hátt, svo vægt sé til orða tekið.
En skoðanir hafa breyst frá því að þetta var skrifað. Megas fékk til dæmis verðlaun Jónasar Hallgrímssonar fyrir framlag sitt til íslenskrar tungu. Jónatan Garðarsson skrifaði um safnplötu sem gefin var út í tilefni af sjötugsafmæli Megasar:
„Hann er boðberi illra tíðinda, maðurinn sem yrkir um hluti sem hvískrað er um á bakvið luktar dyr, hluti sem fæstir vilja opinbera. Hann er trúbadúrinn og rokkarinn sem dregur upp myndir af lastabælinu Reykjavík, varpar ljósi á bísalifnað, sýnir okkur betri hliðar undirmálsfólks og snögga bletti betri borgaranna. Hann er sjáandinn sem skoðar söguna í óvenjulegu ljósi. Hann steypir hetjum af stöllum og bregður marglitu ljósi á mannlega breyskleika. Hann fjallar um liðinn tíma og horfna staði nær og fjær. Hann er óróaseggur íslenskrar dægurtónlistar, skáldið sem færir rokkinu dýpt söngljóðsins, maðurinn sem vekur róttæklinga af blundi og sáir frjókornum efasemda í sálir smáborgara.“
Eitt af því sem vakti reiði og hneykslun á fyrstu plötu Megasar var túlkun hans á sögunni, skutullinn hæfði ekki Móbí Dikk, Megas óskar þess að skip Ingólfs Arnarsonar hefði sokkið, Snorri Sturluson slapp við að verða færður á heljarslóð, Jónas Hallgrímsson lá sauðdrukkinn útí hrauni og Jón Sigurðsson gekk einatt nakinn í rauðum slopp um íbúð sína og brúkaði gylltan kopp.
Á plötuumslaginu segir meðal annars:
„Megas fetar troðnar slóðir í sagnarituninni og hefur það að leiðarhnoða eins og aðrir Íslandssöguhöfundar að segja hana eins og honum þykir hún skemmtilegust, en láta gráan veruleikann hvergi trufla frásögnina né deyfa.“
Þessi umdeilda plata var tekin upp í Noregi, í Oslo Tekniske Skole, nema síðasta lagið, „Spáðu í mig“, en það var hljóðritað á samkomu Íslendinga í Osló.
Á A-hlið plötunnar eru þessi lög:
Skutullinn
Um óþarflega fundvísi Ingólfs Arnarsonar
Silfur Egils
Dauði Snorra Sturlusonar
Um grimman dauða Jóns Arasonar
Um skáldið Jónas
Jón Sigurðsson og sjálfstæðisbarátta Íslendinga
Vertu mér samferða inn í blómalandið amma
Á B-hlið plötunnar eru þessi lög:
Þóttú gleymir guði
Gamli Sorrí Gráni
Síðbúinn mansöngur
Ófelía
Heilræðavísur
Um ástir og örlög Eyjólfs bónda
Spáðu í mig.
Hlustendur læðast í kringum menn og málefni í leit að hugljómunum, nýjum sjónarhornum og sögum sem skipta máli.
Umsjónarmaður er Anna Marsibil Clausen.
Í dag fjallar Grár köttur um börn, eða nánar tiltekið hvernig þau verða til. Það ferli á að vera skemmtilegt, allavega svona í upphafi, en þó við eyðum mikilli orku í að koma í veg fyrir barneignir snemma á lífsleiðinni reynist það stundum þrautin þyngri að búa til börn þegar upp er staðið. Í þættinum í dag heyrum við þrjár sögur af ófrjósemisvanda, um drauma sem virðast aldrei ætla að rætast og líkama sem bregðast.

frá Veðurstofu Íslands
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Leikin eru allskonar lög þar sem sumarveðrið, sumarleyfi og ferðalög eru meginstefið. Íris Hólm Jónsdóttir flytur lagið Sumarið er tíminn sem GCD sendur frá sér árið 1993. Marína Ósk Þórólfsdóttir syngur lag Sunnu Gunnlaugs við ljóðið Kvæði ungs manns um sumar eftir Jón úr Vör. Stjórnin flytur lagið Sumar nætur, Upplyfting flytur lagið Sumar og sól og Brunaliðið flytur lag Ragnhildar Gísladóttur sem heitir Landslag. Yfirliðsbræður syngja lagið Sumarfrí og Stefán Karl Stefánsson syngur annað lag með sama heiti. Stuðmenn flytja lagið Ærlegt sumarfrí, Þú og ég syngja lagið Í útilegu og Mannakorn flytja lagið Sumar hvern einasta dag. Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Skáldsaga eftir norska höfundinn Tarjei Vesaas.
Heimir Pálsson þýddi, en lesari er Ingrid Jónsdóttir.
Sagan er samin um 1930. Hún segir frá fólki á býlinu Framnesi. Þar býr Ambos, rekur stóran hestabúgarð og ekur með ferðamenn um héraðið. Svörtu hestarnir hans eru honum kærari en flest annað. Ambros var ekkjumaður og á uppkomin börn, en hefur fyrir skömmu kvænst í annað sinn, ungri konu, Lísu. Þau eiga tvö ung börn, en Lísa er annarar gerðar en Ambros og samlagast ekki lífinu á bænum, yfir hjónabandinu hvílir skuggi sem markar allt fólkið á Framnesi.
Tarjei Vesaas var einn af helstu höfundum Norðmanna á tuttugustu öld. Hann fékk bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir Klakahöllina, sem einnig hefur komið út í íslenskri þýðingu.
Sagan er 18 lestrar.

frá Veðurstofu Íslands
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Í dag reimuðum við á okkur grófbotna gönguskó. Gönguleiðin þvert yfir Ódáðahraun frá Herðubreiðalindum í austri til Svartárkots í Bárðardal í vestri hefur verið nefnd Öskjuvegur. Þetta er alvöru öræfaganga um stærstu samfelldu hraunbreiðu landsins, og leiðin alsett sönnum hálendisperlum. Ferðafélag Akureyrar hefur byggt þessa gönguleið upp og reist þar skála og við ræddum við tvo þaulvana leiðsögumenn, þau Kristínu Irene Valdimarsdóttur sem er nýkomin með hóp úr göngu og Ingvar Teitsson sem leiðsagði á Öskjuveginum um áratuga skeið, þau eiga það sameiginlegt að hafa kynnst svæðinu ung, orðið hugfangin og eru það enn.
Fugl dagsins var auðvitað á dagskrá, auk ljúfra tóna héðan og þaðan.
Tónlist:
Elska þig - Mannakorn og Ellen Kristjánsdóttir / Höf.: Magnús Eiríksson.
A love that will never grow old - Emmylou Harris / Lag: Gustavo Santaolalla, texti: Bernie Taupin.
Starman - David Bowie / Höf.: David Bowie.
Hlustendur læðast í kringum menn og málefni í leit að hugljómunum, nýjum sjónarhornum og sögum sem skipta máli.
Umsjónarmaður er Anna Marsibil Clausen.
Í dag fjallar Grár köttur um börn, eða nánar tiltekið hvernig þau verða til. Það ferli á að vera skemmtilegt, allavega svona í upphafi, en þó við eyðum mikilli orku í að koma í veg fyrir barneignir snemma á lífsleiðinni reynist það stundum þrautin þyngri að búa til börn þegar upp er staðið. Í þættinum í dag heyrum við þrjár sögur af ófrjósemisvanda, um drauma sem virðast aldrei ætla að rætast og líkama sem bregðast.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Við rákum augun í skoðanagrein á Vísi þar sem yfirskriftin var Þegar nýbakaðir foreldrar lenda á vegg. Það er Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir þingkona Flokks fólksins sem skrifaði og fjallar greinin um þá þjónustu sem Fæðingarorlofssjóður veitir nýbökuðum foreldrum. Við heyrðum í Kolbrúnu og ræddum inntak greinarinnar við hana.
Það er líf og fjör í gamla Landsbankahúsinu við Ráðhústorg á Akureyri en þar er hefur Drift EA komið sér fyrir en þau starfa með fyrirtækjum í bænum og fjárfesta í frumkvöðlum. Þau sinna einnig hvers konar viðburða- og námsskeiðahaldi og halda úti hlaðvarpi sem heitir Driftkastið. Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir er framkvæmdastýra Drift EA, frumkvöðull og englafjárfestir og hún sagði okkur betur frá starfseminni.
Það er mikið um að vera á Akureyri þessa helgina en hingað norður er kominn fjöldinn allur af ungum stúlkum til að keppa á N1 mótinu í knattspyrnu. KA og N1 héldu fyrsta N1 mót stúlkna á nýliðnu sumri og framkvæmdin þótti heppnast afar vel og nú á að endurtaka leikinn. Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA heimsótti hljóðstofu RÚV á Akureyri.
Venju samkvæmt á föstudögum förum við yfir það helsta sem verið hefur í fréttum síðustu daga og að þessu sinni fengum við til okkar Amöndu Guðrúnu Bjarnadóttur fréttamann á RUV og Óðin Svan Óðinsson formann bæjarráðs Akureyrarbæjar og fyrrum fréttamann.
Það hefur mikið gengið á í heimi fræga fólksins í vikunni. Stjörnubloggarinn Perez Hilton tók upp á því skaða sjálfan sig í beinni útsendingu á TikTok, sögusagnir eru á kreiki um að knattspyrnukappinn Ronaldo og Georgina hafi loks gengið í hjónaband og leik- og söngkonan Ariana Grande ætlar að draga sig úr sviðsljósinu frá og með 1. september næstkomandi en þá lýkur tónleikaferð hennar, Eternal Sunshine Tour. Við köfuðum dýpra í þessi mál og fleiri með Evu Ruzu sérfræðingi í heimi hinna frægu.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Lagalisti fólksins var að sjálfsögðu hinsegin. Algjör dúndur lagalisti þökk sé hlustendum. Svo var örlítið bíóblaður um sterka tengingu á milli Spiderman og The Oddysey.
GRAFÍK – Já Ég Get Það
BLUR – End of a Century
QUARASHI – Do it again
KISS – I Was Made For Loving You
YUNGAMLI – Pungur á klúbbnum
MAUS – Allt Sem Þú Lest Er Lygi
FM BELFAST – Underwear
ICEGUYS – 7-9-13
OLIVIA NEWTON-JOHN – Physical
ROD STEWART – Do Ya Think I'm Sexy
HJÁLMAR – Hvað gera fjöllin?
SHERYL CROW – All I Wanna Do
ÁSGEIR TRAUSTI EINARSSON – Heartbeat
CANDI STATON – Young hearts run free
CHAKA KHAN & SNOOP DOGG – Boogie's in My Soul
ALPHAVILLE – Forever Young
FLEETWOOD MAC – Rhiannon (Will You Ever Win)
TV ON THE RADIO – Wolf like me
HARRY STYLES – Dance No More
SINEAD O CONNOR – Mandinka
KACEY MUSGRAVES – I Believe In Ghosts
ELTON JOHN & KIKI DEE – Don't Go Breaking My Heart
DOMINIC FIKE – Babydoll
INCUBUS – Drive
STJÓRNIN – Ég elska alla
JUDAS PRIEST – Living After Midnight
ENSÍMI – Atari
ALICIA BRIDGES – I Love The Nightlife (Disco 'round)
SAM SMITH – I'm Not The Only One
VINIR VORS OG BLÓMA – Maður með mönnum
TRB – Glad to be gay
PÁLL ÓSKAR – Ég er eins og ég er
CYNDI LAUPER – True Colors
SÍSÍ EY – Ain't Got Nobody
UNA TORFADÓTTIR – Þú ert stormur (Pride lagið 2023)
HIPSUMHAPS – Ástið
QUEEN – I want to break free
DONNA SUMMER – I Feel Love
BUBBI MORTHENS – Strákarnir á Borginni
RÚNAR JÚLÍUSSON - Það þarf fólk eins og þig
GEORGE MICHAEL - Freedom!

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Hluta áhafnar Bandero, skips Paul Watson samtakanna, hefur verið vísað úr landi. Skipverjar freista þess að fá endurkomubanni hnekkt.
Misjafnt er hvort hreyfingar sem beita sér í umræðunni um ESB ætla að birta upplýsingar um fjárreiður sínar. Lítið sem ekkert eftirlit er með starfsemi þeirra og fjármögnun.
Fjórtán ára drengur skaut sjö til bana og tuttugu og þrjú særðust í skotárás í framhaldsskóla í Taílandi í morgun. Stjórnvöld heita að efla öryggisgæslu í skólum.
Faðir fatlaðs manns segir það skerðingu á réttindum fatlaðs fólks að Mannréttindastofnun hafi tekið við hlutverki réttindagæslu.
Umhverfis- og orkustofnun hefur veitt Orkubúi Vestfjarða virkjanaleyfi fyrir Kvíslatunguvirkjun. Gert er ráð fyrir að hún verði tekin í gagnið eftir tvö ár.
Sádí-Arabía, Pakistan og Tyrkland skrifuðu í dag undir varnarsamning. Átök Írans og Bandaríkjanna hafa ýtt undir öryggisógnir í Mið-Austurlöndum.
Formaður hverfisráðs Grímseyjar óttast áhrif fyrirhugaðra skerðinga á þjónustu ferjunnar Sæfara næsta vetur.
Annar keppnisdagur Íslandsmótsins í golfi hefst í dag. Elsa Maren Steinarsdóttir leiðir nokkuð óvænt í kvennaflokki.

Margrét Erla Maack fylgir fólki á góðum sumardögum, leikur lauflétta tóna og heldur gleðinni gangandi.
Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.
Jóhann Alfreð sat í stúdíó 2 en Steiney kom sér fyrir á Pride-miðstöðinni í Iðnó þar sem hún hitti meðal annars á Veru Illugadóttur sem stendur fyrir hinsegin Barsvari þar í kvöld. Hún leyfði okkur og hlustendum að spreyta sig á nokkrum spurningum úr kvissinu frá í fyrra.
Siggi Gunnars leit líka við en hann mun stýra skemmtiþætti á sunnudagskvöld sem nefnist Undir regnboganum í tilefni Hinsegin daga. Hann sagði okkur frá þættinum og því sem stendur til.
Hvernig er staða hinsegin fólks á íslenskum vinnumarkaði? Hvaða áskoranir blasa enn við og hvaða ávinningur felst í því að skapa vinnustaði þar sem fjölbreytileiki og inngilding eru höfð að leiðarljósi? Reynt var að svara þessum spurningum á opnum fundi í Iðnó í dag og Steiney hitti á Vilhjálm Hilmarsson, hagfræðing hjá Visku stéttarfélagi sem hélt erindi á fundinum.
Jóhann Alfreð var í Grindavík í gær en þar hafa ný fyrirtæki sprottið upp þrátt fyrir erfiðleika síðustu missera. Hann heimsótti Neskju, nýja sælgætis- og konfektgerð í bænum og sendi póstkort af hljóðveginum frá þeirri heimsókn.
Joy er tyrknesk transkona, búsett á Íslandi sem stendur fyrir uppistandi í tengslum við Hinsegin daga. Steiney hitti á hana og fékk að forvitnast um sýninguna og efnistökin.
Þá var vikan botnuð og lesnir upp botnar frá hlustendum við fyrripart vikunnar sem Vala Höskuldsdóttir henti fram.

Fréttastofa RÚV.
Kletturinn sér um að koma þér í gírinn á föstudagskvöldum. Rokk er rauði þráðurinn í gegnum þáttinn í eins teygjanlegum skilningi og mögulegt er. Rokk, indie rokk, indie popp, dans-pönk, nýbylgja, alt-rokk, síðpönk og country verður á boðstólum í hrærigraut af stemmingu og straumum.
Umsjón: Karl Sölvi Sigurðsson.
Í fyrsta þætti mánaðarins af Klettinum vorum við fyrsta rúma klukkutímann á 21. öldinni, að mestu leyti hérna heima á Íslandi en einnig úti í heimi. Seinni helmingur þáttarins var svo tileinkaður Bruce Dickinson afmælisbarni þáttarins sem er söngvari Iron Maiden eins og allir vita og voru því Maiden lög sem samin voru af honum spiluð í bland við önnur bönd sem komu upp með þeim í áttunni í Bretlandi og áhrif Iron Maiden skoðuð.
Lightspeed - Spacestation
Stressed - Skrattar & Bang Gang
SD - Sameheads
Waterboy - Viagra Boys
Black Bull - Foals
Dine N'Dash - The Strokes
Þrjúhundruðsextíuogfimmdagablús - Grísalappalísa
Banger - Virgin Orchestra
Kemur ekki - NEI
Lýsi í tunnunni - Skoffín
Just Me - Fufanu
Halfway Home - TV On The Radio
Oh Baby - LCD Soundsystem
Month Of May - Arcade Fire
Pain - The War On Drugs
Too Late Now - Wet Leg
New Muscles - Mary In The Junkyard
Dollar Bill - Jack White
90 Years - Hoffmann
2 Minutes To Midnight - Iron Maiden
The Boys Are Back In Town - Thin Lizzy
Doctor Doctor - UFO
You've Got Another Thing Coming - Judas Priest
Can I Play With Madness - Iron Maiden
Kill The King - Rainbow
Ace Of Spades - Motörhead
Bring Your Daughter To The Slaughter - Iron Maiden
Let It Go - Def Leppard
Holy Diver - DIO
Be Quick Or Be Dead - Iron Maiden
Ich Will - Rammstein
Before I Forget - Slipknot
Fade To Black - Metallica
The Wicker Man - Iron Maiden

Föstudagstónar í teitið.