12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 7. ágúst 2026

Útvarpsfréttir.

Hluta áhafnar Bandero, skips Paul Watson samtakanna, hefur verið vísað úr landi. Skipverjar freista þess að fá endurkomubanni hnekkt.

Misjafnt er hvort hreyfingar sem beita sér í umræðunni um ESB ætla að birta upplýsingar um fjárreiður sínar. Lítið sem ekkert eftirlit er með starfsemi þeirra og fjármögnun.

Fjórtán ára drengur skaut sjö til bana og tuttugu og þrjú særðust í skotárás í framhaldsskóla í Taílandi í morgun. Stjórnvöld heita að efla öryggisgæslu í skólum.

Faðir fatlaðs manns segir það skerðingu á réttindum fatlaðs fólks að Mannréttindastofnun hafi tekið við hlutverki réttindagæslu.

Umhverfis- og orkustofnun hefur veitt Orkubúi Vestfjarða virkjanaleyfi fyrir Kvíslatunguvirkjun. Gert er ráð fyrir að hún verði tekin í gagnið eftir tvö ár.

Sádí-Arabía, Pakistan og Tyrkland skrifuðu í dag undir varnarsamning. Átök Írans og Bandaríkjanna hafa ýtt undir öryggisógnir í Mið-Austurlöndum.

Formaður hverfisráðs Grímseyjar óttast áhrif fyrirhugaðra skerðinga á þjónustu ferjunnar Sæfara næsta vetur.

Annar keppnisdagur Íslandsmótsins í golfi hefst í dag. Elsa Maren Steinarsdóttir leiðir nokkuð óvænt í kvennaflokki.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,