18:00
Kvöldfréttir útvarps
Vopnahlé í uppnámi, netnjósnir, raðmorðingi og dómur vegna vínsölu á netinu

Fréttir

Fréttir

Varaforseti Bandaríkjanna leiðir samningateymi fyrir friðarviðræður við Íran sem fara fram í Pakistan um helgina. Á þriðja hundrað hafa verið drepin í loftárásum Ísraelshers á Líbanon í dag, en Ísraelar segja vopnahléið ekki ná til Hezbollah-samtakanna. Íranar eru ósammála því og hafa lokað Hormuz-sundi á ný.

Vinsælir netþjónar, sem fást meðal annars hér á landi, voru notaðir í umfangsmikilli njósnaaðgerð rússneskra tölvuþrjóta.

Bandaríkjamaðurinn Re Heuermann, sem kvæntur var íslenskri konu, hefur játað á sig morð á átta konum.

Forsvarsmaður Smáríkisins hefur verið sakfelldur fyrir að selja hvítvínsbelju. Dómurinn kom framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu á óvart.

Leikur íslenska kvennalandsliðsins gegn Færeyjum er nýhafinn. Sigur er afar mikilvægur, ætli íslenska liðið sér á annað Evrópumótið í röð.

Umsjón: Erla María Markúsdóttir

Tæknimaður: Úlfhildur Eysteinsdóttir

Stjórn útsendingar: Hildur Sigurbergsdóttir

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 10 mín.
,