23:10
Endastöðin
Franz og Hörður

Rætt um menningarvikuna sem er að líða og það sem er efst á baugi og framundan um helgina.

Í þættinum er rætt um nýja ævisögulega mynd um rithöfundinn Franz Kafka sem var sýnd á kvikmyndahátíðinni Stockfish. Myndin sem er eftir pólska leikstjórann Agniezska Holland nálgast ævisagnaformið á tilraunakenndan hátt með flakki í tíma, milli leikins og heimildaefnis.

Einnig er rætt um endurreisnarmanninn Hörð Ágústsson en nú standa yfir tvær sýningar á verkum Harðar á höfuðborgarsvæðinu. Sýningin Hörður í Gerðarsafni og sýning á arkitektateikningum hans og bandaríska listamannsins Donalds Judd í Listasafni Íslands.

Gestir eru Ástráður Eysteinsson, Marteinn Sindri Jónsson og Helga Dögg Ólafsdóttir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 50 mín.
e
Endurflutt.
,