19:00
Tónhjólið
Djasshátíð 2025 - O.N.E.

Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður að einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.

Tónlist úr ýmsum áttum. Nýjar hljóðritanir Rásar 1 í bland við nýjar plötur íslenskrar og erlendrar tónlistar.

Hljóðritun frá Djasshátíð Reykjavíkur.

Pétur Magnússon fylgir úr hlaði tónleikum með pólsku hljómsveitinni O.N.E. sem lék tónlist sína í Norðurljósum Hörpu 29. ágúst 2025. Einnig ræðir hann við meðlimi sveitarinnar.

Pólska hljómsveitin O.N.E. leikur frumsamda djassmúsík. Þær eru stoltar af því að vera konur í djassi og að leggja sitt af mörkum til að ryðja braut fyrir næstu kynslóðir kvenna í tónlist.

Hljómsveitin hefur gefið út tvær plötur: One (2020), sem var tilnefnd til FRYDERYK-verðlaunanna, hlaut Jazz Óskarinn á Grand Prix Jazz Melomani Gala í flokknum Jazz Hope og var valin best í sama flokki af lesendum Jazz Forum; og Entoloma (2022), sem markar áframhaldandi þróun á einstökum og djörfum stíl sveitarinnar.

O.N.E. hefur komið fram á virtum djasshátíðum í Evrópu og víðar, þar á meðal Athens Jazz Festival, Polska Jazz Festival í Búdapest, B-Jazz í Belgíu, Jazzahead í Bremen, Tallinn Music Week í Eistlandi, Umeå Jazz Festival í Svíþjóð og FiraB! á Mallorca, auk fjölmargra hátíða í Póllandi.

Í apríl 2024 skipulagði sveitin tónleikaferðalag og vinnusmiðjur í fjórum borgum í Úkraínu sem hluti af EJN Green Pilot Tour verkefninu – og sýnir þar með ekki aðeins listrænt frumkvæði heldur einnig félagslegan og alþjóðlegan samhug.

Meðlimir sveitarinnar eru:

Patrycja Wybrańczyk – trommur

Kateryna Ziabliuk – píanó

Kamila Drabek – bassi -( staðgengill í forföllum hennar er gítarleikarinn Þorkell Ragnar Grétarsson. )

Monia Muc – alto saxófónn

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 20 mín.
,