22:10
Litla flugan
Jólalögin

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Litla flugan er á dagskrá Rásar 1 á fimmtudagsmorgnum kl. 10:15 og endurflutt á föstudagskvöldum kl. 22:15. Þar leikur Lana Kolbrún Eddudóttir allskonar tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við KK-sextettinn, Lúdó og Stefán, Monicu Zetterlund og Ragnar Bjarnason. Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Netfang þáttarins: <a href="mailto:[email protected]">[email protected]</a>

Litla flugan dregur fram jólaplöturnar og rifjar upp eitt og annað úr safni útvarpsins. Rósa Ingólfsdóttir syngur með Jólaköttunum, Viðar Alfreðsson blæs Jingle Bell Rock með hljómsveit Hauks Morthens og hljómsveit Björns R. Einarssonar leikur White Christmas, hljóðritað í útvarpssal við Austurvöll um miðja öldina sem leið. Einnig verður brugðið á fóninn nokkrum af lífseigustu jólaplötum Íslands með Hauki Morthens, Elly og Vilhjálmi, og Svanhildi Jakobsdóttur.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 43 mín.
e
Endurflutt.
,