Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínilplata þessarar viku er Látúnsbarkarnir sem kom út hjá Skífunni árið 1987. Á henni eru lög í flutningi nokkurra látúnsbarka í söngkeppni sem efnt var til þá um sumarið. Það var táningahljómsveitin Stuðmenn, eins og hún var kölluð í einu dagblaðanna vorið 1987, sem efndi til keppni undir yfirskriftinni „Leitin að Látúnsbarkanum“. Fór leitin þannig fram að keppendur gátu skráð sig til leiks á öllum þeim Stuðmannaböllum sem haldin voru um allt land um sumarið og sungið eitt lag við undirleik hljómsveitarinnar. Á hverju balli var einn úr fimm manna hópi valinn til þátttöku í úrslitakeppninni, sem fram fór í beinni útsendingu í sjónvarpi síðar um sumarið.
Keppnin vakti í upphafi töluverða athygli enda var hún vel auglýst í blöðum, útvarpi og sjónvarpi. Til að mynda birtist heilsíðuauglýsing í dagblöðum 28. maí þar sem auglýst var eftir þátttakendum í keppnina. Stuðmenn kynntu þar keppnina til leiks og spurðu þjóðina: „Ert þú með látúnsbarkann sem leitað er að logandi ljósum?“
Undir yfirskriftinni Söngstjarna morgundagsins og ástmögur þjóðarinnar, í báðum tilvikum fylgdi spurningamerki á eftir, voru nánari upplýsingar um keppnina sem og leikreglur. Þar sagði meðal annars:
„Í hverju landshorni leynast söngkraftar sem enn eru óuppgötvaðir en gefa bestu söngvurum ekkert eftir. Nú verða þessir kraftar dregnir fram í dagsljósið í hinni umsvifamiklu stjörnuleit „Leitinni að Látúnsbarkanum“. Fram kom að á hverjum stað myndu fimm söngvarar spreyta sig og dómnefnd myndi í kjölfarið velja þann besta í hverju kjördæmi. Úrslitin réðust síðan í beinni sjónvarpsútsendingu Ríkissjónvarpsins 5. júlí 1987. Og verðlaunin voru ekki af verri endanum: Vandaður verðlaunabarki úr látúni frá Jens gullsmiði og ferð til Lundúna, háborgar tónlistarlífs Evrópu auk fleiri verðlauna. Leikreglurnar voru síðan birtar í fjórum ítarlegum liðum og fyrsta reglan var sú að keppendur þurftu að vera allsgáðir og einungis einn flytjandi á hverju lagi. Keppendur áttu að skrá sig með því að hringja í tiltekið símanúmer og var meira að segja boðið upp á að lesa nafn sitt og símanúmer inn á símsvara ef ekki var svarað í númerið sem gefið var upp. Þá fylgdu reglur um hvaða lög mætti syngja og loks var greint frá því að keppendur ættu að staðfesta nærveru sína í miðasölu við upphaf skemmtunar og þar ítrekuð fyrsta reglan um að einungis allsgáðir gætu tekið þátt í keppninni.
Hún var síðan haldin á öllum böllum sumarsins hjá Stuðmönnum og þeir fóru bókstaflega um allt land. Undankeppnir voru þannig á Patreksfirði, Hnífsdal, Logalandi, Neskaupstað, Egilsstöðum, Húsavík, Akureyri, Ólafsfirði, Miðgarði, Reykjavík og Njarðvík. Úrslitin réðust síðan eftirminnilega í Tívolíinu í Hveragerði 5. júlí, í beinni útsendingu í sjónvarpinu, og þar sigraði örugglega maður sem við höfum síðan þá þekkt sem látúnsbarkann Bjarna Arason. Óhætt er að segja að Bjarni hafi þarna á einu kvöldi sungið sig inn í hug og hjarta landsmanna og hans beið hans glæstur ferill sem söngvari.
A-hlið:
1. Bara ég og þú - söngur Bjarni Arason
2. Já eða nei - söngur Ólöf Sigríður Valsdóttir
3. Lóa litla á Brú - söngur Addi Rokk
4. Í Réttó - söngur Bjarni Arason
5. Þó ég dóli - söngur Málfríður Hjaltadóttir
6. Slá í gegn - söngur Bjarni Arason
B-hlið:
1. Svarti Pétur - söngur Hermann Ólafsson
2. Ástarjátning - söngur Margrét Stefánsdóttir
3. Strax í dag - söngur Gígja Sigurðardóttir
4. Fljúgðu - söngur Guðjón Jónsson
5. Þar sem allt grær - söngur Bergþóra Njála Guðmundsdóttir
Í lok þáttarins er spilað lagið Leitin að Látúnsbarkanum með Stuðmönnum, sem kom út á plötunni Á gæsaveiðum árið 1987.
Umsjón: Stefán Eiríksson.
Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Þátturinn var fyrst á dagskrá 5. apríl 2014.
Umsjón: Einar Már Guðmundsson
Einar Már Guðmundsson leikur tónlist að eigin vali.


Umsjón: Kristján Kristjánsson.


frá Veðurstofu Íslands.

Aldrei hefur gustað jafn kröftuglega um Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva og nú. En þó pallíetturnar og glimmerið glitri undan ljóskösturunum sprettur sjónarspilið úr rammpólitískum jarðvegi sem, þegar grannt er á litið, hefur alltaf sett sinn brag á keppnina.
Gæti keppnin sungið sitt síðasta 2026?
Gísli Marteinn Baldursson hagar seglum eftir vindvélunum og fylgir blæstri þeirra í gegnum átakasögu Eurovision.
Rússland hefur verið úthýst úr Eurovision. Úkraína treystir böndin við vestrið með tónlist. Ísrael fær að vera með og fimm lönd segja sig úr keppni. Mun Evrópa hrynja?


Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.

Tónlist héðan og þaðan

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Það er kjördagur og Heimskviður fjalla um samgöngumál, húsnæðismál og þjóðfélagsumræðuna, reyndar með sínu nefi.
Allra augu eru á Downingstræti 10 þessa dagana. Þetta hefur verið erfið vika hjá Keir Starmer forsætisráðherra Breta, og margir sem spá því að hann verði ekki langlífur í embætti. Ég ætla aðeins að skoða hvers vegna hann er svona óvinsæll og hvað taki við.
Kjördagur í dag og annar dagur síðar í sumar þar sem landsmenn þurfa að gera upp hug sinn og nýta kosningaréttinn. Það er raunhæft að óttast tilraunir utanaðkomandi aðila til að hafa áhrif á þjóðmálaumræðuna hér á landi í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður við Evrópusambandið. Þetta segja sérfræðingar sem fást við upplýsingaóreiðu og svokallaðar fjölþáttaógnir - sem eru sífellt stærri hluti af því sem öryggisstofnanir fást við. Ógnir af þessu tagi eru hins vegar daglegt brauð í ríkjum sem standa okkur tiltölulega nærri; til dæmis í Noregi - og Eistlandi - þangað sem Björn Malmquist ætlar að fara með okkur í Heimskviðum í dag.
Síðar á þessu ári verður hinn goðsagnarkenndi þjóðvegur 66 í Bandarikjunum hundrað ára og tímamótanna minnst með ýmsum hætti. Það má alveg halda því fram að hluti sögu Bandaríkjanna liggi í malbikinu á þessum 4000 km vegi sem liggur þvert yfir landið. Birta skoðaði sögu þessa líklega þekktasta þjóðvegar heims, sem lifir nú meira á fornri frægð en sem samgönguæðin sem honum var upphaflega ætlað að vera.
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Ólafur Björn Ólafsson, sem vinir hans og samstarfsmenn kalla gjarnan Óbó, á sér tvöfaldan tónlistarferil, ef svo má segja. Annars vegar er það trommuleikarinn sem leikið hefur með fleiri hljómsveitum og listamönnum en tölu verður á komið og hinsvegar píanóleikarinn og afkastamikið tónskáld sem færri þekkja.
Lagalisti:
Óútgefið - Arithmetical Exercise of the Soul / Unaware of it's Counting
Steypa - Kanon
The Greenhouse Sessions - Systur/Sisters
Innhverfi - Rétt eða rangt
The Third Script - Ravening
Óútgefið - Kerti

Í þáttunum er ferill Michael Jackson rakin í tali og tónum. Barnastjarna, skemmtikraftur, poppstjarna af áður óþekktri stærð, frík og fyrirbæri; Bakgrunnur hans og helstu áhrifavaldar verða til umfjöllunar og leitast verður við að setja fjölbreytilegan feril hans í menningarsögulegt samhengi.
Umsjón: Berglind María Tómasdóttir
Michael Jackson stimplaði sig rækilega inn sem poppstjarna af óvenjulegri stærðargráðu með plötunni Off the Wall sem kom út árið 1979. Í þættinum verður platan til umfjöllunar sem og þátttaka hans í kvikmyndinni Galdrakarlinn í Oz.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 13. júní 2015.

Útvarpsfréttir.
Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Einu sinni voru tveir bræður, Jakob og Vilhelm...
Grimmsævintýri er stórmerkileg og dularfull. Hvaðan koma þau? Hvað eru þau gömul? Af hverju erum við enn að lesa þetta? Og af hverju ættu nútímabörn að þekkja helstu hlutverk lénsskipulags Evrópu á miðöldum?
Viðmælendur: Aðalheiður Guðmundsdóttir, Romina Werth, Birta Björnsdóttir og Ingibjörg Fríða Helgadóttir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlist frá systurstöðvum rásar 1 í Evrópu.
Eistland, Finnland og Frakkland sendu okkur dæmi um það sem er á seyði í þeirra djasslöndum.
Eistneska tríóið Flow Rea er skipað þeim Mathei Florea á hljómborð, Joosep Talumaa á bassa og Dmitri Nikolajevski á slagverk. Þeir spila þrjú lög af plötunni Pulse, sem kom út 2025.
Allure
Circuit
Restless
Ricky Tick stórsveitin finnska og Julkinen Sala hópurininn - eða Hið opinbera - eins og hann gæti heitið á íslensku. Ljóðskáldin og rappararnir Karri Paleface Mietteinen, Tommy Lindgre og Fanni F Sjöholm skipa hann ásamt Valtteri Laurell Pöyhönen, gítarleikara, útsetjara og stórsveitarstjóra . (Myndin er af þeim).
Won't Do og Rico Suave Bossa Nova eru eftir rapparann og upptökustjórann J'Dilla. Lokalagið: Siel missä ei oo ennen oltu er eftir Julkinen Sala.
Frá Frakklandi kemur saxófónleikarinn og söngvarinn Pierre Carbonneaux, sem leiðir hljómsveitina L’autour sem þeir skipa með honum Benjamin Garson á gítar, Clement Merienne á píano, Antoine Leanardon á kontrabassa og Emilian Ducret á trommur. Við heyrðum þá taka til kostanna eigin hugleiðingar um söngvaskáldið sem þeir voru aldir upp við - George Brassens.
The Singing Train
Pauvre Martin
Og í lokin heyrum við í George Brassens sjálfum syngja eigið lag um orðsprið.
La mauvaise reputation

Fréttir
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Í september 1970 rændu liðsmenn Alþýðufylkingarinnar til frelsunar Palestínu fjórum farþegaþotum og stefndu þeim á gamlan herflugvöll í eyðimörk Jórdaníu. Seinni þáttur af tveimur.

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Tríó McCoy Tyner leikur lögin In The Tradition, Goin' Away Blues, I Want To Tell You About That, Cariba, Will You Still Be Mine, The Night Has A Thousand Eyes og Nver Let Me Go. Benny Carter og hljómsveit leika lögin How Can Yo Loose, A Walkin' Thing, Blue Lou, I'm Coming To Virginia, Old Fashioned Love og Blues My Naughty Sweetie Gives To Me. Sextett Donald Byrd leikur lögi Fly Little Bird Fly, Alter Ego, Blue Monk, Sir Master Kool og Voyage á deux.

Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Guðrún Eva Mínervudóttir segir frá sínu uppáhalds tónverki.
Við heyrum upphafið að Te Deum eftir eistneska tónskáldið Arvo Pärt. Tönu Kaljuste stjórnar Kammerkór Eistnesku fílharmóníunnar og Kammersveit Tallin.

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar.
Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.
Umsjón: Jón Ormar Ormsson
Efni þáttar er sótt í bókina; Horft til liðinna stunda, eftir Þórarin Þórarinsson, skólastjóra á Eiðum, þar sem hann segir af kynnum sínum af Jóhannesi Kjarval.
Þórarinn Þórainssson; Horft til liðinna stunda.
Bókaútgáfa Arnar og Örlygs 1981
Lesari með umsjónarmanni; Sigríður Kristín Jónsdóttir
Tónlist;
Þú álfu vorrar yngsta land/Sigfús Einarsson/Hannes Hafstein
Karlakórinn Heimir.
Fyrst á dagskrá 2. október 2009


frá Veðurstofu Íslands

Leikin er gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög. Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum. Umsjónarmaður þáttarins er Lana Kolbrún Eddudóttir.
Leikin lög með hljómsveitum Ásgeirs Sverrissonar og Jóhannesar Eggertssonar og einnig dönsk sjómannalög.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.

Útvarpsfréttir.
Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.
leikarinn Jakob van Oosterhout hefur aldeilis slegið í gegn í Ormstungu í Þjóðleikhúsinu en hann kemur líka við sögu í 20 og eitthvað á RÚV og mun leika aðalhlutverk í söngleiknum Með allt á hreinu í sumar. Jakob kom í skemmtilega fimmu en hún fjallaði um fimm hljóðfæri lífs hans og sögurnar voru margar og skemmtilegar.



Gísli Marteinn Baldursson og Sandra Barilli leiða hlustendur inn í laugardaginn, taka stöðuna á fólki og fréttum, spila góða tónlist og fá til sín vel valda gesti í skemmtilegt spjall.


Útvarpsfréttir.

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Tæplega fimmtíu ára tónlistarferill Bubba Morthens krufinn til mergjar í tali og tónum í tilefni af sjötugsafmælisárinu. Boðið upp á fágætar tónleikaupptökur, viðtöl og umfjallanir um tónlist og texta Bubba sem sumar hverjar hafa ekki heyrst í áraraðir á öldum ljósvakans.
Umsjón: Ásgeir Eyþórsson
Í tólfta þætti eru árin 2006 til 2009 til umfjöllunar, þegar Bubbi sendi m.a. frá sér plöturnar 060606, 4 nagla og Egó plötuna 6.október. Í þættinum má m.a. heyra valdar klippur úr eftirtöldum þáttum: Árið er, Færibandið, Ávarp forsætisráðherra, Mið-Ísland, Plata vikunnar, Síðdegisútvarp Rásar 2, Víðsjá, Vítt og breytt,
Viðmælendur í tólfta þætti eru Ari Eldjárn, Bubbi Morthens, Geir H. Haarde, Þórir Baldursson og Ævar Kjartansson
Viðtöl: Ásgeir Eyþórsson, Bubbi Morthens, Eiríkur Guðmundsson, Freyr Eyjólfsson, Gunnlaugur Jónsson og Ólafur Páll Gunnarsson.
Umsjón, handrit og samsetning: Ásgeir Eyþórsson
Raddir: Ásgeir Eyþórsson og Bogi Ágústsson
Lagalisti:
Bubbi - Dýrðin er þín (060606)
Bubbi - Grafir og bein
Bubbi - Segulstöðvarblús
Bubbi - Landið var aldrei það sama (060606)
Bubbi Morthens - Engill í rólu (060606)
Bubbi Morthens - Ísbjarnarblús (060606)
Bubbi Morthens - Blindsker (060606)
Bubbi - Brúnu augun þín
Bubbi - Þegar tíminn er liðinn
Bubbi - Fjórir naglar
Bubbi - Mundu drottinn
Bubbi - Græna húsið
Bubbi & Stórsveit Reykjavíkur - Sumar konur
Bubbi & Stórsveit Reykjavíkur - Fjöllin hafa vakað
Bubbi & Stórsveit Reykjavíkur - Sandurinn í glasinu
Bubbi - Hann fór hlæjandi í bankann (Færibandið)
Bubbi - Erum við manneskjur? (Færibandið)
Egó - Kannski var bylting vorið 2009
Egó - Í hjarta mér
Egó - Fallegi lúserinn minn
Egó - 6. október
Egó - Að elska er að finna til
Egó - Eyjan græna
Egó - Vonin er vinan mín
Ari Eldjárn - Blóðið er rautt (Mið-Ísland)
Egó - Hrunið
Egó - Engill ræður för

Útvarpsfréttir.

Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.
Þær Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunnar í Vinsældalista Rásar 2.
Vikan rædd, tónleikar og bíómyndir á milli þess að fara yfir vinsælustu lögin þessa vikuna. Það er farið 60 og 33 ár aftur í tímann í Baksýnisspeglinum og Ragga spáir nýju lagi með Mugison á lista.

Útvarpsfréttir.

Fréttir

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.

Tekið er á móti gesti sem fer í gegnum lög sem svör við ákveðnum spurningum. Hvað var fyrsta lagið sem þú hlustaðir á aftur og aftur? Hvaða lag myndiru spila til að loka frábærum degi? Hvert er jarðarfaralagið þitt? Þetta eru nokkrar af þeim spurningum sem poppa upp en svo fylgir einhverskonar æviágrip með í kjölfarið.
Atli Már Steinarsson tekur á móti gesti sem fer í gegnum uppáhaldslög frá mismunandi tímum.
Gestur Matta er bassaleikarinn Ingi Björn Ingason.

Heiða Eiríks og Ingi Þór stjórna Næturvaktinni til skiptis. Þau spjalla við landann og spilar tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.


Ingvar Þór Björnsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir eru á kosningavakt og fylgjast með talningu og niðurstöðum sveitarstjórnarkosninga 2026.