Vikan með Gísla Marteini

16.desember 2022

Í þessum jólaþætti Vikunnar með Gísla Marteini mæta margir frábærir gestir.

Gunnar Erik Snorrason og Kría Burgess sem leika í Jóladagatalinu 2022 opna þáttinn sem Gísli Marteinn og Berglind Festival. Í sófanum eru Emmsjé Gauti, Halldór Gylfason og Sigrún Eðvaldsdóttir. Steinunn Ása Þorvaldsdóttir segir okkur frá Kærleikskúlu 2022. Berglind Festival spjallar við Harald Þorleifsson um rampa sem verið er setja um allt land. Berglind fer einnig á stúfana og ræðir við nokkur börn á aldrinum 3-5 ára um jólin.

Tvö frábær tónlistaratriði stigu á stokk en það voru hljómsveitin Rúnk með lagið Jólin erað koma og Ellen Kristjánsdóttir með Jólasyrpu. Ásamt Ellen Kristjánsdóttur voru þær Kristjana Stefánsdóttir, Ragnheiður Gröndal og Guðrún Gunnarsdóttir.

Birt

16. des. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Vikan með Gísla Marteini

Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.

Þættir

,