Tvíburar

Þrennir tvíburar

Fylgst er með fjölskyldu hjónanna Lísu og Magnúsar, en þau eiga ekki eina, ekki tvenna, heldur þrenna tvíbura. Þau eignuðust fyrstu tvenna tvíburana með árs millibili. Einnig er skoðað hvaða þættir auka líkurnar á því konur eignist tvíbura og rætt er við eineggja tvíburasysturnar Rakel og Rebekku sem segja það ekkert tiltökumál lengur þegar tilkynnt einhver í fjölskyldunni gangi með tvíbura. Rakel eignaðist eineggja tvíbura fyrir tveimur árum.

Frumsýnt

15. maí 2023

Aðgengilegt til

2. feb. 2200
Tvíburar

Tvíburar

Íslensk heimildarþáttaröð í sex hlutum þar sem skyggnst er inn í heim tvíbura og sagðar persónulegar sögur. Í þáttunum er fylgst með því líffræðilega undri sem á sér stað þegar tvíburar verða til og þeim sterku tengslum sem virðast fylgja flestum tvíburum út lífið. Hvaða helstu áskoranir bíða tvíbura, búa þeir yfir meiri samkennd en aðrir, hversu samtaka í lífinu eru þeir og hugsa þeir jafnvel eins? Umsjón og framleiðsla: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Eiríkur Ingi Böðvarðsson.

Þættir

,