Torgið

Leyft öllum aldurshópum

Símabann í skólum og aldurstakmark á samfélagsmiðlum

Margir skólar hafa sett sér reglur um símanotkun en nú er rætt um það á þingi hvort setja eigi lög um þessi mál. Einnig hefur ráðherra sagt að hún vilji hækka aldurstakmark á samfélagsmiðlum. Þetta var til umræðu á Torginu að þessu sinni sem sent var út frá Helgafellsskóla í Mosfellsbæ. Fjöldi gesta tók þátt í umræðunni.

Frá ungmennaráði Samfés voru þau Athena Freyja Eyfeld Sólveigardóttir, Styrmir Steinn Sigmundsson og Kamilla Inga Ellertsdóttir.

Auk þess voru Rósa Ingvarsdóttir, skólastjóri í Helgafellsskóla, Kári Einarsson, samfélagsmiðlastjóri, Anna Laufey Stefánsdóttir, hjá Stafrænni velferð, Bergþóra Þórhallsdóttir, verkefnastjóri upplýsingatækni hjá Kópavogsbæ, Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri hjá Netvís - Netöryggismiðstöðvar Íslands og Gunnar Helgason, rithöfundur.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt

Torgið

Umræðuþáttur í beinni útsendingu þar sem fólkið í landinu varpar fram spurningum og stendur fyrir máli sínu. Á Torginu er talað um málefnin sem rædd eru af kappi á kaffistofum landsins. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir og Baldvin Þór Bergsson. Stjórn útsendingar: Þór Freysson.

Þættir

,