Ungir Íslendingar tíu árum síðar

Birt

24. ágúst 2026

Aðgengilegt til

24. ágúst 2027

Ungir Íslendingar tíu árum síðar

Heimildarþáttur frá 1997. Árið 1987 var gerður þáttur þar sem rætt var við nokkra unga Íslendinga um vinnuna, fjölskylduna, drauma þeirra og framtíðarmarkmið. Tíu árum síðar var tekið hús á þeim aftur og athugað hvernig úr hefði ræst. Í þættinum koma fram Anna Margrét Jónsdóttir flugfreyja, Ágústa Finnbogadóttir starfsmaður Sparisjóðs Hafnarfjarðar, Eðvarð Þór Eðvarðssson sundþjálfari og Steinn Ármann Magnússon leikari. Fylgst með þessu fólki við leik og störf heima og heiman.

,