
Undir halastjörnu
Íslenskt bíósumar
Íslensk spennumynd frá 2018 sem byggð er á „líkfundarmálinu“ svokallaða í Neskaupstað árið 2004. Myndin segir frá eistneskum æskuvinum sem ákveða að flytja til Íslands í von um betra líf. Á leiðinni flækjast þeir í eiturlyfjasmygli sem hefur ófyrirséðar afleiðingar. Leikstjóri: Ari Alexander Ergis Magnússon. Aðalhlutverk: Tómas Lemarquis, Pääru Oja, Atli Rafn Sigurðsson, Ingvar Eggert Sigurðsson, Zlatko Buric, Kaspar Velberg og Paaru Oja. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.