
The Doors
Bandarísk kvikmynd frá 1991 um ævi rokkstjörnunnar Jims Morrison, söngvara The Doors. Fjallað er um líf hans allt frá því að hann var nemi í kvikmyndagerð í Los Angeles þar til hann fellur frá í París árið 1971, aðeins 27 ára að aldri. Aðalhlutverk: Val Kilmer, Meg Ryan og Kyle MacLachlan. Leikstjóri: Oliver Stone. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.