
Söngstræti
Sing Street
Rómantísk gamanmynd frá 2016 um unglingsdrenginn Conor sem elst upp í Dublin á níunda áratugnum. Hann á erfitt með að aðlagast nýjum skóla og stofnar hljómsveit í von um að falla í hópinn og heilla stúlku sem hann er hrifinn af. Myndin var tilnefnd til Golden Globe-verðlauna sem besta gamanmyndin. Leikstjóri: John Carney. Aðalhlutverk: Ferdia Walsh-Peelo, Aidan Gillen og Maria Doyle Kennedy.