
Nýja stelpan
Stargirl
Bandarísk fjölskyldumynd frá 2020 byggð á samnefndri skáldsögu eftir Jerry Spinelli. Leo er hlédrægur menntaskólanemi sem vill helst hverfa inn í fjöldann. Líf hans tekur stakkaskiptum þegar nýr nemandi, Stargirl Caraway, byrjar í skólanum. Leikstjóri: Julia Hart. Aðalhlutverk: Grace VanderWaal, Graham Verchere og Giancarlo Esposito.