
Innstu myrkur - Dómsdagur kvikmyndagerðarmanns
Hearts of Darkness: A Filmmaker's Apocalypse
Heimildarmynd frá 1991 sem veitir innsýn í gerð stórmyndarinnar Apocolypse Now eftir Francis Ford Coppola. Erfiðleikar tengdir handriti, kvikmyndatökum, fjárhagsáætlun og leikaravali gerðu það að verkum að framleiðsluferlið varð leikstjóranum nánast ofviða. Leikstjórar: Fax Bahr og George Hickenlooper. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.