
Í frjálsu falli
Basejumper
Dönsk heimildarmynd um Dennis, fyrrverandi hermann sem hóf að stunda jaðaríþróttir eftir að hann sneri heim úr stríðinu í Afganistan. Hann stundar fallhlífarstökk af háum byggingum og klettum og stefnir að því að vinna heimsmeistaratitil í íþróttinni, en fjölskylda hans óttast um líf hans.