Hvíta efnið
White Material
Frönsk kvikmynd frá 2009 í leikstjórn Claire Denis. Maria er hvít, frönsk kona sem rekur hefur kaffiekru um árabil í fyrrverandi nýlendu Frakka í Afríku og fest þar rætur. Þegar blóðugt borgarastríð skellur á yfirgefa franskir friðargæsluliðar landið og biðla til hvítra landeiganda um að gera slíkt hið sama. Flestir fara að þeim tilmælum en Maria þverskallast við. Aðalhlutverk: Isabelle Huppert, Christopher Lambert og Isaach De Bankolé. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Myndin er hluti af þemanu Konur í kvikmyndagerð.