
Fegurðin og fegrunin
Beauty and the Bleach
Bresk heimildarmynd frá 2022. Tan France var aðeins níu ára gamall þegar hann reyndi fyrst að lýsa á sér húðina með aflitunarkremi. Hér horfist hann í augu við eigin reynslu og skoðar hvernig skaðlegir fegurðarstaðlar og fordómar gagnvart dekkri húð hafa áhrif á sjálfsmynd fólks um allan heim. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 14 ára.