
Dís
Íslensk kvikmynd frá 2004 um Dís sem er 23 ára kona á krossgötum. Hún býr með Blævi, vinkonu sinni, í miðbæ Reykjavíkur og vinnur á Hótel Borg á meðan hún fikrar sig áfram á menntabrautinni og á torfærum vegum ástarinnar. Leikstjóri: Silja Hauksdóttir. Aðalhlutverk: Álfrún Örnólfsdóttir, Ilmur Kristjánsdóttir, Árni Tryggvason og Ylfa Edelstein.