Þáttur 3 af 8
Eldri kona finnst látin á unglingaheimilinu Valhöll og virðist sami morðingi hafa verið að verki. Lögreglan er engu nær um ástæður morðanna eða hver stendur á bak við þau.
Íslensk spennuþáttaröð um rannsóknarlögreglukonuna Katrínu sem rannsakar óvenjulegt morð í Reykjavík. Það reynist upphafið að óhugnanlegu og flóknu sakamáli og lögreglan fær virtan lögreglumann með dularfulla fortíð, Arnar, til að snúa heim eftir áratuga fjarveru utanlands og aðstoða við rannsókn málsins. Leikstjórn: Þórður Pálsson, Davíð Óskar Ólafsson og Þóra Hilmarsdóttir. Aðalhlutverk: Nína Dögg Filippusdóttir og Björn Thors. Framleiðendur: Kristinn Þórðarson, Davíð Óskar Ólafsson og Leifur B. Dagfinnsson. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.