
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?

Stærðfræðiofurhetjurnar Millý, Geó og Bói hjálpa krökkum að læra tölur, form og mynstur.

Jojo er alveg að verða fimm ára. Hún er svo heppin að búa í nágrenni við ömmu sína. Saman bralla þær ýmislegt

Huggulegir þættir þar sem snjómaðurinn les úr sínum uppáhaldsbókum fyrir litlu mýsnar í bókabúðinni.

Friðþjófur forvitni er forvitinn og yndislegur api sem getur oft á tíðum verið full ævintýragjarn. Fylgjumst með ævintýrum hans og mannsins með gula hattinn eiganda hans.

Töfratú er fantasíuland dásamlegra álfa og hafmeyja þar sem raunveruleg viðfangsefni á borð við systkinaerjur, sanngirni og sjálfstraust eru könnuð nánar.

Jasmín og Jómbi eru góðir vinir sem elska tónlist og njóta tónanna sem óma um Hljómbæ.
Edduverðlaunaþættir frá 2016 úr smiðju Ævars vísindamanns. Sem fyrr kannar Ævar furðulega og spennandi hluti úr heimi vísindanna. Hann fer meðal annars í svaðilför til Surtseyjar og rannsaka stærstu tilraun í heimi. Stórskemmtilegir þættir fyrir alla fjölskylduna. Dagskrárgerð: Gunnar B. Gudmundsson og Ævar Þór Benediktsson.
Í þættinum fjallar Ævar um konur í vísindum. Við heimsækjum fornleifafræðing og skoðum beinagrind, förum út á land og rannsökum verkefni hjá Landvernd, fjöllum um konurnar sem björguðu NASA, fræðumst um Samtök kvenna í vísindum og svo ætlar hin eina sanna Sprengju-Kata að kíkja í heimsókn.
Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.
Gestir þáttarins eru Ása Ninna Pétursdóttir, Björn Hlynur Haraldsson og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Árný Margrét frumflytur lagið In a Dream.
Seinni hluti Koddvitahjals Berglindar Festival er sýnt.
Anna Róshildur lokar þættinum með laginu Endir.
Oddvitar allra framboða í sveitarfélaginu mætast í umræðuþætti.
Fjórir listar eru í framboði í Árborg fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Matthías Bjarnason, Framsóknarflokki, Bragi Bjarnason, Sjálfstæðisflokki, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, Samfylkingu og óháðum, og Heiðrún Kristmundsdóttir, Viðreisn.

Bein útsending frá Íslandsmótinu í áhaldafimleikum.
Keppni í fjölþraut á Íslandsmótinu í áhaldafimleikum.

Umfjallanir um leiki í undankeppni HM kvenna í fótbolta.
Upphitun fyrir leik Íslands og Englands í undankeppni HM kvenna í fótbolta.

Leikir í undankeppni HM kvenna í fótbolta.
Leikur Íslands og Englands í undankeppni HM kvenna í fótbolta.

Umfjallanir um leiki í undankeppni HM kvenna í fótbolta.
Uppgjör á leik Íslands og Englands í undankeppni HM kvenna í fótbolta.

Lottó-útdráttur vikunnar.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Hildur Vala Baldursdóttir tekur á móti góðum gestum í nýjum skemmtiþætti þar sem boðið er upp á skemmtiatriði í beinni útsendingu í bland við upptekin atriði og lifandi tónlistarflutning. Tónlistarstjóri: Magnús Jóhann Ragnarsson. Leikstjórn: Allan Sigurðsson, Hannes Þór Arason og Hannes Þór Halldórsson. Framleiðsla: Atlavík. Stjórn útsendingar: Vilhjálmur Siggeirsson.
Íþróttir hafa leikið Íslendinga grátt í gegnum tíðina. Við skoðum þær frá öllum hliðum. Gestastjórnendur eru Anna Svava Knútsdóttir og Mikael Kaaber.

Bandarísk gamanmynd frá 1999 í leikstjórn Mike Judge. Forritarinn Peter Gibbons er kominn með nóg af starfinu sínu og óþolandi yfirmönnum. Eftir að dáleiðslutilraun fer úrskeiðis breytist viðhorf hans til lífsins og hann ákveður, ásamt tveimur vinnufélögum, að gera uppreisn gegn kerfinu og gráðugum vinnuveitendum sínum. Aðalhlutverk: Ron Livingston, Jennifer Aniston og David Herman.

Bresk kvikmynd frá 2007 í leikstjórn Shekhar Kapur. Cate Blanchett fer með hlutverk Elísabetar Englandsdrottningar á hátindi valdatíðar sinnar undir lok 16. aldar. Drottningin stendur frammi fyrir sviksamlegum launráðum og yfirvofandi innrás spænska flotans á sama tíma og hún tekst á við ástarsorg og flókið tilfinningalíf. Aðalhlutverk: Cate Blanchett, Clive Owen og Geoffrey Rush. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Breskir spennuþættir byggðir á samnefndri skáldsögu Anthonys Horowitz. Ritstjórinn Susan Ryeland fær í hendurnar handrit að nýjustu skáldsögu glæpasagnahöfundarins Alans Conway. Þegar hún kemst að því að lokakaflann vantar í handritið hefur hún leit að týndu blaðsíðunum og flækist í leiðinni óvænt í vef lyga og leyndarmála. Aðalhlutverk: Lesley Manville, Conleth Hill og Tim McMullan.

Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Ormhildur þrammar í burtu, reið við Albert yfir svikunum. Hrafnakonungurinn hneppir hin í álög sem skemmtikrafta. Endurbættur verndargripur Hallgríms sýnir honum Vakur sem er orðinn sólkonungur á Breiðholtseyju og stjórnar íbúunum. Álfur finnur veggteppi sem spáir fyrir um örlög Ormhildar og Guðrún nýtir töfra stolnu galdrakolanna. Förin verður sífellt hættulegri.
Velkomin til Eplabæjar. Eplabær er svo daufur og óspennandi að hann hefur verið tekinn út af landakortum. En ef betur er að gáð fela jafnvel mestu leiðindin í sér ævintýri. Stundum getur ómerkilegasti staðurinn orðið vettvangur stórkostlegra uppátækja – ef ímyndunaraflið fær að ráða.
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?

Þættir um óteljandi ævintýri Strumpanna og Kjartans galdrakarls sem fara hér á kostum í Strumpabæ.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.