
Riðlakeppni í frjálsíþróttum.

Undanúrslit í dýfingum kvenna af stökkbretti.

Samantekt frá viðburðum dagsins á Ólympíuleikunum í París. Umsjón: Edda Sif Pálsdóttir og Gunnar Birgisson. Stjórn útsendingar: Vilhjálmur Siggeirsson.

Úrslit karla í hjólabrettagarði.

Leikur Svíþjóðar og Frakklands í undanúrslitum kvenna í handbolta.

Kanósprettur karla og kvenna.

Úrslit í frjálsíþróttum.

Samantekt frá viðburðum dagsins á Ólympíuleikunum í París. Umsjón: Edda Sif Pálsdóttir og Gunnar Birgisson. Stjórn útsendingar: Vilhjálmur Siggeirsson.

Íþróttafréttir.

Matreiðsluþættir með Kristni Guðmundssyni. Eftir að Kristinn varð pabbi fór hann að elda ofnrétti oftar. Þar sem hann er vanur að fara ótroðnar slóðir eldar hann alla réttina í eldofni sem hann byggði með vinum sínum í Norður-Frakklandi. Dagskrárgerð og framleiðsla: Kristinn Guðmundsson.

Heimildarþáttaröð frá BBC. Simon Reeve hefur heimsótt yfir hundrað lönd í sex mismunandi heimsálfum. Hér rifjar hann upp eftirminnilega staði ásamt því að ræða við fólk sem hann hefur kynnst á ferðalögum sínum. Einnig fá áhorfendur að skyggnast á bak við tjöldin.

Bandarísk þáttaröð um slökkviliðsmenn og bráðaliða í Chicago en hetjurnar á slökkvistöð 51 víla ekkert fyrir sér. Meðal leikenda eru Jesse Spencer, Taylor Kinney, Eamonn Walker og David Eignberg. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Íslensk spennuþáttaröð frá 2019 um rannsóknarlögreglukonuna Katrínu sem rannsakar óvenjulegt morð í Reykjavík. Það reynist upphafið að óhugnanlegu og flóknu sakamáli og lögreglan fær virtan lögreglumann með dularfulla fortíð, Arnar, til að snúa heim eftir áratuga fjarveru utanlands og aðstoða við rannsókn málsins. Leikstjórn: Þórður Pálsson, Davíð Óskar Ólafsson og Þóra Hilmarsdóttir. Aðalhlutverk: Nína Dögg Filippusdóttir og Björn Thors. Framleiðsla: Mystery og Truenorth. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Þrátt fyrir að vera í leyfi heldur Kata rannsókn sinni áfram. Arnar reynir að hjálpa til en á fullt í fangi með sjálfan sig og fortíðina.

Undanúrslit í leiðsluklifri kvenna.

Úrslit kvenna í hraðaklifri.

Úrslit í hraðaklifri karla.

Úrslit kvenna í hjólabrettagarði.

Úrslit karla í hjólabrettagarði.

Úrslit í dýfingum karla af stökkbretti úr 3 metra hæð.

Leikur Frakklands og Þýskalands í undanúrslitum karla í körfubolta.

Leikur Brasilíu og Bandaríkjanna í undanúrslitum kvenna í blaki.

Leikur Serbíu og Bandaríkjanna í undanúrslitum karla í körfubolta.

Leikur Noregs og Danmerkur í undanúrslitum kvenna í handbolta.

Leikur Tyrklands og Ítalíu í undanúrslitum kvenna í blaki.