Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Auknar líkur eru á að að veltihringrás Atlantshafsins, eða AMOC, veikist af völdum loftslagsbreytinga og rofni jafnvel í framhaldinu. Slíkt gæti þýtt nýtt kuldaskeið í Bretlandi, Skandinavíu og á Íslandi, með afdrifaríkum afleiðungum. Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftstlags hjá Veðurstofu Íslands, og Hrönn Egilsdóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs hjá Hafrannsóknarstofnun, fóru yfir stöðuna.
Frá árinu 2013 hefur sæði úr 70 dönskum sæðisgjöfum verið tekið úr umferð hér á landi vegna genagalla. Við fjöllum um málið.
Kastljós hittir líka Högna Egilsson tónskáld sem semur tónlistina við nýjustu kvikmynd Baltasars Kormáks, Apex, sem er framleidd af Netflix
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Um 2500 manns eru talin hafa tekið þátt í Grænu göngunni 2026 á sumardaginn fyrsta. Stjórnvöld voru harðlega gagnrýnd fyrir áherslur sínar í umhverfis- og orkumálum, og fyrir að standa ekki vörð um íslenska náttúru. Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra mætir í Silfrið ásamt Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur formanni Landverndar, Höllu Hrund Logadóttur þingmanni Framsóknarflokksins og fyrrverandi orkumálastjóra, og Finni Beck framkvæmdastjóra Samorku.
Umsjón hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
Bein útsending frá spurningakeppni sveitarfélaga. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundar: Ævar Örn Jósepsson og Jón Svanur Jóhannsson. Dómari: Ævar Örn Jósepsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Sænskur matreiðsluþáttur í umsjón Anne Lundberg og Pauls Svensson. Þau grænvæða vinsæla rétti og skora á kokka að vinna með nýstárlegt hráefni. Jurtaríkið er einungis nýtt að hluta til matar og því er þar enn falin matarkista. Þau ferðast um Skán í leit að hinu óþekkta græna hráefni.

Ævintýri Tulipop er skemmtileg þáttaröð um litríkan vinahóp sem býr á töfraeyjunni Tulipop. Á hverjum degi gerast ný ævintýri á eyjunni sem sem geta haft áhrifaríkar afleiðingar í för með sér en vináttuböndin reynast ævinlega traust.
Þegar Freddi mætir grútskítugur í lautarferð vinanna í Leyniskóginum ákveður Gló að baða hann í laug skammt frá. En á meðan Gló skrúbbar Fredda hátt og lágt hverfur dýrmæta skikkjan hennar. Gló er alveg eyðilögð og finnst hún vera algerlega hjálparvana án hennar. Freddi fer með henni að leita að skikkjunni og Gló kemst að því að hún getur nú ýmislegt þó skikkjuna vanti.
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Unga fréttkonan Erla segir frá Barnamenningarhátíð í dag! 1. Myndlistarskólinn í Reykjavík með sýningu á Kjarvalsstöðum 2. Sýningin Torf og grjót á Árbæjarsafni og endum svo þáttinn á Söngvavori leikskólakrakka í Hörpu.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Ríkisstjórnin og Reykjavíkurborg hafa gert samning um að byggðar verði á annað þúsund íbúðir á lóðum og í húsnæði í eigu ríkisins. Þetta er meðal aðgerða í húsnæðismálum sem kynntar voru á fundi í morgun og eru liður í öðrum húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar. Gestur Kastljóss er Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Snædís Xyza Jónsdóttir keppti fyrst kvenna fyrir hönd Íslands í undankeppni alþjóðlegu matreiðslukeppninnar Bocuse d’Or í Frakklandi. Hún komst áfram í úrslitakeppnina sem fer fram á næsta ári og er strax farin að undirbúa sig.
Í lok þáttar kynnumst við fatahönnuðum framtíðarinnar, sem sýndu útskriftarlínur sínar úr Listaháskóla Íslands á dögunum.
Kveikur er fréttaskýringaþáttur með áherslu á rannsóknarblaðamennsku. Ritstjórn og dagskrárgerð: Ragnhildur Þrastardóttir, Arnar Þórisson, Árni Þór Theodórsson, Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir, Ingvar Haukur Guðmundsson, Jóhann Bjarni Kolbeinsson, Sunna Karen Sigurþórsdóttir og Tryggvi Aðalbjörnsson.
Hundruð kvenna eru auglýstar í vændi hér á landi. Margar kvennanna eru þolendur mansals. Stöðugt streyma vændiskaupendur inn til kvennanna. Flestir þeirra eru íslenskir karlmenn.
Oddvitar allra framboða í sveitarfélaginu mætast í umræðuþætti.
Sex listar eru í framboði í Garðabæ fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Hlynur Bæringsson, Framsóknarflokki, Guðlaugur Kristmundsson, Viðreisn, Almar Guðmundsson, Sjálfstæðisflokki, Þorbjörg Þorvaldsdóttir, Garðabæjarlistanum, Lárus Þór Guðmundsson, Miðflokki og Kjartan Atli Kjartansson, Samfylkingu.
Sannsögulegir breskir dramaþættir frá 2025 um líf Ruth Ellis, síðustu konunnar sem dæmd var til dauða í Bretlandi árið 1955. Varpað er ljósi á ofbeldisfullt samband hennar við manninn sem hún myrti, réttarhöldin og baráttu hennar fyrir frelsinu. Aðalhlutverk: Toby Jones, Toby Stephens og Lucy Boynton. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Önnur þáttaröð þessara bresku sakamálaþátta. Deilur milli glæpagengja valda glundroða á götum Belfast og nýliðum innan lögreglunnar er ýtt út á ystu nöf bæði í starfi og einkalífi. Aðalhlutverk: Nathan Braniff, Sian Brooke og Katherina Devlin. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Heimildarþáttur frá BBC sem gerður var í minningu breska sjónvarpsmannsins og læknisins Michaels Mosley. Farið er yfir sjónvarps- og útvarpsferil Mosleys sem spannaði tæp 40 ár þar sem hann miðlaði upplýsingum um heilsufar og lífsstíl fólks.