
Andri Freyr Viðarsson flandrar um Íslendingabyggðir í Vesturheimi, skoðar áhugaverða staði og heilsar upp á fólk. Með honum í för er tónlistarmaðurinn KK. Framleiðandi: Stórveldið.
Andri haskar sér aftur norður til Kanada til að vera viðstaddur stærstu Íslendingahátíð í heimi. Hún er haldin árlega í Gimli og er öllu tjaldað til. Yfir 20 þúsund gestir koma á hátíðina og Andri ætlar ekki að láta sig og KK vanta. Á meðan á hátíðinni stendur heimsækir Andri víkingaþorp og fylgist með blóðugum bardaga, spjallar við Fjallkonuna, fer í flugferð, leikur sér í tívolí, keppir í "Fris-nok", heimsækir sumarhús Janis Johnson þingkonu, fer á þjóðlagahátíð og horfir á flugelda. Eftir þetta mikla ferðalag er Andri reynslunni ríkari og órjúfanleg tengsl hafa myndast milli hans og frænda okkar í vestri.