Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Ræða Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra á þingi Kennarasambands Íslands í gær hefur valdið titringi meðal kennarastéttarinnar og skildi salinn eftir í nokkru uppnámi. Hún boðaði í ræðu sinnu breytingar á einkunnakerfi grunnskólanna sem virðist hafa komið kennurum í opna skjöldu. Inga Sæland er gestur Kastljóss.
Sigurvegari Söngkeppni framhaldsskólanna er hinn 18 ára Guðjón Þorgils Kristjánsson, sem keppti fyrir hönd Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Við kynnumst honumí þætti kvöldsins.

Bein útsending frá spurningakeppni sveitarfélaga. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundar: Ævar Örn Jósepsson og Jón Svanur Jóhannsson. Dómari: Ævar Örn Jósepsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.

Danskur þáttur þar sem rætt er við ungt fólk sem þjáist af fælni og fjallað um hvaða áhrif fælnin hefur á daglegt líf þeirra.
Kveikur er fréttaskýringaþáttur með áherslu á rannsóknarblaðamennsku. Ritstjórn og dagskrárgerð: Ragnhildur Þrastardóttir, Arnar Þórisson, Árni Þór Theodórsson, Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir, Ingvar Haukur Guðmundsson, Jóhann Bjarni Kolbeinsson, Sunna Karen Sigurþórsdóttir og Tryggvi Aðalbjörnsson.
Þrátt fyrir að stjórnvöld eyði milljörðum ár hvert í stríðið gegn fíkniefnum sér ekki högg á vatni og framboðið hefur aldrei verið meira. Kókaín flæðir inn til landsins í áður óséðu magni og sífellt fleiri reykja efnið, sem þá kallast krakk, með alvarlegum afleiðingum.

Matgæðingarnir og bræðurnir Adam og James Price ferðast um Bretland og töfra fram kræsingar sem eru vinsælar þar í landi.
Hver skrifar sögu okkar? Það fer eftir ýmsu, svo sem þjóðerni, kyni eða uppruna, og sama atburði má lýsa á marga mismunandi vegu. Fornleifauppgröftur, nýjar rannsóknir eða annar tíðarandi getur líka valdið því að sagnfræðin verði endurskoðuð. Emma Molin og Özz Nûjen hjálpa okkur að sjá fleiri en eitt sjónarhorn á sögunni.
Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu með áherslu á tónlist, sjónvarp og kvikmyndir. Helstu straumar og stefnur, innlit til áhugaverðs fólks og skemmtilegir gestir í myndveri. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson. Stjórn upptöku: Ragnar Eyþórsson.
Í Miðstöðinni að þessu sinni kynnum við okkur nýja íslenska grínþætti sem heita HÆST og eru í Sjónvarpi Símans. Þættirnir gerast í Menntaskólanum við Sund og við förum í heimsókn þangað og spjöllum við aðstandendur.
Laugardaginn 18. apríl er alþjóðlegi plötubúðardagurinn. Í tilefni þess fáum við til okkar tvo vínylspekúlanta til þess að ræða tónlist á föstu formi, þá Snorra Helgason og Ragnar Kjartansson. Við förum líka í heimsókn í plötubúð og tökum stöðuna á plötubúðinni árið 2026.
Í lok þáttar fáum við heimsókn frá upprennandi poppstjörnu, Guðjón Þorgils, sem bar sigur úr býtum í Söngkeppni framhaldsskólanna um liðna helgi.


Dana er 9 ára stelpa sem elskar risaeðlur. Líf hennar breytist til frambúðar þegar hún fær gefins handbók um risaeðlur, sem kennir henni ekki aðeins nýja hluti um dýrin, heldur gefur henni ofurkrafta sem gera henni kleift að sjá fyrir sér risaeðlur í raunveruleikanum.
Matilda er metnaðarfullur námsmaður og vill standa sig vel í skólanum. Hana dreymir líka um gott félagslíf, að skemmta sér jafn mikið og vinsælu jafnaldrar hennar - en hvernig fer hún að því? Hún pantar klón af sér á dularfullri vefsíðu og þarf skyndilega að takast á við tvífara sem tekur yfir líf hennar.
Matilda ákveður að leyfa klóninu að ráða en það fer ekki alveg eftir áætlun.

Fróðlegir danskir þættir þar sem þáttastjórnendur rannsaka matinn sem við borðum dags daglega.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Ný íslensk grínþáttaröð eftir Arnór Björnsson, Óla Gunnar Gunnarsson og Vigdísi Hafliðadóttur. Þrjú ungmenni takast á við þær áskorarnir sem fylgja þrítugsaldrinum; háskólann, vinnumarkaðinn, sambandsdrauga, rappara og glataða æskudrauma. Hér mætir íslenskur veruleiki óbeisluðu ímyndunarafli. Þættirnir skarta sex frumsömdum lögum eftir FLOTT. Aðalhlutverk: Arnór Björnsson, Óli Gunnar Gunnarsson og Vigdís Hafliðadóttir.
Diljá, Janus og Teitur eru öll tuttugu og eitthvað. Diljá byrjar í draumanáminu sínu í leiklist í LHÍ. Janus fær vitjanir frá tólf ára útgáfu af sjálfum sér. Teitur fer að efast um sambandið sitt.

Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.

Hjartnæm fjölskyldumynd frá 2017 byggð á samnefndri metsölubók eftir R. J. Palacio. August Pullman er tíu ára strákur með óvenjulegt útlit vegna heilkennis. Hingað til hefur móðir hans kennt honum heima en nú á hann að byrja í alvöru skóla og tilhugsunin skelfir hann. Aðalhlutverk: Jacob Tremblay, Julia Roberts og Owen Wilson. Leikstjóri: Stephen Chbosky.

Spennumynd frá 1973 um hjón sem eru í sárum eftir sviplegt dauðsfall ungrar dóttur þeirra. Þau ferðast til Feneyja og hitta þar fyrir tvær systur sem segjast vera í sambandi við dóttur þeirra að handan. Leikstjórn: Nicolas Roeg. Aðalhlutverk: Julie Christie, Donald Sutherland og Hilary Mason. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

Oddvitar allra framboða í sveitarfélaginu mætast í umræðuþætti.
Fjórir listar eru í framboði í Árborg fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Matthías Bjarnason, Framsóknarflokki, Bragi Bjarnason, Sjálfstæðisflokki, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, Samfylkingu og óháðum, og Heiðrún Kristmundsdóttir, Viðreisn.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

An Icelandic comedy series by Arnór Björnsson, Óli Gunnar Gunnarsson and Vigdís Hafliðadóttir. Three young adults navigate the challenges of their twenties: university life, the job market, ghosts of past relationships and faded childhood dreams. The series features six original songs by the band FLOTT. Starring: Arnór Björnsson, Óli Gunnar Gunnarsson and Vigdís Hafliðadóttir.