
Serían gerist í litríkum og súrsætum skrímsla heimi þar sem fjölbreytt skrímsli búa í sátt og sæti. Í hverjum þætti kynnumst við nýju skrímsli sem býr yfir vægast sagt sérstökum eiginleikum. Kíkjum við og sjáum hvað setur, kannski við getum kynnst þeim aðeins betur.
Tara tölvuskrímsli er pínulítil tölvuleikjaóð vera. Hún nærist á þungu lofti og svita og það besta sem hún veit eru innipúkar sem hanga í tölvuleikjum. Þegar hennar versti óvinur, ferskt loft mætir, þá flýr hún langt, langt í burt. En hvurt?
Jóga fyrir alla krakka í ævintýraheimi með dýrum og náttúru.
Ævintýrajóga hvetur börn til hreyfingar og að vera meðvituð um líkama sinn og líðan. Það gefur þeim verkfæri sem auðveldar þeim að líða vel í eigin líkama og takast á við daglegt líf. Jógakennari: Þóra Rós Guðbjartsdóttir. Framleiðsla: Erla Hrund Hafsteinsdóttir.
Við kynnumst hundinum, og skoðum saman af hverju hann er svona áhugaverður

Bandarísk fjölskyldumynd frá 2016 um stúlkuna Monicu sem á í einstöku sambandi við hestinn sinn. Hann er ólíkur öðrum hestum að því leyti að hann getur talað við hana og saman hjálpast þau að við að láta drauma sína rætast. Leikstjóri: John Rogers. Aðalhlutverk: Sarah Lieving, Aaron Johnson Araza og Jesse Bell.
Haukur Morthens var einn vinsælasti dægurlagasöngvari þjóðarinnar um langt skeið. Hann söng með danshljómsveitum í fjóra áratugi og inn á fjölmargar hljómplötur. Í þessum þætti segir hann frá tónlistarferlinum og sjálfum sér og syngur mörg af þekktustu lögum sínum. Umsjón og dagskrárgerð: Andrés Indriðason.

Leikararnir Karl Ágúst Úlfsson, Randver Þorláksson, Pálmi Gestsson, Sigurður Sigurjónsson og Örn Árnason sýna áhorfendum samtíðaviðburði frá nýju sjónarhorni. Stjón upptöku: Björn Emilsson.

Leikir í Meistarakeppni kvenna í fótbolta.
Spurningakeppni framhaldsskólanna. Spurningahöfundar og dómarar eru Arnar Gunnarsson, Sigurlaugur Ingólfsson og Vilhjálmur Bragason. Spyrill er Helga Margrét Höskuldsdóttir. Stjórn útsendingar: Sturla Holm Skúlason.
Menntaskólinn á Egilsstöðum mætir Verzlunarskóla Íslands. Keppendur frá Menntaskólanum á Egilsstöðum: Steinar Aðalsteinsson, Sólgerður Vala Kristófersdóttir og Auðun Lárusson Snædal. Keppendur frá Verzlunarskóla Íslands: Dagbjörg Birna Sigurðardóttir, Katla Margrét Jónsdóttir og Ísak Trausti Ingólfsson Lehmann


Hertoginn af Flögranda stelur dýrmætum gimsteini úr kastalanum í Voffaborg sem getur látið hluti svífa. Hvolpasveitin þarf þá að bjarga málunum úr lofti.

Fróðlegir danskir þættir þar sem þáttastjórnendur rannsaka matinn sem við borðum dags daglega.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Ný íslensk heimildarmynd í leikstjórn Margrétar Hrafnsdóttur um náttúruhamfarir á Reykjanesskaga. Íbúar Grindavíkur neyddust til að yfirgefa bæinn þegar þar fór að gjósa og allt var gert til að koma í veg fyrir að bærinn færi undir hraun. Framleiðendur: Hlín Jóhannesdóttir og Margrét Hrafnsdóttir.

Íslensk kvikmynd frá 2022 í leikstjórn Hilmars Oddssonar. Þegar móðir Jóns og hans helsti áhrifavaldur fellur frá verða alger umskipti í lífi hans. Með uppáklætt líkið í aftursætinu og hundinn Brésnef sér við hlið tekst hann á hendur ferð þvert yfir landið til að heiðra hennar síðustu ósk. Mamma hefur hins vegar ekki sungið sitt síðasta. Aðalhlutverk: Þröstur Leó Gunnarsson, Kristbjörg Kjeld, Tómas Lemarquis og Hera Hilmarsdóttir.

Bandarísk spennumynd frá 2018. Stephanie, sem er einstæð móðir, kynnist hinni dularfullu Emily í gegnum syni þeirra beggja sem ganga í sama skóla. Með tímanum verða þær vinkonur og þegar Emily hverfur skyndilega sporlaust ákveður Stephanie að rannsaka málið upp á eigin spýtur. Leikstjóri: Paul Feig. Aðalhlutverk: Anna Kendrick, Blake Lively og Henry Golding. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Bein útsending frá tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður á Ísafirði. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.

Bein útsending frá tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður á Ísafirði. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.