Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Sífellt fleiri hafa áhyggjur af því að þróun gervigreindar sé að verða stjórnlaus. En er hægt að koma böndunm á hana og hvernig? Halldóra Mogensen, sérfæðingur í vísindanefnd ESB, fer yfir málið.
Það er kunnara en frá þurfi að segja að símar valda truflunum í nær öllu daglegu lífi, yfir sjónvarpinu og undir stýri. En nú eru þeir farnir nú að valda truflunum á mikilvægustu stund lífsins - á fæðingardeildinni.
Við kynnum okkur líka útvarpsleikritið Baunin, sem nær allur ungleikarahópur landsins tekur þátt í.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Hvað gerist ef þjóðin greiðir atkvæði með því að hefja aftur aðildarviðræður við Evrópusambandið 29. ágúst?
Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra og aðalsamningamaður Íslands í aðildarviðræðunum 2009-2013 segir frá samningaferlinu og því ferli sem tekur við ákveði Íslendingar að ganga aftur að samningaborðinu.
Í síðari hluta þáttarins koma Gylfi Magnússon hagfræðiprófessor við HÍ, Margrét Einarsdóttir prófessor í Evrópurétti við HR, Kolbeinn Árnason ráðuneytisstjóri atvinnuvegaráðuneytisins og Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur og ræða helstu málefni sem þyrfti að semja um í aðildarviðræðunum.
Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
Sænskur matreiðsluþáttur í umsjón Anne Lundberg og Pauls Svensson. Þau grænvæða vinsæla rétti og skora á kokka að vinna með nýstárlegt hráefni. Jurtaríkið er einungis nýtt að hluta til matar og því er þar enn falin matarkista. Þau ferðast um Skán í leit að hinu óþekkta græna hráefni.
Íslensk þáttaröð í sex hlutum um dans. Þar er leitað svara við spurningum um hvers vegna fólk dansar, hvernig dansgleðin kviknar og hvers vegna sumir fæðast flinkir dansarar en aðrir taktlausir flækjufætur. Farið verður yfir sögu dansins á Íslandi, mismunandi danstegundir kannaðar og við kynnumst því hvernig dansinn brýst fram á ólíklegustu stöðum. Umsjón: Guðrún Sóley Gestsdóttir. Framleiðsla: Skot.
Dans getur bæði verið listgrein og afslöppuð tómstundaiðja. Stundum er hann settur í annað samhengi og verður að keppnisíþrótt. En hvernig er keppt í dansi og hvað er það sem er dæmt? Hvort er dans íþrótt eða list? Við ræðum við keppnisdansara og danslistamenn til að komast að niðurstöðu um þetta álitamál.

Ævintýri Tulipop er skemmtileg þáttaröð um litríkan vinahóp sem býr á töfraeyjunni Tulipop. Á hverjum degi gerast ný ævintýri á eyjunni sem sem geta haft áhrifaríkar afleiðingar í för með sér en vináttuböndin reynast ævinlega traust.
Norðuljósin senda frá sér dularfullt fræ sem lendir á Hauskúpuhæð, hjá Herra Barra, og upp vex töfraóskatré. Óskirnar vefjast ekki fyrir Fredda, Gló og Maddýju, þau vita upp á hár hvers þau ætla að óska sér. Búi á hins vegar erfitt með að gera upp hug sinn. Óskir hinna þriggja hafa slæmar afleiðingar í för með sér og Búi, sem á enn eftir að óska sér, bjargar málunum.
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
1. Æfingamótið Framtille fyrir handboltakrakka 2. Nemendur í Eyjafjarðarsveit sinna sveitastörfum.
Finnsk heimildarþáttaröð frá 2025. Hvernig birtist pólitík í ópólitískri keppni? Pólitík hefur alltaf verið samofin Eurovision þrátt fyrir bann EBU við hvers kyns pólitískum yfirlýsingum í keppninni. Fjallað er um Eurovision sem vettvang stjórnmála, skoðana og mótmæla.
Þættir sem fjalla um þjóðirnar sem taka þátt á HM karla í fótbolta. Við kynnumst leikmönnum, þjálfurum og þeim þjóðum sem keppa um heimsmeistaratitilinn á þessum stærsta viðburði vinsælustu íþróttagreinar veraldar.
Fjallað er um Skotland, Tyrkland, Svíþjóð og Tékkland.
Velskir spennuþættir frá 2022. Blaðakonan Cat Donato snýr aftur á heimaslóðir sínar í Wales í von um að komast að því hvað varð um vinkonu hennar, Elu Roberts, sem hvarf fyrir 18 árum. Aðalhlutverk: Alexandra Roach, Joanna Scanlan og Iwan Rheon. Þættirnir eru ekki vð hæfi barna yngri en 12 ára.
Danskt fjölskyldudrama frá 2025. Líkamsleifar ungbarns finnast á háalofti í íbúðarhúsi í Kaupmannahöfn. Martha, 87 ára, játar á sig glæpinn og fleiri löngu grafin fjölskylduleyndarmál koma upp á yfirborðið. Aðalhlutverk: Ulla Henningsen, Anette Støvelbæk, Alice Bier og Rikke Eberhardt Isen.