Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Rætt við Hörð Arnarsson, fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar um brotthvarf hans, rætt við Sergy Radchenko, prófessor við John Hopkins háskólann í Bandaríkjunum um utanríkisstefnu Rússlands og farið í heimsókn til Kötlu Karlsdóttur skartgripahönnuðar á Hjalteyri við Eyjafjörð.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1999. Spyrill: Logi Bergmann Eiðsson. Dómari og spurningahöfundur: Illugi Jökulsson. Stigavörður: Þóra Arnórsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Menntaskólans á Akureyri og Menntaskólans við Sund. Lið Menntaskólans á Akureyri skipa Jón Eggert Víðisson, Sigrún Dóra Bergsdóttir og Hjálmar Stefán Brynjólfsson. Lið Menntaskólans við Sund skipa Einar Magnús Einarsson, Pétur Már Pétursson og Jón Trausti Reynisson.
- Endursýnt
Þættir þar sem Snorri Helgason og Bergur Ebbi fjalla um íslensk dægurlög og setja í samhengi við tísku og tíðaranda. Þættirnir eru byggðir á vinsælu hlaðvarpi þeirra sem hóf göngu sína árið 2014.
Bergþóra Árnadóttir söngvaskáld samdi og flutti mörg lög sem hafa lifað með þjóðinni. Eitt þeirra, Verkamaður, sem upphaflega kom út á plötunni Eintak árið 1977, var samið við vinsælt ljóð Steins Steinarrs frá 1934. Snorri Helgason og Bergur Ebbi fíla lagið og fara yfir sögu lagsins og þá merkilegu tengingu sem það hefur við íslenska þjóðarsál. Leikstjórn: Allan Sigurðsson.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Heimildarþáttaröð í sex þáttum þar sem íslensk ljósmyndun er skoðuð út frá sjónarhorni lista, landslags, samtímans, skrásetningar, fréttaflutnings, fortíðar og framtíðar. Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Katrín Ásmundsdóttir. Stjórn upptöku og framleiðsla: Hrafnhildur Gunnarsdóttir.
Í þættinum er fjallað um myndlistarljósmyndun. Löngum hefur verið dregið í efa að ljósmyndun geti verið list og þar sem einfalt er að fjölfalda ljósmyndir hefur verðmæti þeirra verið umdeilt. Nokkrir ljósmyndarar á Íslandi hafa þó skapað sér þá sérstöðu að selja myndir sínar sem list og eru jafnvel á mála hjá listagalleríum.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu og tekur stöðuna á því sem við horfum á, hlustum á og tölum um. Góðir gestir, skoðanir, húmor og leikgleði í fyrirrúmi. Stjórn upptöku: Þórunn Guðjónsdóttir.
Á hvað er fólk að hlusta? Tónlistargagnrýnendur Miðstöðvarinnar rýna í bestu plötur haustsins.
Hver er Unnur Borg? Hún skaust upp á stjörnuhimininn á TikTok með því að auglýsa kjóla og sendi svo frá sér lagið Barnsfaðir í sumar sem sló í gegn. Hver er þessi tvítuga athafnakona? Við höngum í Kringlunni með Unni eða UB í Miðstöðinni.
Sóli Hólm og Halldór Smárason hafa undanfarin ár sett saman sýninguna Jóla Hólm sem hefur slegið hvert aðsóknarmetið á fætur öðru í Bæjarbíói í Hafnarfirði fyrir jólin. Vinirnir koma í spjall, spurningakeppni og meðmæli vikunnar.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Önnur sería af Silfruskógi, sem er bresk sjónvarpsþáttaröð úr heimi vísindaskáldskapar fyrir unglinga. Lous, Meg, Glen og Kaz uppgötva að hópurinn þeirra er bara einn þeirra fjögurra sem taka þátt í leiknum um að bjarga heiminum.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Önnur þáttaröð af Eilífu drama. Hvað gerist þegar besta vinkonan byrjar að hanga með einhverjum öðrum? Saga um vináttu sem rofnar og breytist. Þáttaröðin er á sænsku með íslenskum texta.
Alexa og Ella vilja koma upp um Oliviu í eitt skipti fyrir öll. Þær hrinda áætlun sinni í framkvæmd og hún gengur betur en þær þorðu að vona.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Fjórir efnilegir knattspyrnuiðkendur. Einn draumur. Ekkert er sjálfgefið. Sumir berjast fyrir því að falla inn í hópinn, aðrir fyrir því að valda ekki vonbrigðum. Serían er á norsku með íslenskum texta.
Leon kemur á óvart í Kóngserni. Kamal vill gefa afmælisgjöf sem hann hefur ekki efni á og harkaleg gagnrýni pabbans hefur mikil áhrif á Billie.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Þrjár leiknar stuttmyndir, skrifaðar af ungum höfundum á aldrinum 7-12 ára. Myndirnar voru framleiddar í tengslum við verkefnið Sögur hjá KrakkaRÚV. Handritin að stuttmyndunum þremur, Einhyrningurinn og kanínan, Óvæntar fréttir og Hvað er í gangi? voru valin í handritasamkeppni Sagna 2025. Leikstjórn og framleiðsla: Rosalie Rut Sigrúnardóttir
Hvað gerist þegar lítil kanína eignast nýja vini og þau lenda öll í ævintýri? Þau halda að hætta sé á ferð en ekki er allt sem sýnist.
Handrit: Máney Mist Arnþórsdóttir
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Kraftur er norskur heimildarþáttur sem fylgir hópi ungra dansara í streetdance-senunni í Ósló, þar sem þeir keppa, æfa og takast á við drauma, vináttu og sjálfsmynd sína á sama tíma og þeir reyna að ná langt í dansi.
Stærsti dansbardagi ársins er að hefjast.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Breskir gamanþættir frá 2025 um hina óviðjafnanlegu Jessop-fjölskyldu. Daglegt líf þeirra er heldur óreiðukennt og yngsti sonurinn Sam festir það allt á filmu. Aðalhlutverk: Katherine Parkinson, Jim Howick og Freya Parks. Handritshöfundur: Tom Basden.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.
- Bein útsending

Breskir sakamálaþættir byggðir á skáldsögum eftir P. D. James. Rannsóknarlögreglumaðurinn og ljóðskáldið Adam Dalgliesh rannsakar sakamál um miðjan áttunda áratug síðustu aldar. Aðalhlutverk: Bertie Carvel. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Breskir sakamálaþættir frá 2021. Reyndur lögreglumaður og unglingsstúlka hrapa til bana fram af þaki háhýsis í London. Rannsóknarlögreglukonan Sarah Collins er fengin til að stýra rannsókn málsins og fljótlega flækist hún inn í flókinn vef spillingar og leyndarmála innan lögreglunnar. Þættirnir eru byggðir á glæpasögum eftir Kate London, fyrrum lögreglukonu í London. Aðalhlutverk: Gemma Whelan, Tahirah Sharif og Emmett J. Scanlan. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt