Bein útsending frá spurningakeppni sveitarfélaga. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundar: Ævar Örn Jósepsson og Jón Svanur Jóhannsson. Dómari: Ævar Örn Jósepsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Íslensk þáttaröð í átta hlutum. Einlægar og opinskáar frásagnir fólks sem býr við aðstæður í daglegu lífi sem eru ólíkar öllu sem flestir eiga að venjast. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir. Framleiðsla: SERES hugverkasmiðja
Þátttaka Áslaugar Ýrar Hjartardóttur í samfélaginu er áberandi, þökk sé krafti hennar og lífsafstöðu. Áslaug Ýr greindist ung með taugahrörnunarsjúkdóm sem hefur skert sjón hennar, heyrn og hreyfigetu.
Þáttaröð í sex hlutum þar sem fjallað er um sameiginlegar minningar íslensku þjóðarinnar á léttan og nýstárlegan hátt. Umsjónarmennirnir Margrét Blöndal og Felix Bergsson leggjast í fullkomlega óvísindalega mannfræðirannsókn til að reyna að skilja íslensku þjóðina betur á hundrað ára afmæli fullveldisins. Meðal þess sem þau skoða eru dellurnar sem þjóðin hefur gengið með í gegnum tíðina, nekt á Íslandi, og svo verða séríslensku sunnudagarnir sérstaklega kannaðirr. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Þær eru margar dellurnar sem íslenska þjóðin hefur verið heltekin og gagntekin af í gegnum tíðina. Carmen rúllur, fótanuddtæki, hráfæði, sveppir, gerlar og ljósabekkir. Sagan um Orobronze æðið verður sögð og einnig fjölmargar sögur af stórundarlegum megrunarkúrum. Þjóðin leitar enn að hamingjunni og hinni fullkomnu líðan í Veröld sem var.

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Ríkisstjórnin kynnti fyrir helgi tímabundnar efnahagsaðgerðir til að ná niður verðbólgu. Duga þessar aðgerðir til og hvað þarf að gera til að ná tökum á efnahagsástandinu? Gestir Kastljós eru Henný Hinz aðstoðarframkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands og GylfI Magnússon, prófessor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands og fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra.
Þýski þingmaðurinn Tilman Kuban fer fyrir Evrópumálum í flokki Merz kanslara Þýskalands. Hann var hérlendis fyrir nokkrum dögum og sagðist í viðtali við Ingólf Bjarna viss um að hægt væri að ná málamiðlun í sjávarútvegsmálum sem bæði sjómenn og útvegsfyrirtæki gætu unað við.
Þrír íslenskir leikarar með ólíkar reynslusögur sameina krafta sína í verkinu Gæðablóð í Þjóðleikhúsinu. Við lræðum við tríóið og leikstjóra verksins.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er í viðtali í fyrri hluta þáttarins um stöðu efnahagsmála.
Í seinni hlutanum höldum við áfram að ræða við oddvita framboða í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík.
Gestir:
Silja Sóley Birgisdóttir, Sósíalistaflokkur Íslands
Ingimar Þór Friðriksson, Góðan daginn framboðið
Sigfús Aðalsteinsson, Borgin okkar.

Rúrik Gíslason, velgjörðasendiherra SOS Barnaþorpanna, fór til Rúanda og kynnti sér hvernig fjölskylduefling samtakanna aðstoðar barnafjölskyldur við að komast úr sárafátækt og standa á eigin fótum. Þjóðarmorðið í Rúanda árið 1994 lagði veikbyggða innviði landsins í rúst og þjóðin glímir enn við afleiðingarnar. Dagskrárgerð: Sævar Guðmundsson. Framleiðsla: Purkur. Þátturinn er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Sænsk leikin þáttaröð frá 2025. Jana snýr aftur til heimabæjar síns til að aðstoða bróður sinn sem glímir við áfengisvanda. Þar dregst hún inn í ástríðufullt en hættulegt samband við hinn dularfulla John og áttar sig á að bærinn býr yfir ótal leyndarmálum. Aðalhlutverk: Amanda Jansson, Rasmus Johansson og Jakob Öhrman. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Önnur þáttaröð þessara dönsku sakamálaþátta. Lögreglumaðurinn Rolf Larsen kemst á snoðir um mansalshring þegar 19 Víetnamar finnast myrtir í farmrými vöruflutningabíls. Aðalhlutverk: Anders W. Berthelsen, Olivia Joof Lewerissa og Zofia Wichlacz. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.