
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Í Kilju vikunnar hittum við Rán Flygenring í sundi. Hún segir okkur frá bók sinni Sketching Bathing in Iceland en þar birtist sýn þessarar einstöku listakonu og höfundar á sundlaugamenningu Íslendinga. Una Margrét Jónsdóttir ræðir við okkur um Silfuröld revíunnar en það er framhald af bók hennar Gullöld revíunnar sem kom út 2019. Í innslaginu sýnum við marga skemmtilega búta úr revíutengdu efni. Viktor Arnar Ingólfsson hefur ritað feikivinsælar spennusögur, við fjöllum um bók hans sem nefnist Sumarið við brúnna en þar segir frá byggingu brúar yfir Fnjóská - með blöndu af skáldskap og sagnfræði. Þórdís Dröfn Andrésdóttir Andrésdóttir spjallar við okkur og flytur kvæði úr ljóðabók sinni sem kallast Síðasta sumar lífsins - bókin fékk verðlaunin sem kennd eru við Tómas Guðmundsson. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um eftirtaldar bækur: Alfa eftir Lilju Sigurðaróttur, Syndafall eftir Yrsu Sigurðardóttur og Þegar hún hló eftir Katrínu Júlíusdóttur.