
Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi er að föndra með börnunum sínum. Þau eru að skreyta egg sem Eddi óttast að tilheyri hættulegri skepnu. Hann verður að vernda börnin sín og losa sig við eggin áður en þau klekjast út!
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Velkomin til Eplabæjar. Eplabær er svo daufur og óspennandi að hann hefur verið tekinn út af landakortum. En ef betur er að gáð fela jafnvel mestu leiðindin í sér ævintýri. Stundum getur ómerkilegasti staðurinn orðið vettvangur stórkostlegra uppátækja – ef ímyndunaraflið fær að ráða.
Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Ormhildur, Albert og Guðrún leita að Týndu bókinni á Eyju safnarans. Þar rekast þau á Grétu, sem vann einu sinni með Alberti, og vill ná sér niðri á honum. Áform hennar koma í ljós þegar Álfur handsamar Albert. Guðrún og Ormhildur flýja með Týndu bókina í farteskinu.
Þáttaröð um samband mannsins við dýr, allt frá skordýrum og býflugum til sela. Kolbrún Vaka hittir skemmtilegt fólk sem varpar ljósi á sérstakt samband okkar mannfólksins við dýrin. Dagskrárgerð: Karl Sigtryggsson.
Í þættinum hittum við Jóa Animal sem veit ekkert skemmtilegra en að vera í kringum skordýr. Við fylgjumst með kúnum á Ásólfsskála undir Eyjafjöllum fara í fyrsta skipti út í ferskt loft eftir inniveru vetrarins. Kynnumst Gígju Einarsdóttur dýraljósmyndara og förum á eyjuna Hvallátur á Breiðafirði en börnin á eyjunni eiga einstakt samband við æðarungana.
Skemmtiþáttur um íslenska tungu í umsjón Bjargar Magnúsdóttur og Braga Valdimars Skúlasonar þar sem þátttakendur etja kappi í fjölbreyttum leikjum og þrautum, meðal annars í taugatrekkjandi stöfunarkeppni og í sérhannaðri útgáfu af hengimanni. Framleiðsla: Skot í samstarfi við RÚV.
Keppendur í þessum þætti eru Svanhildur Hólm, Arnmundur Ernst Backman Björnsson, Bergur Ebbi og Rakel Garðarsdóttir.
30 ára ferill Spaugstofunnar og þeirra sem stóðu á bak við hana rakinn í upprifjun á gömlu sjónvarpsefni, viðtölum við mennina á bak við þættina og fjölmarga aðra sem tengdust þeim, birtust í þeim eða voru fórnarlömb þeirra. Umsjón: Gísli Marteinn Baldursson. Dagskrárgerð: Eiríkur Ingi Böðvarsson.
Íslenskur heimildarþáttur frá 2026 um Krýsuvíkursamtökin, starfsemina í Krýsuvík og þá meðferð sem skjólstæðingum með áfengis- og fíknivanda er veitt. Einnig er farið yfir 40 ára sögu Krýsuvíkursamtakanna með frumherjum þeirra. Stjórn upptöku: Þorsteinn J.
Þáttaröð í fjórum hlutum um líf innflytjenda á höfuðborgarsvæðinu. Fjallað er um námsmenn á Íslandi, þá sem hingað komu vegna ástar, vegna vinnu eða sóttu hér um hæli. Edoardo Mastantuoni Morbilli sem þekktur er sem Varði á Íslandi sér um þættina.

Þáttaröð í tíu hlutum um íslenskar kvikmyndir allt frá fyrri hluta 20. aldar til samtímans. Í hverjum þætti er ákveðið tímabil tekið fyrir, fjallað um kvikmyndir þess tímabils og sýndir valdir hlutar úr þeim. Rætt er við á annað hundrað kvikmyndagerðarmenn, leikara og kvikmyndasérfræðinga um verkin og margvíslega fleti íslenskrar kvikmyndagerðar. Leikstjóri: Ásgrímur Sverrisson.
Í kvikmyndum frá fyrri hluta 20. aldar og fram undir lok 6. áratugarins má sjá löngun til að takast á við þetta nýja tjáningarform af bjartsýni og áræðni en einnig erfiðar aðstæður og brostna drauma. Rýnt er meðal annars í myndirnar Fjalla-Eyvindur, Saga Borgarættarinnar, Ævintýri Jóns og Gvendar, Hadda Padda, Björgunarafrekið við Látrabjarg, Milli fjalls og fjöru, Síðasti bærinn í dalnum, Ágirnd og Salka Valka.

Þáttaröð frá árinu 2006 um íslenska einleikara sem allir hafa staðið framarlega í íslensku tónlistarlífi um lengri eða skemmri tíma. Umsjón: Jónas Sen. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.
Jónas Sen ræðir við Auði Hafsteinsdóttur fiðluleikara.

Heimildarþættir um unglingamenningu á Íslandi í gegnum tíðina. Hver þáttur spannar einn áratug og eru unglingsárin krufin í gegnum viðtöl við þjóðþekkta Íslendinga. Leikstjórn: Björn B. Björnsson. Framleiðsla: Reykjavík Films.
Í þessum þætti er áherslan lögð á áratuginn 1980-1990. Davíð Þór jónsson, Gunnar Helgason, Halldóra Geirharðsdóttir og Ingunn Snædal ræða um unglingsárin.

Ferskur og hispurslaus þáttur fyrir ungt fólk. Katrín og Unnsteinn halda áfram að kryfja ýmis óvenjuleg en aðkallandi málefni út frá skemmtilegu sjónarhorni og leita svara við spurningum sem brenna á ungu fólki í dag. Umsjón: Katrín Ásmundsdóttir og Unnsteinn Manuel Stefánsson. Framleiðandi: Sævar Guðmundsson.
Árið 2016 voru fimmtíu ár síðan Ríkisútvarpið hóf sjónvarpsútsendingar og á þessum fimmtíu árum hefur það sýnt ógrynni af efni allstaðar að af landinu. Í 50 ár eru níu sjónvarpsþættir sem sendir voru út frá vel völdum stöðum á landinu sumarið 2016 þar sem rifjaðar voru upp sögur og svipmyndir af sjónvarpssögu viðkomandi landshluta. Umsjónarmenn: Gísli Einarsson og Guðrún Gunnarsdóttir. Dagskrárgerð: Karl Sigtryggsson.

Norskir þættir þar sem fjallað er um hjónabandið í sögulegu samhengi. Það að við veljum okkur maka út frá ástinni er í raun tiltölulega nýtt í sögu hjónabandsins en lengst af voru það ættingjar, kirkjan og samfélagið í held sinni sem stýrðu því hverjir gengu í hjónaband.

Loft hefur tekið jarðormana í sátt og kynnist nú ævintýralegri tilvist þeirra í gegnum sjónaukann sinn og endurspeglar sjálft sig í þeim.
Áróra er í heimsókn í loftbelgnum og kemst að því að Loft er ekki í neinu stjörnumerki. Ætli það sé meyja, naut, fiskur eða kannski sporðdreki?
Þáttaröð fyrir alla fjölskylduna byggð á samnefndri metsölubók eftir Gunnar Helgason. Jón fer til Vestmannaeyja með liðsfélögum sínum úr Fálkum til að keppa á stærsta og skemmtilegasta fótboltamóti ársins. Draumar hans hafa þó verið slæmir þar sem eldgos og undarlega vondur markmaður eru að trufla hann. Í raunveruleikanum er það þó Ívar, brjálaði boltaþjófurinn, sem er hans helsti óvinur. Samtímis þarf Rósa að berjast fyrir tilverurétti sínum hjá Fylki. Innan vallar eru þau öll andstæðingar en utan vallar þurfa þau að snúa bökum saman og berjast upp á líf eða dauða.
Fálkarnir eru komnir í 16 liða úrslit svo nú eru allir leikir úrslitaleikir. Á sama tíma þarf Jón að hjálpa Ívari í baráttu upp á líf og dauða.
Þáttaröð um íslenska tónlist í umsjón Sigtryggs Baldurssonar. Honum til halds og trausts eru Guðmundur Kristinn Jónsson og Bragi Valdimar Skúlason. Farið er um víðan völl íslensku tónlistarsenunnar og þekktir tónlistarmenn fengnir til að vinna nýtt efni fyrir þættina.
Textað á síðu 888 í Textavarpi.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.
Ferðaþættir þar sem leikarinn Örn Árnason bregður sér í hlutverk leiðsögumanns og ferðast um áhugaverða staði við þjóðveginn eða örskammt frá. Frikki Frikk, tökumaður og ljósmyndari, er fylgdarsveinn Arnar í þessum ferðum og saman sýna þeir fram á að stundum er óþarfi að leita langt yfir skammt. Léttir þættir þar sem fjallað er um náttúru, sögu og menningu.
Í þættinum förum við frá Ólafsvík að Svörtuloftum. Við skoðum fallega fjárrétt í Ólafsvík, heimsækjum Svöðufoss, aftökustað Björns ríka, Skálasnaga og Snæfellsjökul.

Íslensk heimildamynd frá 2020 eftir Björn B. Björnsson. Árið 1973 fór fram lögreglurannsókn á hver hefði stolið einu verðmætasta umslagi í heimi frá Kiðjabergi í Grímsnesi. Þetta umslag, sem er með mörgum sjaldgæfum frímerkjum, er kallað Biblíubréfið, en sænskur greifi er eigandi þess í dag. Lögreglu tókst ekki að upplýsa málið á sínum tíma en í myndinni opinberar frímerkjakaupmaður loks leyndarmálið um hver stóð á bak við sölu bréfsins úr landi. Leyndarmálið er mynd um rannsókn sem upplýsir þetta gamla sakamál.
Bresk leikin þáttaröð frá 2024. Fátæk fjölskylda af verkamannastétt verður vellauðug á svipstundu þökk sé róttækri viðskiptahugmynd þeirra. Þau kveðja slorið og flytja á sveitasetur þar sem þau þurfa að fóta sig í framandi heimi yfirstéttarinnar í Yorkshire í lok 19. aldar. Þættirnir eru byggðir á metsölubókum eftir C. L. Skelton. Aðalhlutverk: Claire Cooper, Liam McMahon og Shannon Lavelle. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Íslensk kvikmynd í leikstjórn Hlyns Pálmasonar. Myndin segir frá Ingimundi sem missir eiginkonu sína af slysförum. Í sorginni einbeitir hann sér að því að byggja hús fyrir dóttur sína og barnabarn þar til athygli hans beinist að manni sem hann grunar að hafi átt í ástarsambandi við eiginkonu hans. Fljótlega breytist grunur Ingimundar í þráhyggju og leiðir hann til róttækra gjörða sem óhjákvæmilega bitna einnig á þeim sem standa honum næst. Aðalhlutverk: Ingvar E. Sigurðsson, Hilmir Snær Guðnason og Ída Mekkín Hlynsdóttir. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

The story of a man who recently lost his wife and decides to focus his energy on building a house for his daughter and grandchild, until his attention turns to a man he suspects had an affair with his wife. Suspicion turns to obsession and a series of events that will affect everyone involved deeply. Directed by Hlynur Pálmason. Main cast: Ingvar E. Sigurðsson, Hilmir Snær Guðnason and Ída Mekkín Hlynsdóttir. Not suitable for children under the age of 12.