Góð ráð og æfingar sem tilvalið er að gera heima. Íris Rut Garðarsdóttir sjúkraþjálfari hefur umsjón með leikfiminni.
Styrktaræfingar fyrir handleggi. Sitjandi æfingar. Gott að hafa létt lóð eða vatnsflösku við hendina.
Þáttaröð frá árinu 2006 um íslenska einleikara sem allir hafa staðið framarlega í íslensku tónlistarlífi um lengri eða skemmri tíma. Umsjón: Jónas Sen. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.
Í þessum þætti er rætt við Eddu Erlendsdóttur píanóleikara.
Sigmar Guðmundsson fær til sín góða gesti úr öllum áttum og ræðir við þá undir fjögur augu. Gestirnir eiga það sameiginlegt að hafa áhugaverða sögu að segja. Dagskrárgerð: Salóme Þorkelsdóttir.
Sigmar ræðir við Margréti Kristmannsdóttur sem stýrir einu elsta fjölskyldufyrirtæki landsins. Hún glímir einnig við stam, sem hún óttaðist í fyrstu að yrði henni fjötur um fót en segir í dag að stamið sé henni þvert á móti styrkur. Hún hefur einnig talað fyrir bættu siðfreði í atvinnulífinu og vill að skorin verði upp herör gegn skattsvikum.
Leikmenn, þjálfarar, sérfræðingar og sófasérfræðingar hita upp fyrir heimsmeistaramótið í fótbolta í sumar með laufléttri en háalvarlegri spurningakeppni. Umsjón: Edda Sif Pálsdóttir og Helga Margrét Höskuldsdóttir. Stjórn upptöku: Ragnar Eyþórsson.
Stofan: Einar Örn Jónsson, Hörður Magnússon og Almarr Ormarsson.
Þjálfarar: Hermann Hreiðarsson, Arnar Gunnlaugsson og Ólafur Helgi Kristjánsson.
Orðbragð er skemmtiþáttur þar sem Bragi Valdimar Skúlason og Brynja Þorgeirsdóttir snúa upp á íslenska tungumálið, teygja það, toga og umfaðma, knúsa og blása í það lífi. Umsjónarmenn eru Bragi Valdimar Skúlason og Brynja Þorgeirsdóttir. Dagskrárgerð: Konráð Pálmason.
Dónaleg orð og kjarngóð blótsyrði - það er nóg af þeim í íslensku. Við athugum úthald blótandi fólks í ísvatni, veljum dónalegasta orðið og svörum því hvers vegna fólk blótar. Hvernig verður íslenska eftir 100 ár? Það gæti verið að hún verði hreinlega horfin. Ástæðurnar verða gefnar upp í þættinum. Það er allt morandi í mál- og stafsetningavillum á opinberum skiltum. Skæruliðaprófarkalesarinn gengur um bæinn og leiðréttir. Við förum yfir heitin á tánum, en þær eiga líka nöfn eins og fingurnir. Furðulegustu sjúkdómanöfnin verða valin og einu útjöskuðu orði komið í lóg.

Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?
Velkomin til Eplabæjar. Eplabær er svo daufur og óspennandi að hann hefur verið tekinn út af landakortum. En ef betur er að gáð fela jafnvel mestu leiðindin í sér ævintýri. Stundum getur ómerkilegasti staðurinn orðið vettvangur stórkostlegra uppátækja – ef ímyndunaraflið fær að ráða.
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Englands og Argentínu í undanúrslitum á HM karla í fótbolta.

Samantekt frá leikjum dagsins á HM karla í fótbolta.

Bresk gamanþáttaröð frá 2026 eftir John Morton. Hugh Bonneville mætir til leiks sem Ian Fletcher í aðdraganda heimsmeistaramótsins í fótbolta sem fram fer í Norður-Ameríku í sumar. Aðalhlutverk: Hugh Bonneville, Jessica Hynes og Karl Theobald.
Sænsk leikin þáttaröð frá 2026. Lögfræðingar á lögmannsstofunni Matsson og Moradi takast á við stór og flókin mál þar sem mikið er í húfi. Nýliðinn Tilde stígur sín fyrstu skref inn í þennan harða og miskunnarlausa heim þar sem mörkin á milli réttlætis og góðs árangurs verða sífellt óljósari. Aðalhlutverk: Arvin Kananian, Björn Bengtsson og Kit Walker Johansson. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

Önnur þáttaröð þessara bresku spennuþátta um rannsóknarlögreglukonuna Rachitu Ray. Þegar hjúkrunarfræðingur og foringi alræmdra glæpasamtaka eru myrt í skotárás við sjúkrahús í Birmingham tekur Ray við rannsókn málsins. Í fyrstu lítur þetta út fyrir að vera átök glæpagengja en eftir því sem rannsókninni vindur áfram kemur í ljós að málið er mun margslungnara. Aðalhlutverk: Parminder Nagra, Gemma Whelan, Patrick Baladi og Jan Puleston-Davies. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Heimildarþættir sem fjalla um tónlistarmyndbönd nokkurra af stærstu poppstjörnum heims. Rætt er við leikstjóra, danshöfunda, gagnrýnendur og listafólkið sjálft.