
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1993. Spyrill: Stefán Jón Hafstein. Dómari: Álfheiður Ingadóttir. Sigavörður: Sólveig Samúelsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Fjölbrautaskólans við Ármúla og Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Lið Fjölbrautaskólans við Ármúla skipa Birgir Guðmundsson, Hildur Svavarsdóttir og Jón Már Alfreðsson. Lið Fjölbrautaskólans í Breiðholti skipa Ásgeir Nikulás Ásgeirsson, Daníel Brandur Sigurgeirsson og Sigrún Inga Hrólfsdóttir.
Íslensk þáttaröð í átta hlutum. Einlægar og opinskáar frásagnir fólks sem býr við aðstæður í daglegu lífi sem eru ólíkar öllu sem flestir eiga að venjast. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir. Framleiðsla: SERES hugverkasmiðja
Bjarney Guðrún Jónsdóttir stundar nám í virtum skóla og nýtur lífsins í heimsborginni Mílanó á Ítalíu. Bjarney hefur búið við skertan kraft í beinagrindavöðvum frá fæðingu og notat hjólastól til að komast leiðar sinnar, rétt eins og faðir hennar.
Viðtals- og tónlistarþáttaröð í umsjón Jóns Ólafssonar. Jón fær til sín ýmsa tónlistarmenn í spjall og saman laða þeir fram ljúfa tóna. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.
Í þessum þætti er Ragnheiður Gröndal gestur Jóns. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.

Önnur þáttaröð þar sem hin sænska Gina Dirawi ferðast um heiminn og heimsækir fólk sem hún heillast af. Stutt er á milli hláturs og gráts þegar viðmælendur segja frá lífshlaupi sínu.

Þáttaröð þar sem Gunnlaugur Helgason húsasmiður leiðir áhorfendur í allan sannleika um hver fyrstu skrefin eru þegar taka á húsnæði í gegn. Gulli hefur verið fengin til þess að koma lagi á kjallara í 65 ára gömlu húsi í Reykjavík. Óþefur og ýmis konar skordýr hafa hrjáð þá sem kjallarinn hefur hýst um nokkurn tíma og greinilegt er að húsið er komið á tíma. Undir leiðsögn Gulla og fagmanna á hverju sviði vinna íbúar og eigendur húsnæðisins, ásamt vinum og ættingjum að breytingunum. Dagskrárgerð: Hrafnhildur Gunnarsdóttir. Framleiðandi: Krummafilms.
Gulli hefur verið fengin til þess að koma lagi á kjallara í 65 ára gömlu húsi í Reykjavík.

Heilinn er undarlegt fyrirbæri og hægt að hafa áhrif á hann og hegðun einstaklinga með mismunandi hætti. Fræðandi, danskur þáttur þar sem sjónhverfingarmanninum og dáleiðandanum Jan Hellesøe er fylgt eftir.

Fílsi leggur af stað í tónlistarævintýri á landi og á sjó!
Fílsi leggur af stað í tónlistarævintýri á landi og á sjó!
Fílsi hittir krabba og börnin hoppa eins og héri, fljúga eins fuglinn og trampa eins og björninn!

Fyrsta þáttaröðin af hinni vinsælu Blæju. Blæja er sex ára hundur sem er stútfull af óstöðvandi gleði. Allir venjulegir hlutir geta orðið ævintýri hjá Blæju og fjölskyldu hennar.

Jojo er alveg að verða fimm ára. Hún er svo heppin að búa í nágrenni við ömmu sína. Saman bralla þær ýmislegt.

Broddi og Oddlaug eru litlir broddgeltir, sem elska að fara út og kanna heiminn. Þau eru yfirleitt bestu vinir og skemmta sér saman í hinum ýmsu leikjum.

Litlu lundasystkinin Úna og Bubbi búa á eyjunni Lundakletti. Þau lenda sífellt í nýjum ævintýrum með vinum sínum.

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.

Danskir þættir um ungt par sem vill einfalda líf sitt og hefur búskap.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Margrét Helga Erlingsdóttir. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.

Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Kjósendur velta fyrir sér kostum og göllum þess að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið, hver áhrifin gætu orðið á kjör almennings í landinu, lífsgæði, verðlag og húsnæðismál. Þá bárust þær fréttir í vikunni að yfirhershöfðingi NATO vilji fast herlið á Íslandi.
Gestir þáttarins eru Brynhildur Pétursdóttir framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna, Helga Rósa Másdóttir formaður Félags hjúkrunarfræðinga, hagfræðingarnir Gauti B. Eggertsson og Jón Helgi Egilsson, og Sóley Kaldal sérfræðingur í alþjóðlegum öryggismálum.
Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
Portúgalskir sakamálaþættir frá 2022. Ungur námsmaður finnst myrtur í smábæ í Portúgal. Dómari í málinu stendur frammi fyrir erfiðri ákvörðun þegar rannsóknin tekur óvænta stefnu. Aðalhlutverk: Margarida Vila-Nova, Nuno Lopes og Ivo Canelas. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

Sumartónleikar hljómsveitar norska ríkissjónvarpsins sem haldnir voru í Røykenvik árið 2023.
Sannsöguleg leikin þáttaröð um eitt stærsta réttarfarshneyksli í sögu Bretlands. Hundruð útibússtjóra hjá breska póstinum voru ranglega ákærðir og dæmdir fyrir fjársvik sem rekja mátti til galla í hugbúnaðarkerfi póstsins. Aðalhlutverk: Toby Jones, Monica Dolan, Julie Hesmondhalgh og Will Mellor.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.