Danskir þættir um arkitektúr á tímum loftslagsbreytinga. Hvernig byggjum við borgir fyrir breytt loftslag með stormum og miklum rigningum? Sjálfbær arkitektúr fer vaxandi um heim allan og danskir arkitektar eru þar í fararbroddi. Lausnir við loftslagsvanda sem um leið stuðla að góðu lífi eru í þróun.
Leikmenn, þjálfarar, sérfræðingar og sófasérfræðingar hita upp fyrir heimsmeistaramótið í fótbolta í sumar með laufléttri en háalvarlegri spurningakeppni. Umsjón: Edda Sif Pálsdóttir og Helga Margrét Höskuldsdóttir. Stjórn upptöku: Ragnar Eyþórsson.
Dr. Football: Eiður Smári Guðjohnsen, Hjörvar Hafliðason og Gunnar Birgisson.
Landsliðið: Kjartan Henry Finnbogason, Ólafur Ingi Skúlason og Hannes Þór Halldórsson.
Ebba Guðný sýnir áhorfendum hversu auðvelt það getur verið að elda hollan og næringarríkan mat úr góðu hráefni. Matreiðsluþáttur fyrir alla fjölskylduna með skemmtilegu fræðsluívafi. Dagskrárgerð: Sævar Sigurðsson. Framleiðandi: Anna Vigdís Gísladóttir fyrir Saga Film.
Í þessum þætti útbýr Ebba Guðný avókadó súkkulaðibúning, grænmetis-byggsúpu, gulrótasalat með rúsínum, kínóagraut með ávöxtum kínóasalat og heilkorna pasta.

Ævintýri Tulipop er skemmtileg þáttaröð um litríkan vinahóp sem býr á töfraeyjunni Tulipop. Á hverjum degi gerast ný ævintýri á eyjunni sem sem geta haft áhrifaríkar afleiðingar í för með sér en vináttuböndin reynast ævinlega traust.
Litlir gosbrunnar byrja að gusast upp á víð og dreif í garðinum hans Búa og þegar betur er að gáð sést að ekkert vatn rennur lengur í stóra fossinum. Vinirnir ákveða að rannsaka málið og komast að því að tröllið Loðgeir hefur orðið að steini og stíflað vatnsuppsprettuna. Það eina sem getur breytt tröllinu aftur í sitt fyrra horf er tröllasólsteinn. Herra Barri kemur þeim til bjargar og Búi býður öllum heim í pönnukökur....hver vissi að tröllum þættu pönnukökur svona góðar?
Önnur þáttaröð þessara bresku sakamálaþátta. Rannsóknarlögreglukonan Sarah Collins rannsakar óupplýst hvarf unglingsstúlku sem hefur verið saknað í aldarfjórðung. Þættirnir eru byggðir á glæpasögum eftir Kate London, fyrrum lögreglukonu í London. Aðalhlutverk: Gemma Whelan, Tahirah Sharif og Emmett J. Scanlan. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Lögreglumaðurinn Andri Ólafsson snýr aftur í annarri þáttaröð þessara vinsælu íslensku spennuþátta. Reynt er að ráða iðnaðarráðherra af dögum á Austurvelli og Andra er falið að stýra rannsókn málsins sem leiðir hann á kunnugar slóðir norður á landi. Ýmis leyndarmál leynast í sveitunum í kring og þegar starfsmaður jarðvarmavirkjunar finnst myrtur er ljóst að málið er umfangsmeira en það virtist í fyrstu. Leikstjórn: Baltasar Kormákur, Börkur Sigþórsson, Ugla Hauksdóttir og Óskar Þór Axelsson. Aðalhlutverk: Ólafur Darri Ólafsson, Ilmur Kristjánsdóttir og Ingvar E. Sigurðsson. Framleiðsla: RVK Studios. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Reynt er að ráða iðnaðarráðherra af dögum á Austurvelli. Andra er falið að stýra rannsókn málsins sem leiðir hann á kunnugar slóðir norður í landi, þar sem Hinrika hefur nú tekið við stöðu lögreglustjóra. Þegar verkstjóri í jarðvarmavirkjun í nágrenninu finnst myrtur taka hlutirnir óvænta stefnu.
Fjórða og síðasta þáttaröðin um ítölsku vinkonurnar Elenu og Lilu. Þættirnir eru byggðir á Napólí-sögum rithöfundarins Elenu Ferrante, sem farið hafa sigurför um heiminn. Vinkonurnar eru á fullorðinsaldri og lifa ólíku lífi en vináttan heldur enn. Aðalhlutverk: Alba Rohrwacher, Irene Maiorino og Fabrizio Gifuni. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.