
Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi er að gefa krökkunum sérstakt snarl sem hann hafði geymt í öryggisskápnum sínum. Klaufaskapurinn í dóttir hans leiðir til þess að hurðin á öryggisskápnum læsist. Eddi notar undarlegar leiðir til þess að opna skápinn á ný, þar sem hann hefur gleymt kóðanum!
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Ný sería um hinn vinsæla Bjössa Brunabangsa! Í þessari seríu fylgjumst við með hetjunni Bjössa brunabangsa, sem elskar að keyra slökkviliðsbíl og slökkva elda. Á hverjum einasta degi leysir hann spennandi verkefni með hjálp frá samstarfsfólki sínu.
Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Inni í Galdrahellinum er stöpull þakinn rúnaletri sem segir þeim að játa en það er sama hvað þau játa, ekkert dugar gegn draugalegum galdramönnum og gullbjöllunum þeirra.
Hópurinn tvístrast og þau velta fyrir sér hvað þau eru að gera þarna. Álfur og Hallgrímur mætast fyrir utan hellinn. Þegar Álfur stígur inn í hellinn bregst galdramátturinn honum og inngangurinn fellur saman. Þeir eru innilokaðir.
Skemmtiþáttur um íslenska tungu í umsjón Braga Valdimars Skúlasonar og Vigdísar Hafliðadóttur. Þátttakendur etja kappi í fjölbreyttum leikjum og þrautum. Framleiðsla: Skot í samstarfi við RÚV.
Keppendur eru Birta Líf Ólafsdóttir, Sunneva Einarsdóttir, Tinna Björk Kristinsdóttir og Ingólfur Grétarsson.
Dóri DNA spjallar við marga af virkustu grínistum landsins og spyr hvort hægt sé að lifa á gríni einu saman. Hver er galdurinn við húmor og þarf maður að æfa sig í fyndni? Gestir Dóra eru meðal annarra Anna Svava, Ari Eldjárn, Bergur Ebbi, Dóra Jóhannsdóttir, Þorsteinn Guðmundsson, Saga Garðarsdóttir, Steindi Jr. og Hugleikur Dagsson. Dagskrárgerð: Gaukur Úlfarsson.
Í fjórða þætti leita Dóri og Steindi jr. að jólagjöfum í Kringlunni. Auk þess fær Dóri sér kótelettur með Dóru Jóhanns, leitar að stofuhita með Bergi Ebba og skoðar Hvalasafnið með Bylgju Babýlons.
Þættir sem fjalla um þjóðirnar sem taka þátt á HM karla í fótbolta. Við kynnumst leikmönnum, þjálfurum og þeim þjóðum sem keppa um heimsmeistaratitilinn á þessum stærsta viðburði vinsælustu íþróttagreinar veraldar.
Fjallað er um Túnis, Gana, Suður-Afríku og Alsír.
Ferskur og hispurslaus þáttur fyrir ungt fólk. Ýmis óvenjuleg málefni krufin út frá skemmtilegu sjónarhorni í nýjum og spennandi þætti þar leitað er svara við spurningum sem brenna á ungu fólki í dag. Umsjón: Katrín Ásmundsdóttir og Unnsteinn Manuel Stefánsson.
Þáttaröð frá árinu 2006 um íslenska einleikara sem allir hafa staðið framarlega í íslensku tónlistarlífi um lengri eða skemmri tíma. Umsjón: Jónas Sen. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.
Jónas Sen ræðir við Halldór Haraldsson píanóleikara.
Myndefni frá Kvikmyndasafni Íslands.
Á árunum 1952-1958 lét Kvikmyndasjóður Skaftfellinga gera níu kvikmyndir í Skaftafellssýslum undir yfirskriftinni Í jöklanna skjóli. Þær fjalla allar um horfna atvinnu-, menningar- og lifnaðarhætti. Í þessari mynd frá 1955 er fjallað um veiði í sjó og vötnum. Kvikmyndataka: Vigfús Sigurgeirsson.
Matreiðsluþættir með Kristni Guðmundssyni. Eftir að Kristinn varð pabbi fór hann að elda ofnrétti oftar. Þar sem hann er vanur að fara ótroðnar slóðir eldar hann alla réttina í eldofni sem hann byggði með vinum sínum í Norður-Frakklandi. Dagskrárgerð og framleiðsla: Kristinn Guðmundsson.
Finnsk heimildarþáttaröð frá 2025. Hvernig birtist pólitík í ópólitískri keppni? Pólitík hefur alltaf verið samofin Eurovision þrátt fyrir bann EBU við hvers kyns pólitískum yfirlýsingum í keppninni. Fjallað er um Eurovision sem vettvang stjórnmála, skoðana og mótmæla.
Heimildarmynd frá 2023 eftir Rut Sigurðardóttur. Ungt par teflir skuldastöðu sinni og sambandi í tvísýnu er þau feta í fótspor forfeðra sinna og gera út trilluna Skuld á handfæraveiðum. Framtíð þessarar elstu atvinnugreinar þjóðarinnar er óviss og virðist sem einungis einstaka sérvitringur stundi þetta basl, eða hvað? Fylgst er með trillunni Skuld á strandveiðivertíð, áhafnarmeðlimunum Kristjáni og Rut og lífinu á höfninni meðan á vertíð stendur.

Loft hefur svifið um loftin blá frá örófi alda án þess að lenda nokkurn tímann á jörðu. Það kynnist ævintýralegri tilvist mannsbarna í gegnum sjónaukann sinn og endurspeglar sjálft sig í þeim.
Loft og Sjón ferðast hægt en örugglega í átt að jörðu, til að endurheimta silkiklútinn en hvar er stelpan? Áróra strýkur að heiman og heldur af stað í mjög langt ferðalag en hvar endar hún?
Þorri og Þura eru álfar og heimsins bestu vinir. Einn daginn eiga þau von á Eysteini vini sínum en svo bólar ekkert á honum. Þorri og Þura leggja þá af stað í leit að vini sínum.
Þorri og Þura finna Eystein hangandi á bjargbrún. Fjóla Þöll tröll sé álfana og kemur nær og nær.
Þættir frá 2011 um íslenska tónlist í umsjá Sigtryggs Baldurssonar. Honum til halds og trausts er greiningardeild Hljómskálans, sem skipuð er þeim Guðmundi Kristni Jónssyni, öðru nafni Kidda í Hjálmum, og Braga Valdimar Skúlasyni í Baggalút. Farið er um víðan völl íslensku tónlistarsenunnar, reynt að ráða í meikdrauma, rýna í suðupotta og þræða fornar söguslóðir. Auk þess eru þekktir tónlistarmenn fengnir til að vinna nýtt efni fyrir þættina.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Heimildarþáttaröð þar sem David Attenborough kannar náttúru og dýralíf í Asíu, stærstu heimsálfu jarðar. Þættirnir eru talsettir á íslensku en sýndir með ensku tali á RÚV 2 á sama tíma.
Ferðaþættir þar sem leikarinn Örn Árnason bregður sér í hlutverk leiðsögumanns og ferðast um áhugaverða staði við þjóðveginn eða örskammt frá. Frikki Frikk, tökumaður og ljósmyndari, er fylgdarsveinn Arnar í þessum ferðum og saman sýna þeir fram á að stundum er óþarfi að leita langt yfir skammt. Léttir þættir þar sem fjallað er um náttúru, sögu og menningu.
Í þættinum ræðum við um Egil Skallagrímsson og Sonatorrek, kíkjum á Selvallafoss og brunum gegnum Berserkjahraun. Förum í óskagöngu á Helgafell og skoðum bæði Berserkjagötu, sem er einn elsti stígur landsins, og Grundarkamp.
Þriðja og síðasta þáttaröð þessara sannsögulegu dönsku þátta. Árið er 1968 og þrátt fyrir velgengni carmenrúllanna á heimsvísu er fyrirtækið í fjárhagsvandræðum. Axel þarf að taka stórar ákvarðanir til að bjarga fyrirtækinu, með ófyrirséðum afleiðingum fyrir alla sem standa honum nærri. Aðalhlutverk: Morten Hee Andersen, Maria Rossing, Lars Ranthe og Nicolai Jørgensen. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Pólsk kvikmynd frá 2023 byggð á samnefndri skáldsögu eftir Władysław Reymont sem hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum. Jagna er ung sveitastúlka á 19. öld sem er staðráðin í að fara sínar eigin leiðir í samfélagi sem nærist á gróusögum og deilum. Hver rammi í myndinni er handmálaður með olíumálningu og er hún samstarfsverk yfir 100 myndlistarmanna. Leikstjórn: DK Welchman og Hugh Welchman. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Heimildarþáttaröð þar sem David Attenborough kannar náttúru og dýralíf í Asíu, stærstu heimsálfu jarðar.